22.10.1968
Neðri deild: 5. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (754)
3. mál, læknaskipunarlög
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Læknaskipunarlögunum var breytt 1965 með það fyrir augum að leitast við að bæta úr læknaskortinum í landinu. Ég tel, að þá hafi verið stigið allmikið spor í þá átt, og flestir munu hafa gert ráð fyrir, að það bæri árangur. Þetta var fyrst og fremst gert með því að koma á staðaruppbót á laun lækna í þeim héruðum, sem sízt voru eftirsótt. Nam þessi staðaruppbót helmingi launa, en það þýðir, að laun þessara lækna voru hækkuð um 50%. En þar að auki voru þeim veitt ýmis önnur fríðindi, mjög mikilsverð. Þetta sýndist því eiga að geta gefið nokkurn árangur í því að draga úr læknaskortinum, og tilraunin var að mínum dómi lofsverð af hálfu stjórnarvalda og Alþ.
Síðan eru liðin 31/2 ár og árangur kominn í ljós. En árangurinn er bókstaflega enginn. Ástandið í þessum málum er sízt betra nú, þar sem ég þekki til, ef það er ekki verra en það var 1965. Hvað snertir Vestfjarðakjördæmi, þá er ástandið þannig núna: Í kjördæminu eru 10 læknishéruð. Í þremur þeirra eru læknar eins og til er ætlazt. Það er í Ísafjarðarlæknishéraði, Bolungarvíkurlæknishéraði og Patreksfjarðarlæknishéraði. Í hinu fjórða, Hólmavíkurlæknishéraði, er að vísu læknir og hefur verið oftast að undanförnu, þótt sífelld mannaskipti hafi orðið, en sá, sem er þar núna, er ekki ráðinn nema til 15. júní næsta vor. Þá eru tvö héruð, sem eru að verða læknislaus, Flateyrarhérað, en þaðan er ráðgert að læknirinn fari eftir 3 daga, og Þingeyrarhérað, en þaðan mun læknirinn fara 22. des. Og loks eru 4 læknishéruð læknislaus; Reykhólahérað, Bíldudalshérað, Suðureyrarhérað og Súðavíkurhérað. Eins og bezt verður vitað núna, verða 6 læknishéruð af 10 læknislaus fyrir jól. Og þetta er verra ástand en var 1965. Þá má svo bæta því við, að 1965 voru tvö læknishéruð lögð niður í Vestfjarðakjördæmi: Flateyjarlæknishérað á Breiðafirði og Árneslæknishérað í Strandasýslu. Þau voru sameinuð öðrum læknishéruðum. Það er því ekki læknislaust þar, fyrst héruðin eru úr sögunni. En fólkið er alveg jafnlæknislaust þar eftir sem áður. Mér fannst þá og finnst það enn torskilin ráðstöfun til þess að bæta úr læknaskorti að leggja niður héruð út af fyrir sig. Með þeirri ráðstöfun er þurrkuð út sú von, að síðar komi læknar í þessi héruð, sem við er að búast, þar sem þau eiga ekki að vera lengur til, og það má nærri geta, hvaða framfarir hafi fylgt því fyrir Breiðfirðinga, að lagt var niður Flateyjarhérað og sameinað Reykhólahéraði, sem er læknislaust. Þá er nú skörin farin að færast upp í bekkinn. Auðvitað var hægt að gera þá skipan á þá, að nágrannalæknar þjónuðu þessum héruðum, meðan þau væru læknislaus, eins og þeir þjóna þeim núna eftir sameininguna.
Um Patreksfjarðarhérað er það að segja, að ég ætla, að það hafi verið samkv. 3. gr. núv. læknaskipunarlaga, sem sú breyting var gerð á, þegar læknir fór frá Bíldudal, að ráðnir voru tveir læknar til Patreksfjarðar og Bíldudalur sameinaður á þann hátt, að þeir sitja báðir á Patreksfirði og þjóna þessum tveimur héruðum. Þarna var því verið að stofna til læknamiðstöðvar á vissan hátt. Tveir læknar á sama stað með sjúkrahús og lyfjabúð og aðra aðstöðu, að ég ætla, allsæmilega. Ég held, að það hafi verið snemma á árinu í fyrra, sem þessi ráðstöfun var gerð. En annar læknirinn er nú farinn og eftir stendur Patreksfjarðarhérað með einn lækni, alveg eins og áður var, en enginn er á Bíldudal. Þetta spáir að vísu ekki góðu um það, að læknamiðstöðvar leysi allan vanda, og þó tel ég, að það sé réttmæt ráðstöfun og sjálfsagt að reyna þá skipan. Ég veit náttúrlega ekki, hve lengi þetta stendur, en svona er það núna. Einn læknir fyrir alla Vestur-Barðastrandarsýslu, eitt sveitarfélag í Vestur-Ísafjarðarsýslu og sjúkrahús á Patreksfirði, þannig er nú ástandið.
