10.03.1969
Neðri deild: 62. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 837 í B-deild Alþingistíðinda. (882)
128. mál, fiskveiðar í landhelgi
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Áður en þetta mál fer til n., finnst mér rétt að taka undir þau aðvörunarorð, sem komu hér fram í ræðu hv. 4. þm. Austf. og hæstv. ráðh. tók reyndar undir að mjög verulegu leyti. Eins og kom fram í þeirri ræðu, sem hv. þm. Austf. flutti hér áðan, þá voru það einkum tvær ástæður, sem lágu til þess, að það bann, sem hér er lagt til að draga úr, var sett á sínum tíma. Önnur ástæðan var sú, að á þeim tímum voru oft söluerfiðleikar í sambandi við íslenzka fiskframleiðslu. Hin ástæðan var sú, og hún var jafnvel veigaminni, að menn óttuðust það, að ef erlend fiskiskip fengju aðstöðu til þess að leggja hér upp afla í verulegum mæli, þá mundi það auka mjög ágang útlendinga á íslenzk fiskimið, þar sem að sjálfsögðu var miklu styttra fyrir skipin að fara, þegar þau gátu lagt aflann á land hér í stað þess að fara með hann til heimalands síns í mikilli fjarlægð. Ég held satt að segja, að þetta hafi raunar verið aðalástæðan, jafnvel enn þá veigameiri heldur en hin.
Það gefur auga leið, að ef slíkar undanþágur væru veittar í verulegum mæli, þá mundi það verða til þess að auka ágang erlendra fiskiskipa á íslenzk fiskimið, en það er áreiðanlega eitt af því, sem við þurfum að gefa mikinn gaum. Og við verðum að reyna að koma í veg fyrir, að svo miklu leyti sem okkur er það unnt, að það verði um óeðlilegan ágang að ræða og aukinn frá því, sem nú er. Ég get tekið fram, að undir vissum kringumstæðum, þá er ég því ekki mótfallinn, að slík leyfi séu veitt, t.d. ef um atvinnuleysi er að ræða í vissum verstöðvum eða skort á hráefni, en ég álít, að þetta eigi að vera mjög takmarkað og það eigi að vera bundið því, að leyfið nái ekki til botnvörpuskipa. Þess vegna finnst mér það koma mjög til athugunar, að sú heimild, sem ráðherranum er veitt í því frv., sem hér liggur fyrir, verði þrengd. Þó að hæstv. ráðh., sem nú fer með þessi mál, hafi gefið yfirlýsingu um það, að hann vilji halda á þessum málum með gætni, þá er ekki víst, að það sama kunni að gilda um eftirmenn hans í þessu starfi og þess vegna er eðlilegt að hafa þessa heimild sem allra þrengsta.
Ég vil svo í sambandi við þetta beina þeirri fsp. til ráðh., hvort það hafi ekki komið til hans eða ríkisstj. einhver ósk um það frá Ísraelsmönnum að mega leggja hér fisk á land, jafnvel að þeir fengju leyfi til þess að gera út héðan togara með þessum hætti. Mér skilst, að á sínum tíma hafi þessu verið neitað af ríkisstj., en ég vildi mjög gjarnan, ef það væri hægt, fá nánari upplýsingar um þessi mál — annaðhvort nú við þessa umr. eða síðar- og hvort það sé um nokkra breytingu á afstöðu ríkisstj. að ræða í þessum efnum.