25.03.1969
Neðri deild: 69. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (964)

192. mál, Landsvirkjun

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Með frv. þessu er gerð till. um það að heimila ríkisstj. að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð lán, er Landsvirkjun tekur til virkjunar við Búrfell, að fjárhæð allt að 3128 millj. kr. eða 35.5 millj. dollara eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í annarri erlendri mynt. Ábyrgðin skal vera með þeim kjörum og skilmálum, er ríkisstj. ákveður, og tekur hún jafnt til greiðslu afborgana og vaxta og annars kostnaðar.

Í samningi ríkisstj. og Swiss Aluminium frá 28. marz 1966 um álbræðslu í Straumsvík, er gert ráð fyrir því, að bræðslan verði reist í þremur áföngum, þannig að í 1. áfanga verði afköst hennar 30 þús. tonn af áli, í 2. 45 þús. tonn og í þeim þriðja 60 þús. tonn. Samningurinn gerir enn fremur ráð fyrir því, að 1. áfanga sé lokið 1969, 2: ekki síðar en 1972 og þeim 3. ekki síðar en 1975, nema aðilar verði ásáttir um annað. Eftir samningsgerðina þótti fljótlega sýnt, að tveim síðustu áföngum bræðslunnar yrði flýtt, og eru nú allar horfur á því, að hún verði komin í fulla stærð árið 1972, sem er þrem árum fyrr en umræddur samningur gerir ráð fyrir. Áætlanir um Búrfellsvirkjun miðast við það, að fyrri virkjunaráfanganum, sem er 105 megawött, ljúki á þessu ári um leið og 1. áfanga álbræðslunnar, en aflþörf hans er 60 megawött, og síðari virkjunaráfanganum áður eða um leið og álbræðslan er komin í fulla stærð, en þá er virkjunin 210 megawött og aflþörf bræðslunnar 110 megawött. Eigi bræðslan að geta verið komin í fulla stærð 1972, er því nauðsynlegt að ljúka báðum áföngum Búrfellsvirkjunar fyrir þann tíma, og hefur þegar verið að því stefnt með því að flytja hluta af framkvæmdum seinni virkjunaráfangans yfir á þann fyrri.

Í desember 1965 var stofnkostnaður seinni áfanga virkjunar við Búrfell áætlaður 305.5 millj. kr. á þáverandi gengi að vöxtum á byggingartíma frátöldum eða um 520 millj. kr. á núverandi gengi. Að vöxtum og verðhækkunum meðtöldum áætlast þessi kostnaður nú 661 millj. kr. eða 7.5 millj. dollara. Sé framkvæmdum við seinni áfangann hraðað, verður ekki fyrir hendi það fé, sem upphaflega var ætlunin að verja til þeirra úr rekstri árin 1972–1975 samfara minni framkvæmdahraða. Því er fyrirsjáanlegt, að taka verður lán fyrir öllum kostnaðinum við seinni áfangann að fjárhæð 7.5 millj. dollara, og þess vegna er þetta frv. flutt. Að sjálfsögðu er gert ráð fyrir því, að 2. mgr. 15. gr. l. um Landsvirkjun gildi áfram óbreytt, en hún felur í sér heimild fyrir ríkisstj. til að taka lán, sem komi að hluta eða öllu leyti í stað ábyrgðar samkv. 1. mgr. gr., og endurlána það Landsvirkjun.

Það hefur verið gert ráð fyrir nokkurri breytingu á framkvæmdum í sambandi við álverksmiðjuna. Þannig er gert ráð fyrir, að með 1. stigi verði framleidd 33 þús. tonn á ári og sú starfsemi hefjist í september á þessu ári, með öðru stigi bætist við 10 þús. tonn á ári og það komist í framkvæmd í júní 1970. Með 3. stigi bætast við 23 þús. tonn á ári, og er gert ráð fyrir, að það verði tilbúið í júní 1972.

Í sambandi við það, að hér er talað um nýjar lántökur, er rétt að gera sér grein fyrir þeim tekjum, sem fást af rafmagnssölu og sköttum til álverksmiðjunnar. Á fyrsta stigi fæst 1.5 millj. dollara, á 2. stigi 0.41 millj. dollara. Á 1. stigi fæst fyrir raforkusölu 1.5 millj. dollara, á 2. stigi 1.95 millj. dollara, á 3. stigi 2.5 millj. dollara. Í ísl. kr. á 1. stigi 132 millj. kr., á 2. stigi 172 millj. kr., á 3. stigi 220 millj. kr. Skattar af verksmiðjunni á 1. stigi verða 36 millj. kr., á 2. stigi 48 millj. og á 3. stigi 116 millj. Tekjur: Skattar og raforkusala á 1. stigi 168 millj. kr., á 2. stigi 220 millj. kr., á 3 stigi 336 millj. kr.

Meginlánið, sem tekið hefur verið til virkjunarinnar við Búrfell, er til 25 ára með 6% vöxtum. Það er afborgunarlaust fyrstu 5 árin. Það er því ljóst, að tekjurnar af orkusölunni og álbræðslunni gera talsvert meira heldur en að standa undir þessum erlendu lánum. Þykir rétt að vekja athygli á því við þetta tækifæri, þar sem í seinni tíð hefur verið talað um mikla greiðslubyrði, sem Íslendingar hafa af erlendum lánum.

Þess má einnig geta, að á árunum 1984–1987 hækka skattarnir smám saman af verksmiðjunni úr í 16 millj. kr. í 203 millj. eða úr 1.35 millj. dollara í 2.31 millj. dollara á ári. Það hefur verið rætt um að stækka bræðsluna úr þeim 66 þús. tonnum, sem samið hefur verið um, í 86 þús. tonn, ef samningar um það takast, og að sú stækkun taki til starfa 1974. Slík stækkun mundi þurfa um 40 þús. kw, og eigi að vera hægt að anna þeirri aflþörf, olíuhreinsunarstöð o.fl., sem rætt hefur verið um, er nauðsynlegt að ráðast í Sigölduvirkjun sem fyrst. En það er ekki langt síðan frá því var sagt, að stjórn Landsvirkjunar stefndi að því að hraða framkvæmdum við Búrfellsvirkjun, Þórisvatn og Sigöldu og að þeim framkvæmdum yrði lokið ekki seinna heldur en á árinu 1976, þ.e.a.s. öllum þessum framkvæmdum. Það er þá reiknað með, að við rekstur bræðslunnar starfi fyrst í stað 350 manns og sá fjöldi fari upp í 500–550 manns, eftir því hvort bræðslan verður 66 þús. eða 86 þús. tonn. Verði bræðslan stækkuð samkv. því, sem hér hefur verið talið, og 20 þús. tonn að auki, má reikna með, að byggingaframkvæmdir verði meira og minna samfelldar til 1974 og við þær vinni að jafnaði um 120 menn. Reikna má með, að á árunum 1970–1971 muni vinna allt að 150 manns við Þórisvatnsmiðlun og stækkun virkjunar við Búrfell, og sé ráðizt í Sigölduvirkjun, mun hún ein þurfa að jafnaði um 400 menn á árunum 1970–1974.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta frv. að svo stöddu, en vildi mælast til þess, að sú n., sem fær það til meðferðar, vildi hraða afgreiðslu málsins og legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjhn.