10.03.1969
Efri deild: 56. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í B-deild Alþingistíðinda. (648)

11. mál, Listasafn Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Þetta frv. um Listasafn Íslands er komið frá hv. Nd. og var þar samþ. shlj. eftir shlj. meðmælum hv. menntmn. d. Þetta frv. er eitt frv. um endurskoðun á löggjöf Alþ. um söfn þjóðarinnar. Fyrir Alþ. liggja einnig frv., eins og hv. dm. er eflaust kunnugt, um nýja lagasetningu fyrir Landsbókasafn, Þjóðskjalasafn, Handritastofnun og Þjóðminjasafn, og eru þau öll til meðferðar í annarri hvorri deild Alþ. Meiningin með þessari endurskoðun safnalöggjafarinnar er að sameina hana. Sum l. voru tiltölulega nýsett, og á það við um þetta frv., sem hér er til umræðu. Lögin um Listasafnið voru sett 1961 og eru því aðeins 8 ára gömul. Önnur lög voru aftur á móti áratuga gömul og því brýnust nauðsyn til þess að endurskoða þau. En eins og að líkum lætur með jafn nýsett lög eins og þau, sem nú gilda um Listasafnið, þá var ekki rík ástæða til breytinga á þeirri löggjöf, enda eru breytingarnar, sem hér er um að ræða, mjög smávægilegar. Það er reyndar aðeins um það að ræða, að í gildandi lögum segir, að skipa skuli safnvörð og annað nauðsynlegt starfsfólk, þegar fé er veitt til þess í fjárl. En í þessu frv. er þetta orðað á þann hátt, að safnverði og annað nauðsynlegt starfslið skuli skipa, þegar fé er veitt til þess á fjárl. Breytingin er m.ö.o. aðeins sú, að í gildandi lögum er gert ráð fyrir aðeins einum safnverði, en í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að þeir geti verið fleiri, ef Alþ. ákveður svo í fjárl.

Hitt atriðið, sem breytt er, er ákvæði gildandi laga um kosningu varamanna í safnráð. En í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að skýrt komi fram sú meginregla, að varamenn skuli ekki kosnir sérstaklega, heldur verði þeir varamenn, sem næstflest atkv. hljóta við kjör aðalmanna. Í gildandi lögum eru ákvæði um þetta ekki alveg skýr, en lögskýringin varð þó sú á ákvæðum gildandi laga, að kjósa skuli bæði aðalmenn og varamenn sérstaklega, þannig að ef um skoðanaágreining er að ræða meðal listamanna, sem kjósa fulltrúa í safnráð, ef þar myndast meiri hl. og minni hl., þá fær meiri hl. alla aðalmenn og líka alla varamenn. Þessi skipan hefur valdið nokkrum ágreiningi meðal listamanna, og því hefur þótt eðlilegt að breyta þessu á þann hátt, að varamenn skuli vera þeir, sem næstflest atkv. hljóta, þ.e.a.s. aðalmenn verða fulltrúar þess meiri hl., sem kann að myndast, en varamennirnir verða fulltrúar minni hl., sem kann að eiga sér stað. Er safnráðið sammála um að mæla með þessari breytingu, og það hefur einnig verið tryggt, að listamenn séu henni fylgjandi og telja hér vera um lýðræðisleg sjónarmið að ræða.

Þetta eru þær breytingar, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, og féllst hv. Nd., eins og ég gat um áðan, á það, að þessar breytingar væru eðlilegar. Ég vona, að það verði einnig niðurstaðan hér í hv. Ed.

