14.11.1968
Neðri deild: 15. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (851)

9. mál, Landsbókasafn Íslands

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Mig langaði aðeins með örfáum orðum að taka undir það, sem hv. frsm. vék hér að, að í menntmn. var rætt um þann vanda, sem hlýzt af þröngum húsakynnum hinna vísindalegu bókasafna. Það stoðar lítið fyrir okkur að setja skynsamleg lög um starfsemi Landsbókasafns, ef húsakynni koma í veg fyrir það, að hægt sé að framkvæma slík lög að gagni. Um þetta varð alger samstaða í n. Ég bar fram þá hugmynd þar, að n. sem slík samþykkti sérstaka áskorun til hæstv. ríkisstj. þess efnis, að tekin yrði ákvörðun á þessu þingi um framkvæmdir, sem væru við það miðaðar, að einhver verulegur hluti nýs bókasafnshúss yrði kominn upp árið 1974 í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. En aðrir nm. töldu, að eðlilegra væri að fella þetta sjónarmið inn í nál. og það hefur verið gert. Þar stendur, að rík nauðsyn sé að taka sem fyrst ákvörðun um framtíð Landsbókasafns og Háskólabókasafns, gera áætlun um byggingu bókasafnshúss, er rúmi hin vísindalegu bókasöfn Íslendinga og stefna að því, að það verði reist í sambandi við 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Þetta er sem sé einróma álit menntmn., fulltrúa frá öllum flokkum. Um þetta er enginn ágreiningur í n. og ég hygg, að það sé enginn ágreiningur um þetta heldur í hinu háa Alþ.

En í sambandi við þetta hefði ég haft hug á því að beina örstuttri fsp. til hæstv. forsrh., ef hann væri hér nærstaddur. Ég vakti athygli á því hér áðan í nokkrum orðum, að menntmn. Nd. lýsir sameiginlega yfir því í nál. sínu, að gera þurfi sem fyrst áætlun um byggingu bókasafnshúss, er rúmi hin vísindalegu bókasöfn íslendinga og stefna að því, að hún verði reist í sambandi við 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Um þetta varð fullt samkomulag í n. og ég hygg, að þetta sé hugmynd, sem njóti mjög almenns fylgis hér á Alþ. Hins vegar er ljóst, að þessu verður ekki komið í verk nema um þetta verði tekin ákvörðun á þessu þingi, og þetta mál er líka þess eðlis, að ég hygg, að því verði ekki hrundið fram nema til komi frumkvæði frá hæstv. ríkisstj. Því vildi ég beina þeirri fsp. til hæstv. forsrh., hvort ekki megi vænta þess, að hæstv. ríkisstj. flytji till. um þetta mál á þessu þingi.