14.04.1970
Neðri deild: 72. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)
174. mál, lax- og silungsveiði
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég get tekið undir þau orð, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að einmitt það, að við vildum vinna að því, að þetta frv. næði fram að ganga á þessu þingi, var ástæðan fyrir því, hvað það eru í raun og veru fáar brtt., sem komu fram, bæði frá nm. og sennilega fleirum, við þetta frv. Það er einasta ástæðan fyrir því. Annars hefðu, ef þetta frv. hefði verið til meðferðar fyrr á þinginu, komið fleiri brtt. fram og það verið e.t.v. rætt enn þá meira af þessum aðilum, sem um þetta hafa fjallað.
En það er eitt eiginlega, sem ég er hissa á í þessum umr., að það hafa orðið nokkrar umr. um brtt., sem n. varð sammála um að flytja, þ.e.a.s. um það að hækka gjald vatnsaflsstöðvanna um 1 0/00, það er búið að afgreiða þetta hér í hv. d. En n. hefur í sjálfu sér fengið hálfbágt fyrir það að hafa flutt þessa till. Er hæstv. landbrh. kom til n., var uppi till. í n. um, að þetta yrði hækkað um helming. Þá kom það fram hjá ráðh., — það er rétt, það kom fram hjá honum, — að honum fannst það of mikið, en hann minntist einmitt á það, að það væri kannske annað mál um 3 0/00, en um það er sú till., sem n. varð svo sammála að flytja. Ég geri ráð fyrir því, að ef n. hefði haldið það, að þessi till. yrði til þess að tefja frv. eða fella það, þá hefði ekki orðið af flutningi hennar. En það var einmitt af þeirri ástæðu, að við ræddum þetta við þann aðila, sem við töldum, að við ættum að tala við í þessu efni, að ég a.m.k stóð í þeirri meiningu, að við hefðum fengið grænt ljós í þessu máli. Hafi það ekki verið, þá hef ég algerlega misskilið. En mér er bara nær að halda, að aðrir nm. hafi alveg staðið í sömu meiningu.
Ég verð að segja það, að ég hefði flutt ýmsar brtt. aðrar en ég gerði eða staðið að að flytja, ef ég vildi ekki fyrir alla muni, að þetta frv. kæmist fram á þinginu. En það, sem ég lagði áherzlu á, eins og kom fram við 2. umr., er, að 48. gr. falli niður. Það er sú breyt., sem við leggjum áherzlu á hér þrír nm., eins og sést á þskj. 504. En ég vona, að þessi breyt., sem nú er búið að samþykkja, verði ekki til þess að tefja fyrir þessu máli, og það verður þá að skrifast á reikning annarra en landbn.