10.03.1969
Efri deild: 56. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í B-deild Alþingistíðinda. (650)

11. mál, Listasafn Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég skal með ánægju reyna að svara með fáeinum orðum þeim spurningum, sem hv. þm. beindi til mín. Hann spurði, hve mikið væri í byggingarsjóði Listasafnsins. Ég hef því miður ekki með mér reikninga byggingarsjóðsins, en ég held, að ég muni það örugglega rétt, að í honum sé nú nokkuð á 6. millj. kr. Hann spurði, hvort ákvörðun hafi verið tekin um lóð fyrir safnið. Ákvörðun um það efni hefur ekki verið tekin enn. Eins og auðvitað öllum hv. dm. er ljóst, er það Reykjavíkurborg, sem ráðstafa mundi lóð undir safnið. Það hafa oftsinnis átt sér stað viðræður milli menntmrn. og borgaryfirvalda um þetta mál, og auk þess hefur það verið þrautrætt í safnráði Listasafnsins, sem að sjálfsögðu er sá aðili, sem eðlilegast er, að geri tillögur um lausn þessa máls. En sannleikurinn er sá, að engum aðila hefur sýnzt vera nauðsyn til þess að taka endanlega ákvörðun í jafn vandasömu máli og staðarákvörðun fyrir Listasafnið er, meðan ekki er meira fé til ráðstöfunar til byggingarinnar en það sem nú er, nokkuð á 6. millj. kr. Og það er að sjálfsögðu Alþ., sem ákveður það, hvenær Listasafn verður byggt, en ekki ríkisstj., hvað þá menntmrn. eða safnráðið sjálft. Öll ákvörðun í þessu máli er auðvitað í höndum Alþ., sem segir til um það með sínum fjárveitingum, hvenær Listasafnshúsið skuli byggt. Ég held, að allir hljóti að vera sammála um það, að með 5 millj. kr. í hendinni er ekki ráðlegt að hefjast handa um byggingu fyrir Listasafnið. Endanlegar ákvarðanir um það, hvar sú bygging skuli vera eða hvernig hún skuli vera, er ekki eðlilegt að taka fyrr en Alþ. hefur veitt mun meira fé í þessu skyni heldur en þegar hefur átt sér stað. En því er ekki að leyna, að um það er nokkur ágreiningur meðal þeirra manna, sem áhuga hafa á málinu í safnráði, og meðal listamanna almennt, hvar ætla skuli væntanlegu Listasafnshúsi stað í bænum. Ýmsir staðir hafa komið til greina og verið mjög ýtarlega ræddir og þá fyrst og fremst Öskjuhlíðin annars vegar og lóðarými við Skerjafjörð hins vegar. Fleiri staðir hafa einnig komið til greina. Þess er að vænta, að frekari umræður um þetta mál leiði til meiri samstöðu um hugmyndir í þessu efni, heldur en nú á sér stað. Og ég tel, að frekari umr. og athuganir geti aðeins orðið til góðs. Að knýja fram ákvörðun nú, meðan allir vita, að ekki er raunhæft að hefja byggingu slíkrar byggingar, mundi geta orðið til þess, að ákvörðun yrði tekin, sem enn meiri ágreiningur eða deilur kynnu að verða um síðar. Þess vegna held ég, að enn sem komið er sé rétt að halda áfram viðræðum innbyrðis hjá listamönnum sjálfum og milli þeirra, menntmrn. og borgaryfirvalda í þeirri von, að sem víðtækust samstaða fáist um málið.

