03.03.1969
Neðri deild: 28. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (637)
11. mál, Listasafn Íslands
Frsm. (Birgir Kjaran):
Herra forseti. Menntmn. hv. d. hefur haft til meðferðar frv. til l. um Listasafn Íslands. Hefur n. rætt þetta frv. á fundum sínum og heimsótt Listasafnið til þess að kynna sér aðstöðu þar og rætt við forstöðumann safnsins, dr. Selmu Jónsdóttur. Saga safnsins er ýtarlega rakin í grg. frv. og því óþarfi að endurtaka þá merku sögu hér. Hins er vert að geta, hver listaverkaeign safnsins er í dag. Samkv. upplýsingum forstöðumanns mun hún vera þessi:
Íslenzk olíumálverk 680, erlend olíumálverk 152, íslenzkar vatnslitamyndir, teikningar og svartlitamyndir 298, erlendar vatnslitamyndir og teikningar 357. Íslenzku myndirnar á safninu eru eftir 94 íslenzka málara. Auk þess á safnið 85 höggmyndir eða skulpturmyndir, flestar gerðar af Íslendingum. Listasafnið á því um 1700 listaverk. Slík tala segir lítið. Hitt fer ekki á milli mála, að þó að þessi listaverk kunni að vera misjöfn að gæðum, eru þar á meðal mörg af ágætustu verkum íslenzkra myndlistarmanna, og hefur safnið því að geyma töluverðan hluta íslenzks þjóðarauðs og verðmætan menningararf, sem óbætanlegur væri, ef forgörðum færi, og nauðsynlegt er að búa vel og tryggilega að.
Heimsókn n. í safnið sannfærði nm. því miður um, að húsakostur þess er ófullnægjandi og listaverkin í hættu. Þessu veldur m.a. safnahúsið, sem er tiltölulega ný bygging og myndarleg að ytra útliti, en virðist vera stórgölluð smíði, sprungin og lek á köflum. Auk þessa er hitalögn og loftræstingarkerfi áfátt, gluggar óþéttir og frá sprungnu þaki seytlar vatn inn í húsið. Ekkert eldvarnarkerfi mun heldur vera í húsinu og hvorki rakamælar eða sjálfvirkir hitamælar í sýningarsölum. Hér er ekki verið að veitast að forstöðumönnum safnsins eða þeim, sem rekstur þess hvílir á, með þessari því miður heldur óskemmtilegu lýsingu, heldur aðeins er bent á þær staðreyndir, sem n. varð áskynja við heimsókn sína í safnið. Þess heldur er minnzt á þessi atriði, að þegar hefur hlotizt slys af. Í ágústmánuði s.l. komst leki að hitunarkerfinu, og vatn flæddi niður um loft og veggi safnsins. Þetta óhapp hafði í för með sér, að á 15 málverkum urðu skemmdir, og voru þar á meðal ágætar myndir eftir Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Guðmund Einarsson frá Miðdal og dýrmætar danskar myndir frá síðustu öld, sem voru á sínum tíma hluti af stofni safnsins. Mér er tjáð, að þegar þetta óhapp vildi til, hafi hæstv. menntmrh. brugðið skjótt við og farið sjálfur á staðinn og kynnt sér þar aðstæður. Voru myndirnar síðan sendar til Danmerkur til viðgerðar, því að safnið hefur enga aðstöðu til slíkra viðgerða, hefur ekki einu sinni trésmíðaverkstæði eða aðra nauðsynlega hluti til að dytta að því, sem kann að bila. Myndirnar eru nú komnar aftur heim, og hefur viðgerðin tekizt mjög vel. Þá hefur það og gerzt í málinu, að á fjárlög hefur verið sett tæp millj. kr. til viðgerðar á safnahúsinu. Ætti það fé að hrökkva til þess að lagfæra mestu galla þessara húsakynna, þótt þeir fjármunir muni ekki nægja til þess að ráða varanlega bót á þessu húsnæði, þannig að listaverk megi teljast þar örugg fyrir skemmdum eða af völdum mishitunar og raka. Auk þess vanhagar safnið algerlega um sæmilega rúmgóðar og traustar geymslur. N. er því sammála um að hvetja ríkisstj. og aðra hlutaðeigandi eindregið til þess að leggja áherzlu á að leysa húsnæðisvandræði safnsins og veita því þá aðstöðu, sem íslenzkri myndlist sæmir. Virðist fyrsta verkefnið þá vera að tryggja lóð undir væntanlega byggingu fyrir safnið. Síðan mætti svo byggja hús í áföngum, t.d. byrja á málverkageymslu, síðar sýningarsal og svo halda áfram, eftir því sem efni stæðu til.
Þó mér af gefnu tilefni hafi orðið tíðrætt um byggingarmál safnsins, snerta þau þó ekki þetta frv., sem n. mælir einróma með, að verði samþ. óbreytt.