21.04.1969
Neðri deild: 79. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (808)
179. mál, ættleiðing
Frsm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Á síðasta Alþingi voru samþ. lög um lækkun á aldursmörkum að því er varðar kosningarrétt og kjörgengi og stofnun hjúskapar og fjárræði og þótti rétt, að sömu sjónarmið verði látin gilda um aldursmark það, sem um getur í 6. gr. l. um ættleiðingu.
Allshn. hefur haft þetta frv. til meðferðar og telur eðlilegt, að það verði samþ.