Við 2. umr. þessa máls bar það á góma í framhaldi af heimsókn hv. menntmn. Nd. í Listasafnshúsið eða húsakynni Listasafnsins í Þjóðminjahúsinu, að ástand Þjóðminjasafnsbyggingarinnar er ekki eins gott og vera skyldi. Það átti sér stað óhapp í júlímánuði s.l., þegar í ljós komu verulegir gallar á hitakerfi og hitalögn í húsi Þjóðminjasafnsins. Það varð um nokkurn vatnsflaum að ræða á efstu hæð hússins, þar sem einmitt Listasafnið er til húsa, og urðu nokkrar skemmdir á nokkrum málverkum. Þetta var tilefni til þess, að þegar í sumar voru gerðar ráðstafanir til þess í fyrsta lagi að senda þessi málverk til viðgerðar, og þeirri viðgerð er þegar lokið, og auk þess að gera við húsið, eins og hægt var, til bráðabirgða til þess að koma í veg fyrir, að slíkt gæti endurtekið sig. En jafnframt var efnt til allsherjar athugunar á húsinu, sem leiddi það í ljós, að á því hafa frá byrjun, frá því að það var byggt á stríðsárunum, verið ýmsir gallar, sem síðan hefur sumpart þegar verið bætt úr og sumpart hefur verið gerð nákvæm framkvæmdaáætlun um, hvernig skuli bætt úr til frambúðar. Það var samþykkt aukafjárveiting í þessu skyni þegar í stað í sumar, þannig að ekki hefur staðið á fjárveitingum til þess að bæta húsið eins og kostur er, og Alþ. brást mjög vel við fjárlagabeiðni menntmrn. um fé til viðgerða á húsinu, og er í fjárl. yfirstandandi árs meira en 1 millj. kr. fjárveiting til slíkra viðgerða, en talið er, að í heild muni það kosta ekki minna en 5 millj. kr. Hins vegar er ekki hægt að vinna þær allar saman á einu ári, jafnvel þó að öll sú fjárhæð væri til ráðstöfunar þegar í stað.

Í hv. Nd. urðu nokkrar umr. um ástand Þjóðminjasafnshússins, en allir hljóta að hafa á því mikinn áhuga, hvernig því máli er í raun og veru háttað, þar sem í Þjóðminjasafnshúsinu eru geymd m.a. elztu menningarverðmæti, sem íslenzka þjóðin á, þ.e.a.s. fornminjar þjóðarinnar og listaverk hennar. Ég lét þar orð um það falla, og byggði það á ummælum eins af þeim sérfróðu mönnum, sem skoðuðu húsið á s.l. sumri, að það kynni að vera ástæða til þess að draga í efa, að Þjóðminjasafnshúsið yrði um alla framtíð talið hæft til þess að vera aðalgeymsla fyrir þau verðmæti, sem nú eru í húsinu. Úr þessum ummælum mínum hér var gert meira í blöðum heldur en ég hafði eða ég tel ástæðu til þess að gera, og ég hef orðið var við það, að þau hafa af hálfu sumra verið skilin þannig, að hér sé miklu, miklu meiri voði á ferðum heldur en raunverulega er. Ég bað því húsameistara ríkisins, sem er aðaltrúnaðarmaður ríkisins varðandi ríkisbyggingar, er sjálfur sérfróður um byggingarmál og hefur auk þess á að skipa sérfróðum mönnum í þessu efni, ég bað hann að gera skýrslu um ástand Þjóðminjasafnshússins, sem ég mundi síðan gera hinu háa Alþ. grein fyrir, þegar þetta frv. kæmi til 1. umr. hér í þessari hv.d. Og ég ætla nú að leyfa mér með leyfi hæstv. forseta að lesa þessa grg. E.t.v. verður réttast að senda blöðum, útvarpi og sjónvarpi hana til birtingar alla eða einhvern útdrátt úr henni, því að ég tel mjög mikilvægt, að íslenzkur almenningur sé ekki í neinum vafa um það, hvað hér er á ferðinni, hvað hefur gerzt og hvað búið er að gera til úrbóta, hvað hægt er að gera til úrbóta og hvert raunverulegt ástand þessarar byggingar er sem framtíðarbyggingar fyrir fornminjar og sem bráðabirgðabyggingar fyrir listaverk þjóðarinnar. En skýrsla húsameistara ríkisins um þetta efni hljóðar þannig með leyfi hæstv. forseta:

