15.04.1969
Neðri deild: 77. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (821)
180. mál, stofnun og slit hjúskapar
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Frv. þetta hefur hlotið afgreiðslu í Ed., og það er sama eðlis og frv. það, sem ég mælti fyrir áðan, að því leyti, að það er verið að færa aldursmark úr 21 árs aldri niður í 20 ár. En á síðasta þingi var breytt l. um stofnun hjúskapar, þannig að 21 árs aldursmarkið var fært niður í 20 ár. En sennilega má segja, að yfirsézt hafi þá að gera sams konar breytingu, eins og hér er lagt til, á 2. mgr. 4. gr. l. um stofnun og slit hjúskapar. En þessi breyting hefur þýðingu að því leyti, að hún hefur áhrif á ábyrgð viðkomandi aðila í vissum tilfellum í sambandi við heitrof, ef um slíkt er að ræða, sem hann mundi þá ekki bera ábyrgð á nú innan 20 ára aldurs, en var áður þannig, að viðkomandi bar ekki ábyrgð á innan 21 árs aldurs.
Ég vil leyfa mér að leggja til, herra forseti, að máli þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.