Ég hef trú á því, að læknamiðstöðvar kunni að leysa úr þessu að einhverju leyti, og því er ég því mjög meðmæltur, að þeirri skipan verði komið á, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. En hins vegar er ég þeirrar skoðunar, að það sé engin þörf á því að vera að leggja niður læknishéruð, þó að þetta sé gert, og ég tel, að í 3. gr. núgildandi l. sé aðstaða til þess að koma þessari skipan á án þess að breyta læknaskipuninni. Í 3. gr. l. segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Ráðh. getur eftir till. landlæknis leyft héraðslækni að sitja annars staðar en á lögskipuðu læknissetri og ef nauðsyn krefur utan héraðs.“
Það er því hægt að láta 3–4 lækna, sem að vísu að forminu til eiga að þjóna ákveðnum læknishéruðum, sitja alla á sama stað. Og þá ætla ég, að grundvöllur sé kominn fyrir læknamiðstöð. Það þarf enga lagabreytingu, og meðan engin reynsla er á þetta komin, held ég að þetta sé skynsamlegra en fara að umturna lögunum. Þessu atriði beini ég alveg sérstaklega til þeirrar hv. n., sem fær þetta frv. til meðferðar.
Í 1. gr. þessa frv. segir, að áður en sameining læknishéraða komi til framkvæmda, skuli leita álits stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, Tryggingastofnunar ríkisins, stjórnar Læknafélags Íslands og svo hlutaðeigandi héraðslækna. En það á ekki að leita álits fólksins í héruðunum, sem á að leggja niður. Það á ekki að spyrja það að neinu, hvort því falli þetta vel eða illa. Það á ekki að spyrja sveitarstjórnirnar eða neina forvígismenn þessara byggðarlaga um það, hvort þeir vilji slíka sameiningu, hvort hún henti þeim. Það þykir mér alveg furðulegt. Og í grg. um þetta ákvæði segir, með leyfi hæstv. forseta: „Er ekki sjáanlegt í fljótu bragði, að fleiri aðilar en upp eru taldir komi hér til greina,“ — það komi ekki til greina að spyrja aðra en þessa. Ég hélt, að það ætti að byrja á því að spyrja forsvarsmenn fólksins í héruðunum um það, hvort það sætti sig við þessa ráðstöfun eða ekki, áður en farið er að gera eitthvað, og þá kröfu geri ég til hv. n., að hún lagfæri þetta ákvæði.
En eitt þýðingarmesta skilyrði fyrir því, að læknamiðstöð geti komið að tilætluðum notum, er, held ég tvímælalaust, að um greiðar samgöngur sé að ræða innan hins nýja og stóra læknahéraðs, — greiðar samgöngur með viðeigandi samgöngutækjum, þeim sem bezt gætu hentað í þessu skyni. Við skulum hugsa okkur, að það sé komin læknamiðstöð á Ísafirði, eins og sótt hefur verið um, og sameinuð því héraði, Ísafjarðarhéraði, þá væntanlega læknislausu héruðin, sem þar eru í nágrenninu. Þau eru 4: Súðavíkur-, Suðureyrar-, Flateyrar- og Þingeyrarlæknishérað. Þarna gæti komið þá upp læknamiðstöð með 4 eða 6 læknum eða þess háttar. En hugsum okkur svo, að það þurfi skyndilega að fá læknishjálp til manns í Dýrafirði. Yfir tvær heiðar er að fara, og þetta er að vetri til, í illviðrum og báðar heiðarnar ófærar. Hvernig er nú sjúklingurinn settur? Ekki er um það að ræða að fara á landi, hvorki að ná til læknisins né flytja sjúklinginn. Það er hugsanlegt, að það sé hægt að fara á sjó, en það er mjög löng leið og ill í vetrarveðrum og auk þess mjög vafasamt, að það þætt fært að leggja sjúkling í slíkan flutning. Mér sýnist, að það kæmu ekki til greina, þegar svona stendur á, önnur farartæki en flugvélar eða þyrlur, og því legg ég áherzlu á það, að þegar farið verður að sameina mörg héruð í eitt, verði að sjá fyrir flutningum á sjúklingum og læknum, ef þetta á að bera árangur. Annars er voði á ferðinni að mínum dómi.
Niðurstöður mínar í þessu máli eru því þær: Í fyrsta lagi sé ónauðsynlegt að breyta núverandi læknaskipun til þess að koma á læknamiðstöðvum, en þó sé réttmætt að reyna þessa skipan og sjá, hvernig hún gefst. Í öðru lagi sé nauðsynlegt að leita álits sveitarstjórna þeirra héraða, sem á að sameina, áður en nokkuð er gert eða aðhafzt í því máli. Og í þriðja lagi, og það er kannske erfiðasta atriðið, að leitast við að tryggja örugga og fljótvirka flutninga á sjúklingum og læknum innan þessara nýju og stóru læknishéraða, sem ráðgerð eru í þessu frv. Þessum atriðum beini ég sérstaklega til hæstv. ráðh. og hv. n., sem fær þetta frv. til meðferðar.