„Í júlímánuði 1968 komu í ljós gallar á hitakerfi og hitalögn í húsi Þjóðminjasafnsins, er m.a. urðu þess valdandi, að vatn, sem flaut úr lofttæmdum loka á efstu loftplötu og rann niður veggi í málverkageymslu Listasafns ríkisins, sem er til húsa á efri hæð Þjóðminjasafnsins, olli skemmdum á nokkrum málverkum. Embætti húsameistara ríkisins var af forstöðumönnum Þjóðminjasafnsins falið að kanna orsakir þess, sem skeð hafði, og gera þegar í stað ráðstafanir til þess að stöðva frekari skemmdir og sjá um lagfæringu á því, er þeim hafði valdið. Forstöðumaður byggingaeftirlitsins kvaddi til aðstoðar Svein Torfa Sveinsson verkfræðing, en skýrsla þeirra um málið fer hér á eftir ásamt því, sem þegar hefur verið gert til þess að bægja frá hættu á frekari skemmdum í húsinu af völdum þeirra galla, sem fram hafa komið í hitakerfinu, og því, sem endurbæta þarf, þannig að öruggt verði.

Við athugun tilkvaddra sérfræðinga varð þegar ljóst, að mjög skorti á, að hitalögn hússins væri sem skyldi, og þótt allt fram til þessa hafi eigi komið að sök, er orsakanna að leita til hins enska fyrirtækis, er á sínum tíma var falið að sjá um verkið í öruggri trú um, að það væri starfi sínu vaxið. Þótt hér hafi óheppilega til tekizt, sem þó engan veginn gat verið séð fyrir, og nauðsynlegar lagfæringar á hitakerfi hússins í heild séu allkostnaðarsamar, þá tel ég enga minnstu ástæðu til þess að óttast, að Þjóðminjasafnshúsið sé ekki og verði til frambúðar öruggur samastaður þeirra verðmæta, sem í safninu eru, og þá fyrst og fremst fyrir muni Þjóðminjasafnsins, sem húsið er byggt fyrir. Það er engan veginn óalgengt, að ýmsir gallar komi fram í eldri húsum, en úr þeim má venjulega bæta, og svo er einnig hér. Við heildarathugun á húsinu að þessu gefnu tilefni komu einnig í ljós nokkur atriði, sem bæta verður úr og falla undir eðlilegt viðhald á hinni rúmlega 20 ára gömlu byggingu. Sum þessara atriða eru minni háttar, en önnur mikilvæg og er þar helzt frágangur þakbrúnar, sem brýnust nauðsyn er að bæta hið fyrsta og má raunar eigi lengur bíða. Rennur eru steyptar í þakbrúnina, eins og algengast var á þeim tíma, þegar húsið var byggt, en víðast verið rifið niður og endurbætt, þegar gallar þessa fyrirkomulags urðu ljósir. Allmikið er af sprungum í þakbrún, er gætu verið lekar, þannig að regnvatn kæmist í gegnum þær. Lagfæring þessi er einföld, en kostnaðarsöm, og er áætlun um það í skýrslum þeim, sem hér fara á eftir. Breytingar á gluggum þyrfti að athuga, þannig að koma megi við tvöföldu gleri, sem lítið var tíðkað á þeim tímum, sem húsið var byggt. Annað það, sem æskilegt væri að gera og hlýtur að koma, er loftræstikerfi í húsið með ákveðnu rakastigi fyrir safngripi. Nánari grein fyrir þessum atriðum er einnig gerð í meðfylgjandi skýrslum. Um aðbúnað Listasafns ríkisins á efri hæð hússins er það að segja, að hann er ekki sem skyldi. Húsið er ekki ráðgert sem Listasafn þeirrar stærðar, sem þar er, og af sömu ástæðum eigi verið séð fyrir neinu teljandi athafnasvæði, svo sem nægilegu geymslurými utan sýningarsala, er hlýtur að vera höfuðskilyrði fyrir Listasafn ríkisins, og hin aukna geymsluþörf þrengir að sýningarsvæði í safninu. Á meðan sjálfstætt Listasafn er ekki byggt, verður að sjá fyrir nægu geymslurými á aðgengilegum stað utan við núverandi húsnæði safnsins. Enda þótt nú hafi verið komið í veg fyrir hættu á frekari skemmdum af völdum galla í hitakerfi, verður engu að síður að flytja geymslur safnsins í annan stað, er uppfyllir þau skilyrði, sem að framan greinir, til bráðabirgða Allt að 1200–1400 málverkum þarf þannig að koma fyrir í aðgengilegri geymslu. Menntmrh. hefur óskað eftir því, að í samráði við safnnefnd, safnráð Listasafns ríkisins, verði þegar leitað slíkra möguleika, og liggja fyrir till. og áætlanir um þá lausn.

