27.03.1969
Efri deild: 64. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (992)
140. mál, vöruhappdrætti Sambands íslenskra berklasjúklinga
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Svo sem hv. þdm. er kunnugt, hefur Samband ísl. berklasjúklinga um alllangt skeið eða allt frá árinu 1949 haft leyfi til þess að starfrækja vöruhappdrætti í því skyni að koma upp nauðsynlegum byggingum fyrir starfsemi sína, fyrst og fremst að Reykjalundi. Þessi heimild var upphaflega veitt til 10 ára, og síðan var hún endurnýjuð árið 1959 og þá veitt til ársloka 1969 og sett jafnframt heildarlög um happdrættið. Það hefur komið í ljós, að enn þá er mikið ógert í sambandi við byggingarmál Sambands ísl. berklasjúklinga. Enn eru miklar skuldir, sem hvíla á byggingum samtakanna, og enn fremur nýjar framkvæmdir, sem þyrfti að hrinda þar í framkvæmd. Það hefur orðið að ráði eftir að fór að draga úr berklaveikinni og þýðingu þessarar starfsemi á því sviði, að S.Í.B.S. yfirtæki önnur málefni á sviði heilbrigðismála, sérstaklega varðandi öryrkjamál, og er því enn þá brýn nauðsyn til að hlynna að þessari starfsemi. Með frv. þessu er lagt til, að happdrætti þetta verði framlengt enn þá um 10 ára bil og að ágóða af því verði sem áður varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir vinnuheimilisins að Reykjalundi og til byggingar og rekstrar vinnustofa fyrir öryrkja á vegum S.Í.B.S. Og jafnframt er til öryggis gert ráð fyrir því, að það verði háð samþykki ríkisstj., hvaða framkvæmdir verði ráðizt í af þessu tagi. Frv. þetta var samþ. einróma í hv. Nd., og vildi ég leyfa mér að vonast til, að það geti hlotið sömu meðferð hér í þessari hv. deild. Það hefur aldrei áður verið ágreiningur um það að hlynna að þessum merkilegu samtökum, og ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.