28.04.1969
Efri deild: 79. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (958)

5. mál, veiting ríkisborgararéttar

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Þegar þetta mál var til síðustu umr. í hv. Nd., beindi frsm. þeirrar n., sem um málið fjallaði þar, hv. allshn., fyrirspurn til mín um það, hvað liði störfum n., sem menntmrn. mun hafa skipað á sínum tíma til að endurskoða 1. um mannanöfn, en fsp. var fram borin í tilefni af því ákvæði frv., sem gerir erlendum ríkisborgurum, sem sækja um ríkisborgararétt á Íslandi, skylt að skipta um nafn og taka upp íslenzkt nafn, en hugmyndir um að haga þessu á annan hátt hafa oft verið uppi hér á hinu háa Alþ., þótt niðurstaðan hafi ávallt verið sú að samþykkja sams konar ákvæði í 1. um veitingu ríkisborgararéttar og nefnd eru í þessu frv. Síðast þegar þetta mál var á döfinni, þá ákvað ríkisstj. að skipuð skyldi n. til þess að endurskoða gildandi l. um mannanöfn, m.a. þau ákvæði, sem um þessi atriði hafa gilt fram að þessu og gert er enn ráð fyrir, að gildi í þessu frv. Ég var þá ekki reiðubúinn til þess að svara því á stundinni, hvað störfum þessarar n. liði, en hef kynnt mér það í millitíðinni og þykir mér rétt að það komi fram hér áður en umr. um petta mál lýkur, að n. var skipuð 27. júní 1967 til þess að endurskoða gildandi l., nr. 54 1925, um mannanöfn. Í n. eiga nú sæti Klemenz Tryggvason hagstofustjóri, og er hann formaður n., Ármann Snævarr háskólarektor, Einar Bjarnason ríkisendurskoðandi, dr. Halldór Halldórsson prófessor og Matthías Johannessen ritstjóri. Form. n. hefur tjáð mér, að störf hennar séu vel á veg komin, og hún gerir ráð fyrir að skila áliti í sumar, þannig að frv. að nýjum mannanafnalögum gæti legið fyrir hér á hinu háa Alþ. næsta haust.