27.03.1969
Neðri deild: 71. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (664)

201. mál, lántökuheimildi fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég hef óskað eftir hraðri afgreiðslu þessa máls og skal því ekki efna til umr. um það, þó að margt hefði verið í ræðu hv. 1. þm. Austf., sem fróðlegt hefði verið að gera að umtalsefni. En það er svipað með það, sem kom fram í ræðu hans eins og birtist í umr. við síðasta mál, sem var á dagskrá hér í dag, að þarna greinir okkur í grundvallaratriðum á um stefnuna, annars vegar ríkisstj. og stuðningsmenn hennar og hins vegar stjórnarandstöðuna, ekki aðeins í efnahagsmálum, heldur einnig í fjármálum og peningamálum, og sé ég ekki ástæðu til þess að fara að hefja hér umr. um það atriði. Það gefst tækifæri og tóm til þess síðar.

Ég vildi aðeins láta í ljós algert samþykki mitt við yfirlýsingu hv. síðasta ræðumanns um notkun hins erlenda fjármagns. Ég hef lýst því yfir hvað eftir annað og tek undir það með honum, að þegar hagur okkar er slíkur, sem hann er nú, verður að gæta mikillar varúðar við töku erlendra lána og af þeim sökum megi ekki taka þau nema til framkvæmda, þar sem annaðhvort er um sköpun nýrra gjaldeyrisverðmæta að ræða beinlínis eða óbeinlínis á þann hátt, að við spörum gjaldeyri, sem við höfum áður þurft að eyða til viðkomandi þarfa. Þetta get ég fullkomlega tekið undir með honum.

Ég vil svo aðeins að lokum segja það, að það er reginmisskilningur, að það sé skoðun ríkisstj., að ekkert sé hér hægt að gera nema taka erlend lán. Við teljum, að tvímælalaust eigi að nota allt það innlenda fjármagn, sem mögulegt er að nota. Og það er vissulega gert, en að því marki að þetta innlenda fjármagn sé ekki prentun seðla, sem ekkert verðgildi hafa að baki sér og aðeins verðbólgumyndandi peningaútgáfa. Við teljum, að forsenda þess, að við komumst upp úr þeirri lægð, sem við nú erum í, sé sú, að við byggjum upp traust efnahagskerfi, sem byggist á raunverulega styrkum efnahag og réttri stefnu í peningamálum og fjármálum og ef út af þeirri stefnu er brugðið, sé vonlaus fyrir okkur öll þessi uppbygging, sem við þurfum nú svo mikið á að halda. Það er með hliðsjón af þessu, sem við tölum um að taka erlend lán. Og ástæðan til þess, að við fáum erlend lán — það er rétt að leggja áherzlu á það — er fyrst og fremst sú, að það er skoðun erlendra aðila og alþjóðlegra fjármálastofnana og annarra, sem til þekkja hér á Íslandi, að við höfum í meginatriðum fylgt réttri efnahagsmálastefnu á undanförnum árum, stefnu, sem tvímælalaust hefur leitt til þess, að okkar atvinnuvegir hafa byggzt upp með meiri hraða en þeir nokkru sinni áður hafa gert, og þetta er orsök þess, að við getum fengið þessi lán. Ef við hyrfum frá þessari stefnu, er ég ósköp hræddur um, að það yrði ekki aðeins erfitt að starfrækja okkar þjóðarbúskap hér séð frá almennum sjónarhóli, heldur einnig mundi taka fyrir þá möguleika, sem við hefðum til þess að fá erlendar lánastofnanir til að veita okkur lán til þeirrar uppbyggingar, sem er brýn nauðsyn, að við getum ráðizt í hér til að tryggja næga og örugga atvinnu í landinu.