10.04.1969
Efri deild: 71. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (800)
179. mál, ættleiðing
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Í 6. gr. l. um ættleiðingu frá árinu 1953 segir, að samþykki foreldra þurfi til ættleiðingar barns þeirra yngra en 21 árs. Með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er ætlunin að breyta þessu lagaákvæði þannig að færa þessi aldursmörk úr 21 ári niður í 20 ár. Þetta er til samræmis við lækkandi aldursmörk, sem samþ. voru á síðasta þingi, varðandi kosningarrétt,og kjörgengi, hjúskaparrétt og fjárræði o.fl., og felst ekki annað í þessu frv. en þetta eitt.
Þessu máli var vísað til allshn., og leggur nefndin til, að frv. verði samþ.