Hörður Bjarnason.“ Þessari skýrslu fylgja síðan langar sérfræðiskýrslur, sem ég sé ekki ástæðu til þess að lesa yfir öllum hv. dm. en mun að sjálfsögðu láta menntmn. d. fá til athugunar. Það er skýrsla um hitalögnina í húsinu, um loftræstingarkerfi, um glugga, um þakskegg, um einangrun þaksins og sem till. til úrbóta um hitalögn, um loftræstingarkerfi, um glugga, um þakskegg og þakeinangrun. Síðan fylgir kostnaðaráætlun fyrir þessar framkvæmdir allar, og er niðurstaða hennar 5 millj. 980 þús. kr.

Hér er um að ræða þá kostnaðaráætlun, sem gerð var á s.l. sumri að beiðni minni strax eftir að gallarnir komu í ljós. Það er gamla kostnaðaráætlunin, sem er upp á 5 millj. 980 þús. kr. Hún hefur síðan verið endurskoðuð vegna þeirra breytinga á verðlagi, sem orðið hafa síðan, og er þessi kostnaðaráætlun talin muni hækka hér í viðbótarskýrslu um 1403 þús. kr., og síðan er hér um að ræða hina endurskoðuðu kostnaðaráætlun. Og þá er hér enn fremur skýrsla um þær breytingar, sem þegar er búið að gera á húsinu til þess að koma í veg fyrir, að það, sem gerðist í júli s.l., geti gerzt aftur. Eins og kemur fram í niðurlagi skýrslu húsameistara ríkisins, er húsameistaraembættið í samsamráði við safnráð og forstjóra Listasafnsins og menntmrn. að leita að hentugu húsnæði, sem þjónað gæti sem geymslur, gott geymslurými fyrir safnið, ásamt pökkunaraðstöðu og aðstöðu til skoðunar á myndum. Þegar heppilegt húsnæði hefur fengizt fyrir þetta, mun að sjálfsögðu sýningarrými safnsins stækka sem því svarar, að nokkrir salir eru nú notaðir á efri hæðinni fyrir geymslur. Þeir mundu þá verða útbúnir sem sýningarsalir, enda alveg sama eðlis og þeir aðrir hliðarsalir, sem á efri hæð Þjóðminjasafnshússins eru, svo að þegar geymsluaðstaða er fundin nógu góð annars staðar, mun sýningarrými safnsins stækka sem því nemur, sem nú er tekið undir geymslur í því húsnæði, sem Listasafn Íslands hefur til umráða. Með því að hrinda þessum fyrirætlunum í framkvæmd vona ég, að segja megi, að stigið hafi verið stórt spor til þess að bæta úr þeim þrengslum, sem Listasafnið býr nú við, og íslenzk þjóð muni fá eðlilega og nauðsynlega bætta aðstöðu til þess að skoða þau ágætu listaverk, sem listasafn ríkisins á, en þeim hefur fjölgað mjög á undanförnum árum í kjölfar aukinna fjárveitinga til safnsins til kaupa á íslenzkum listaverkum.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að óska þess, að máli þessu verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn. og endurtek, að ég mun láta form. hennar í té þau gögn, sem ég nú hef greint hv. þd. frá.