07.04.1970
Neðri deild: 69. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)

174. mál, lax- og silungsveiði

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta um breyt. á l. um lax- og silungsveiði, sem eru frá I957, hefur verið lengi í undirbúningi og fyrst að geta, að mþn. fjallaði um þetta mál árin 1968 og 1969 og gerði margháttaðar breyt. við lögin. Síðan var þetta frv., sem nú er til umr., lagt hér fyrir Alþ. í fyrra, seint á þingi, og var ekki útrætt. Það mun aðeins hafa verið höfð um það framsöguræða af hálfu hæstv. landbrh., en lengra komst það ekki, enda var þá þinghald komið mjög að lokum. Síðan var þessu frv. nokkuð breytt í rn. og haft um það samráð við framámenn bæði veiðifélaga og áhugamanna um þessi mál, ófélagsbundinna, og var svo lagt fyrir þingið nú í vetur. Allir, sem til sín hafa látið heyra um þetta mál við landbn., hafa talið mikinn vinning að því, að frv. næði fram að ganga, þó að það séu mjög skiptar skoðanir hins vegar um ýmis atriði í frv. Í frv. eru ýmis atriði, sem flestir eru sammála um, að mikill vinningur sé að verði lögfest. Ég vil sérstaklega nefna þrjú atriði, sem virðist vera alger samstaða um, að horfi til bóta. Gert er ráð fyrir mikilli friðun við árósa frá því, sem verið hefur, og vernda þannig göngufisk, sem er á leið í ósana, frá því að vera tekinn, áður en hann getur gengið inn í árnar. Um þetta er alger samstaða.

Þá er kafli í frv. um ráðstafanir vegna fisksjúkdóma, sem mun vera mjög nauðsynlegt að lögfesta sem allra fyrst, og eru, held ég, allir á einu máli um það.

Þá er í þriðja lagi gert ráð fyrir því að stofna fiskræktarsjóð, sem standi undir kostnaði við ýmiss konar framkvæmdir á sviði þessara mála, bæði að því er varðar fiskvegi og klak og uppeldi fisks til að sleppa í vötn, og rækta hreinlega upp fisk í veiðivötnum, sem eru fisklítil eða fisklaus. Hins vegar er ekki full samstaða um það hjá þeim, sem um þetta mál hafa fjallað, hvort þarna sé nógu langt gengið, en allir viðurkenna þó, að þarna sé vísir að miklum og nauðsynlegum framkvæmdum, sem sé nauðsynlegt að styðja. Þetta er í 51. gr. þessa frv. Stofna skal sjóð, sem nefnist fiskræktarsjóður, til stuðnings fiskrækt og fiskeldi í landinu.

Tekjur sjóðsins eru m.a. fjárveiting úr ríkissjóði, en um þá fjárveitingu hafa ekki verið sett nein föst ákvæði. en þess er að vænta, að þetta verði atriði, sem verulega munar um strax og næstu fjárlög verða samin. Það hefur ekki þótt ráðlegt að tiltaka, hvað þetta eigi að verða mikið, en ég held, að það sé skilningur á því, að þarna þurfi að koma til þó nokkur fjárveiting, ef fiskræktarsjóður á á annað borð að geta staðið undir nafni sínu og hlutverki. Þá er gert ráð fyrir gjaldi af skírum veiðitekjum, er innheimtist af veiðifélögum. Þetta er atriði, sem ekki er nákvæmlega búið að reikna út, hvað muni gilda, en að sjálfsögðu hækka slíkar tekjur, um leið og fiskiárnar eða laxárnar eru leigðar hærra og hærra verði og tekjur veiðiréttareigenda fara vaxandi af hlunnindum. Þá stendur í frv., að taka skuli 2%o af óskírum tekjum, þ.e.a.s. brúttótekjum, vatnsaflsstöðva í landinu, er selja orku til almenningsþarfa. Landbn. hefur leyft sér að gera till. um að hækka þetta upp í 3 0/00. Það er ekki hægt að fullyrða það á þessu stigi, hvað þetta muni gilda mikið, en þó mun það allmikið fé og fer vaxandi, eftir því sem rafstöðvar eða orkuver stækka og þeim fjölgar. Þetta eru þau atriði, sem ég vil benda sérstaklega á, sem eiga að vera til tekjuöflunar fyrir fiskræktarsjóð.

