22.10.1968
Efri deild: 5. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í B-deild Alþingistíðinda. (615)

15. mál, siglingalög

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta um breyt. á siglingalögunum er flutt til staðfestingar brbl., sem út voru gefin 31. ágúst s.l. að tillögu minni.

Svo sem í aths. frv. kemur fram, er ástæðan til þessara brbl. sú, að síldarflutningaskipin höfðu um langt skeið gert það mögulegt, að meginhluti okkar síldarflota gæti stundað veiðar svo fjarri heimahöfn sem raun hefur borið vitni um s.l. tvö ár. Þegar sýnt þótti, að nokkur aflatregða og það allveruleg yrði á síldveiðunum og því um greiðsluerfiðleika hjá vélbátunum að ræða á sínum nauðsynjum og vistum, er síldarflutningaskipin fluttu, var svo komið um tíma, að síldarflutningaskipin töldu sig ekki geta flutt þessar vistir öllu lengur, án þess að einhver trygging fengist fyrir greiðslu þessara vista. Þegar svo var komið, að flotinn hafði um alllangt skeið verið án þess að fá nokkra endurnýjun sinna vista þótti sjálfsagt að tryggja það, að greiðsla gæti komið fyrir þessar nauðsynjar, og voru því umrædd brbl. sett.

Ég tel, að ekki þurfi frekari skýringar á þessu við. Öllum er ljóst, hvaða afleiðingar það hefði haft, ef flotinn hefði þurft að sigla heim vegna vistaskorts.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.