14.04.1969
Efri deild: 73. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (776)

3. mál, læknaskipunarlög

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um breyt. á læknaskipunarlögum er komið frá Nd. Þetta var eitt af fyrstu málum þingsins, og má því kannske furðu sæta, að það skuli ekki vera fyrr komið til Ed. Ég vil gefa á þessu nokkra skýringu. N. í Nd. hafði lokið afgreiðslu málsins fyrir jól og það var þá tekið þar til 2. umr., en nokkur ágreiningur kom þá upp í sambandi við málið og brtt. voru fluttar af hv. þm. En ég taldi mjög æskilegt að freista þess að ná samkomulagi um málið og óskaði þá eftir því, að afgreiðslu málsins yrði frestað og þinghléið notað til þess að reyna að ná samstöðu um málið.

Það var svo upp úr áramótum, að þá unnu fulltrúar í dómsmrn. að því, í samráði við nm. í Nd. og þá þm. Nd., sem brtt. höfðu flutt, að samræma sjónarmið þeirra. Og sem betur fór lyktaði því máli þannig, að allsherjarsamkomulag varð um málið og málið afgreitt ágreiningslaust frá Nd. En allar þessar tilraunir til þess að ná samkomulagi um málið tóku lengri tíma heldur en ég hafði gert ráð fyrir, og því er málið hingað komið síðar en skyldi og ber að biðjast velvirðingar á því og skiljanlegt, að hvor deildin um sig vilji fá fyrr til sín mál, sem í öndverðu eru lögð fram, heldur en hér er raunin á. Hins vegar hefur hér verið unnið verulega að málinu með þeim hætti, sem ég leyfi mér að vænta, að geti orðið til þess að auðvelda mjög framgang málsins í þessari hv. d.

Meginatriði málsins er nú í þessu frv., að læknamiðstöðvar eru ráðgerðar sem sérstakar stofnanir, er veiti heilbrigðisþjónustu á tilteknu landssvæði, einu eða fleiri læknishéruðum, en það er hins vegar ekki forsenda fyrir stofnun læknamiðstöðvar eins og var í öndverðu, að sameining læknishéraða eigi sér þegar stað. Nú er ráðh. heimilt að stofna slíka læknamiðstöð samkv. till. landlæknis og eftir því, sem fé er veitt til þess á fjárl. Og áður en ákveðið er að stofna læknamiðstöð, á að leita álits hlutaðeigandi sveitarfélaga. Það var ekki í öndverðu, heldur sveitarstjórnarsambandsins, og till. voru um það að láta viðkomandi og hlutaðeigandi sveitarfélög fjalla um málið, og hefur verið fallizt á það. Einnig á að leita álits Tryggingastofnunar ríkisins og stjórnar Læknafélags Íslands, svo og hlutaðeigandi héraðslækna, ef héruð þau, sem stöðin á að þjóna, eitt eða fleiri, eru skipuð héraðslæknum. Síðan varð það að samkomulagi — það var ekki forsenda fyrir stofnun læknamiðstöðvar, að læknishéruð væru sameinuð að setja inn ákvæði, sem kemur hér fram í 4. mgr., að séu liðin 5 ár frá því, að læknamiðstöð samkv. 1. mgr. tók til starfa, verði svæði það, sem stöðin þjónar, eitt læknishérað, ef um fleiri en eitt læknishérað er að ræða, og ákveður ráðh. nafn hins nýja héraðs. Ákvæði þessarar mgr. gildir einnig, þegar svæði læknamiðstöðvar er stækkað. M.ö.o., eins og þetta frv. er nú, er gert ráð fyrir því, að áður en ákvarðanir séu teknar um sameiningu héraða, sem í raun og veru í framkvæmd hafa sameinazt um læknamiðstöð, skuli fást a.m.k. 5 ára reynsla á, hvernig þetta gefst, áður en heimilt er að taka hina endanlegu ákvörðun. Annars má segja, að það felist í þessu varúð, skynsamleg varúð, því að svo getur verið, að reynslan hafi á þessum tíma borið það með sér, að það sé ekki rétt að steypa saman læknishéruðunum, þrátt fyrir það, að það í öndverðu hafi verið ráðgert.

Um frv. að öðru leyti er svo það að segja og það var meginstefna þess í upphafi, að þegar læknamiðstöðvar eru reistar, í dreifbýli a.m.k., og þegar sameinuð eru fleiri en eitt læknishérað, beri ríkið allan stofnkostnað við læknamiðstöðina. Hins vegar eru tekin af öll tvímæli um það, að það geti einnig risið upp læknamiðstöðvar í þéttbýli eða kaupstöðum, og þá er gert ráð fyrir, að ríkið beri kostnað í sömu hlutföllum og við sjúkrahúsabyggingar. En í reyndinni hygg ég, að það muni í langflestum tilfellum verða svo í kaupstöðum og þéttbýli að öðru leyti, að læknamiðstöðvarnar yrðu hluti af sjúkrahúsabyggingum, sem þar er annað hvort verið að byggja eða verða byggð, svoleiðis að þar sé ekki óeðlilegt að hafa þetta ákvæði með þessum hætti.

Önnur ákvæði frv. skýra sig nú sjálf, og þarf ekki að fara um þau fleiri orðum. Ég vil aðeins geta þess, að með frv. í upphafi fylgdi uppkast að reglugerð um læknamiðstöðvar. Það uppkast þarf að sjálfsögðu að endurskoðast í ljósi þeirra breytinga, sem nú eru orðnar á frv. Ég held, að það sé nokkuð almenn samstaða um það og það sé sameiginlegt álit manna, að það að koma upp læknamiðstöðvum, hópstarfi eða samstarfi fleiri lækna geti verið í mörgum tilfellum verulegur þáttur í því að bæta læknisþjónustuna í landinu, bæði í dreifbýli og einnig í þéttbýli. Þetta hefur komið fram á ráðstefnum Læknafélags Íslands, bæði á s.l. hausti, haustið 1967, og í skrifum lækna og annarra áhugamanna um læknaþjónustuna í landinu, og um þetta var ekki ágreiningur við meðferð málsins í Nd.

Mér er að sjálfsögðu ljóst, að þó að komið verði upp læknamiðstöðvum, leysir það engan veginn allan vanda, sem okkur er á höndum í sambandi við læknisþjónustuna í dreifbýli, og sums staðar eru aðstæður þannig, að þær geta alls ekki leyst þann vanda, og verður ekki komið upp í þeim tilgangi, en þess vegna ber að líta á þetta frv. sem aðeins einn þátt í því að stuðla að betri læknisþjónustu í landinu. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að góð samstaða geti orðið um málið hér í þessari hv. d. og með hliðsjón af því verki, sem hefur verið lagt í það að sameina skoðanir manna í Nd. um málið, að hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, mætti eiga auðvelt með að afgreiða það með sem skjótustum hætti, einnig með hliðsjón af því, hversu nú er langt liðið á þing.

Ég vil að svo mæltu leyfa mér að leggja til, herra forseti, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.