Þá má einnig geta þess, að eitt veigamikið atriði er í frv., sem er nýtt. Áður hefur verið heimilt að stofna veiðifélög eða fiskræktarfélög, og hefur raunar nokkuð verið á það ýtt af Veiðimálastofnuninni, en nú er gert ráð fyrir, að það sé skylt að stofna slík veiðifélög, þegar ástæður leyfa það á annað borð heima fyrir. Það er rétt að geta þess, að þetta atriði er nokkuð umdeilt, en eigi að síður verður að ætla, að þetta sé nauðsynlegt til þess að hrinda þessum framkvæmdum áleiðis sem allra fyrst.

Um frv. er svo það að segja, að þegar landbn. fékk það til meðferðar, þá sendi hún það strax til umsagnar búnaðarþingi, í öðru lagi Landssambandi veiðifélaga, í þriðja lagi Landssambandi ísl. stangaveiðimanna og í fjórða lagi Félagi áhugamanna um fiskrækt og einnig Veiðimálastofnuninni. Umsagnir bárust frá öllum þessum aðilum, og voru þær að sjálfsögðu mjög ósamhljóða, en fram kom þó að flestallir eða ég held allir, sem svöruðu, töldu mikinn vinning að því, að frv. næði fram að ganga í svipaðri mynd og það nú er, þótt allir þessir aðilar eða flestallir óskuðu eftir meiri breytingum við hin eldri lög, og sum þessi samtök, sérstaklega Landssamband ísl. stangaveiðimanna, óskuðu eftir mjög róttækum breyt., sem n. sá sér ekki fært að verða við.

Þá má geta þess, að n. ræddi þetta mál á mörgum fundum og varði í það talsvert miklum tíma til að skoða frv., og enn sem fyrr var það álit n., að vinningur væri að því, að frv. næði fram að ganga í aðalatriðum í því formi, sem það nú er, en hins vegar voru nm. allir með meiri eða minni brtt. við það. Að lokum varð n. sammála um að leggja til nokkrar brtt., sem hún flytur öll sameiginlega, en ég vil geta þess þó, að einn nm. var ekki á fundi, þegar þetta var afgr., Benedikt Gröndal, en hann var hins vegar á flestum öðrum fundum og setti sig vel inn í þetta mál, og ég ætla, að hann sé samþykkur þessum brtt., sem n. telst flytja sameiginlega.

Ég vil svo gera örstutta grein fyrir brtt., en það er rétt að geta þess, að engin þeirra er neitt stórvægileg, en við álítum þó, að þær horfi allar til bóta og sumar talsvert mikið til bóta.

Við 5. gr. frv. leggjum við til, að inn í hana bætist ákvæði varðandi göngusilung.

Þá er brtt. við 7. gr. varðandi flutning fisks á hrygningarsvæði. Er lagt til að bæta inn einum málslið, sem hljóðar svo:

„Ráðh. er rétt, eftir till. veiðimálanefndar og veiðimálastjóra, að leyfa veiðifélagi að veiða lax til flutnings á hrygningarstaði. Einnig getur hann leyft, eftir till. veiðimálastjóra og veiðimálanefndar, veiðifélagi að veiða göngulax og flytja hann upp fyrir ólaxgenga fossa eða mannvirki, er hindra fiskför um vötn. Kostnað, er af þessu leiðir, má greiða úr fiskræktarsjóði að 1/3 hluta.“

Þetta er nýtt atriði, að veiða megi fisk til að flytja upp fyrir ólaxgenga fossa eða mannvirki, sem hindra fiskför, og er ætlazt til, að ákvæðið nái til orkuvera, t.d. þeirra sem hafa valdið því, að fiskför um vatn hindrast, eða að miklu leyti sé örðugra að gera fiskstiga á því svæði en áður var. Ég held, að þetta sé nauðsynlegt atriði.

Þá er við 11. gr. ein breyt., og hún gengur í þá átt, að ef fiskur hefur verið ræktaður upp í á eða vatni, þá megi taka upp lagnir í vatni, þar sem engar voru áður, þar sem svo breytt skilyrði hafa skapazt vegna aðgerða veiðifélaga. Ég hygg, að þetta sé óumflýjanlegt, og ég held, að það hafi verið af vangá í eldri lögum, að þetta virtist ekki vera heimilt, þegar nýjar aðgerðir koma til í vötnum og farið verður að rækta fisk, sem maður vonar, að geti orðið í vaxandi mæli, eftir því sem árin líða, því að það er áreiðanlegt, að það eru miklir möguleikar til fiskræktar hér í vötnum, sem enn eru ónotaðir.

