28.10.1968
Neðri deild: 6. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (634)
11. mál, Listasafn Íslands
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Hv. þm. saknaði þess, að ekki væru byggðar byggingar í þágu menningarmála til jafns við þau verzlunarhús, sem hér hafa risið ört á undanförnum árum. Ástæðan til allmikilla bygginga verzlunarhúsa er kunnari er frá þurfi að segja. Áður fyrr hafði verið hér eftirlit með fjárfestingu, raunar algert bann um fjölda margra ára skeið á því að byggja verzlunar- og skrifstofuhúsnæði. Þegar fjárfestingareftirlitið var afnumið á fyrstu valdaárum núv. ríkisstj.,þurfti ekki aðeins að byggja yfir árlega vaxandi þörf fyrir verzlunarhúsnæði og skrifstofuhúsnæði, heldur líka vinna upp margra ára húsnæðisskort á þessu sviði. Þannig stendur auðvitað á þeim fjörkipp, sem um skeið hljóp í byggingu verzlunar- og skrifstofuhúsnæðis.
En hann saknaði stórbygginga í þágu menntamála eða menningarmála. Hér er um algeran misskilning að ræða, að ekki hafi verið byggt mikið af byggingum í þágu þeirra. Skólabyggingar hafa aldrei á Íslandi verið líkt því eins miklar og þær hafa verið undanfarin ár: Það eru u.þ.b. 10 ár síðan þessi hv. þm. var stuðningsmaður ríkisstj. Nú eru byggingar miðað við sambærilegt verðmæti meira en tvöfalt meiri á ári en var á valdaárum þeirrar stjórnar, sem hann studdi og virtist vera ánægður með. En það er raunar líka misskilningur, að eingöngu hafi verið byggt mikið af skólahúsnæði. Hér hefur risið hver stórbyggingin af annarri af almennu skólahúsnæði. Ég veit, að honum er kunnugt um kennaraskóla, honum er kunnugt um raunvísindastofnun, honum er kunnugt um Árnagarð, svo að ég nefni nokkrar einstakar byggingar. Hitt er annað mál, að af þessu mætti gjarnan gera meira, en ég stilli mig ekki um að minna á það, sem í þessu efni hefur verið vel gert og hefur í öllu falli verið miklu, miklu betur gert en á valdaárum þeirrar stjórnar, sem hv. þm. studdi dyggilega.