Þá var þriðja spurningin um, hvort gerðar hafi verið athuganir á því yfirleitt, hvernig leysa eigi húsnæðismál safnsins. Og hér er einmitt um að ræða aðra ástæðuna fyrir því, að ekki hefur verið talið rétt að knýja fram endanlega ákvörðun um staðarvalið. Alveg eins og kom fram í spurningu hv. þm., eru uppi meðal listamanna og arkitekta nokkuð ólíkar skoðanir um það, hvernig taka skuli á þessu máli í grundvallaratriðum, þ.e.a.s. eins og hann orðaði það alveg réttilega í sinni ræðu, hvort stefna eigi að því strax að byggja eitt, stórt listasafn, sem rúmi þar alla myndlist þjóðarinnar, þ.e.a.s. þann hluta af henni, sem er í opinberri eigu, þ.e.a.s. bæði myndir og höggmyndir, eða hvort eigi að keppa að því að hafa söfnin fleiri og minni og blanda e.t.v. ekki saman málverkum annars vegar og höggmyndum hins vegar, heldur ætla höggmyndum stað víðs vegar um bæinn í almenningsgörðum og öðrum slíkum stöðum, en ekki í forgarði stórs Listasafnshúss eða stórrar listahallar. Þetta mál er langt frá því að vera útrætt enn, og m.a. og ekki síður af þessum sökum eða jafnhliða af þessum sökum hef ég ekki talið tímabært að knýja á borgaryfirvöld um það, að endanleg afstaða sé tekin um það, hvar Listasafnið skuli vera. Ég tel eðlilegt, að listamenn og ríkisvaldið hafi fram að bera ákveðnari óskir í þessum efnum en þeir hafa nú á þessari stundu, áður en óskað er eftir endanlegri afstöðu borgaryfirvalda til málsins. Þess má og geta, að það svæði við Öskjuhlíðina, sem margir eru mjög hlynntir sem framtíðarstað fyrir Listasafn, er ekki enn þá að öllu leyti skipulagt. En þess vildi ég geta í framhaldi af svari mínu við þessum spurningum hv. þm., að það er síður en svo, að ekki sé hitt og þetta á döfinni í Reykjavík, sem bætir aðstöðu íslenzkrar myndlistar. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að reisa á Miklatúni stórt stórhýsi, sem ætlað verður íslenzkri myndlist. Er þar annars vegar um að ræða svo nefndan Kjarvalsskála, þ.e.a.s. skála, sem Reykjavíkurborg mun kenna við þennan mesta núlifandi myndlistarmann þjóðarinnar og ætlað er til sýningar á verkum hans eins í framtíðinni.

Hins vegar er um að ræða almennan sýningarsal, sen. gert er ráð fyrir, að komi í staðinn fyrir sýningarsalinn hér við hlið alþingishússins, sem núna er horfinn, en verður miklu stærri og auðvitað miklu fullkomnari en sá salur var. Að byggingu þessa húss munu standa sameiginlega Reykjavíkurborg, myndlistarmenn og ríkisstj. eða ríkisvaldið. Og þessi salur er í byggingu. Þegar hann verður fullbyggður, fæst ágætt sýningarrými, sem verður til afnota fyrir íslenzka listamenn og þeir sjálfir eru aðilar að fjárhagslega og munu verða meðstjórnendur að, svo að við tilkomu þessa húss má segja, að sýningarrými fyrir myndir í höfuðstað landsins muni stórbatna frá því, sem verið hefur undanfarna áratugi. Þá má þess enn fremur geta, að hið svo nefnda Kjarvalshús er fullbyggt, og hefur listamaðurinn fengið umráð þess, þótt heilsu hans sé því miður þannig háttað nú, að hann dveljist á sjúkrahúsi, en í því húsi er í raun og veru líka um að ræða sýningaraðstöðu, þó auðvitað í miklu smærri stíl sé heldur en þeirri, sem verið er að koma upp á Miklatúni.

En hitt vil ég að síðustu alveg taka undir með hv. fyrirspyrjanda, sem ég veit, að hefur einlægan áhuga á þessu máli, að það væri æskilegt, að fjárveitingar Alþ. í byggingarsjóð Listasafnsins ykjust verulega frá því, sem verið hefur, og ákvörðunum um framtíðarskipulag Listasafnsbyggingar í höfuðstaðnum og svo enn fremur hvar Listasafnið skuli vera, þeim ákvörðunum öllum saman sé hraðað, og ég mun fyrir mitt leyti vinna að því, að svo verði.