Þá er við 19. gr. lagt til, að nokkur orð falli út úr gr., þar sem sú skylda er lögð á veiðifélög að eyða sel og öðrum veiðivargi úr vatni, eins og það er orðað. Það er ákaflega hæpið, að þetta standist, ef ætti að framfylgja því, að veiðifélag geti innt þá skyldu af höndum að veiða t.d. friðaða fugla, sem væru taldir eyða fiski, eða drepa sel. Það hefur komið fram, að þessi ákvæði stangast hreint og beint á við önnur lög. Þar að auki er mikill ágreiningur orðinn um þetta nú, og vaxandi fylgi er við þá skoðun, að hættan, sem stafi af sel í veiðivötnum, sé eigi eins mikil og áður var talin. Sumir halda því jafnvel fram, að selur geti orðið til bóta við árósa. Ekki vil ég fullyrða um það, en ég hef þá skoðun, að jafnvægi í náttúrunni sé yfirleitt þannig, að það sé mjög hættulegt að leggjast á einstakar tegundir dýra og eyða þeim til þess að vernda aðrar. Það geti komið illa í bakseglin. Ég veit til þess, að þetta hefur valdið vandræðum sums staðar. Sumir hafa talið skylt að skjóta toppendur t.d. og lóma á friðunartíma, af því að þessir fuglar væru veiðivargar, og einnig sé sjálfsagt að drepa selinn og útrýma honum hreinlega.

Þá er í 20. gr. ein orðalagsbreyting. Það er bara málvöndunarsjónarmið.

Sama er að segja um 29. gr., þar sem talað er um fylgifé jarða. Ég vil orða þetta á annan veg, en það er engin efnisbreyting.

Og þá er 34. gr. Fyrir: „Hverjum manni er skylt“ í upphafi gr. komi: Skylt er. — Við teljum, að „hverjum manni er skylt“ nái ekki yfir það, sem ætlazt er til, að það nái. Það geta verið fleiri en einstakir menn, sem þarna eiga hlut að máli, t.d. stofnanir. Það er engin efnisbreyting.

Þá er í 37. gr. lagt til, að nokkur orð falli úr gr. Þau hljóða þannig: „þá er fé verður til þess veitt á fjárl.“ Þá er 45. gr., það er varðandi ófriðun sels. Við teljum vafasamt að gera mönnum skylt að eyða sel, hvar sem hann fyrirfinnst og viljum gera þetta að heimildarákvæði. Getur þá ráðh. ófriðað selalagnir og látrin eftir till. veiðimálanefndar og veiðimálastjóra, enda sýni mat, að arður af laxveiði eða göngusilungi í ánni sé meiri en arður af selaveiði. Við viljum taka af þetta skýlausa ákvæði um ófriðun sels á þessum svæðum, en hins vegar sé heimilt að ófriða hann. Ráðh. hafi heimild til þess, ef veiðimálastjóri og veiðimálanefnd leggja það til. Það er m.ö.o. verið að draga úr þeim ákvæðum, sem gilt hafa og hafa valdið víða miklum vandræðum og jafnvel málaferlum og skaðabótum. Hæpið er, að ákvæðin um ófriðun sela standist gagnvart öðrum lögum, enda mun það hafa farið svo í dómum um slík mál. Ég held, að það sé eðlilegra, að þetta sé heimild en bein lagaskylda, að ófriða selinn eftir þessum reglum. Sama gildir um 2. málsl. þessarar gr., það er bara til samræmis við hitt.

Svo kem ég að því, sem ég nefndi áðan, varðandi fiskræktarsjóðinn. Við leggjum til, að í staðinn fyrir 2 0/00 af brúttótekjum vatnsaflsstöðva komi 3 0/00. Það er rétt að geta þess, að það er prentvilla á þskj., og þar stendur 3%, en það er búið að prenta þskj. upp aftur, svo að það á ekki að valda neinum vandræðum.

Þá er aðeins ein brtt. enn, það er við 52. gr., að þar falli niður, þar sem talað er um klakhús og eldisstöðvar, sem geta notið styrks úr fiskeldissjóði, ef þær hafi starfað í þrjú ár. Við leggjum til, að niður falli þetta ákvæði um þriggja ára tímann og það sé á valdi veiðimálastjóra og veiðimálanefndar; hvenær talið sé eðlilegt og rétt að styrkja þessa starfsemi.

Þá hef ég ekki fleira um þetta að segja. Það er rétt að geta þess, að einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja fleiri brtt., sem n. hefur ekki orðið sammála um. Við höfum ekki flutt neitt annað en það, sem hún er alveg sammála um. Sumar brtt. munu ekki enn vera komnar fram, en þær mundu þá verða teknar til afgreiðslu við 3. umr.