16.04.1970
Efri deild: 71. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)

174. mál, lax- og silungsveiði

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég hef ekki haft tök á því að bera saman það, sem verið hefur í þessu frv., sem hæstv. landbrh. var að lýsa, og afgreiðslu Nd. vegna þess að málið var þar afgreitt í gær og í fyrradag, við höfum haft mörg mál til meðferðar hér í hv. Ed. og verið við þau önnum kafin. Engu að síður ætla ég að fara um þetta mál nokkrum orðum.

Ég veitti því athygli, og fyrir það ber að þakka, að eins og hæstv. ráðh. bendir réttilega á, gengur þetta frv. lengra í áttina að óskum okkar, sem erum kannske fullbjartsýnir í þessum málum, en það frv., sem var lagt fram í fyrra. Ég er ánægður með frv., það, sem það nær, þó að ég hefði gjarnan viljað, að sumir þættir þess væru svo styrkir, að ég hefði örugga vissu fyrir því, að þeir næðu þeim árangri, sem við höfum margir áhuga á, sérstaklega varðandi fiskeldi í landinu og að tryggja tekjustofna til þess.

Það var í desember, að við fluttum hér þrír frv. um sama efni, vegna þess að það dróst allmjög, að hæstv. ríkisstj. legði fram þetta frv., eða hæstv. landbrh. Hvort sem það hafa verið áhrif frá því eða ekki eða frá öðrum aðilum, þá sé ég, að það er ekki ýkjamikill munur í heild á þessum tveimur frv., og ég tek það fram, að það er ánægjulegt. Hins vegar eru í því viss atriði, sem ég hefði persónulega talið og við fleiri, að ættu að vera trygg.

Það er varðandi örugga friðun, en ekki heimildarákvæði, vegna þess að það er mikið álag á þá menn, sem eru ábyrgir í þessum málum, veiðimálastjóra og veiðimálanefnd, að taka ákvörðun, þó að í samráði við ráðh. sé, um aukna friðun. Betra væri að hafa stoð í l. til þess. Ég vitnaði hér á sínum tíma í grein eftir Einar bónda Gestsson á Hæli um nauðsyn á aukinni friðun og gildi hennar, og það fer ekki á milli mála, að það gildir alveg hið sama um laxinn og aðra fiska, að þegar ný tækni kemur til, þá vofir sú hætta yfir, að við göngum of skyndilega a stofninn, og það er of seint að vakna við, þegar fiskurinn er til þurrðar genginn. Hér er of mikið í húfi til þess. Hins vegar er málið mjög viðkvæmt. Það skal ég undirstrika og ekki þægilegt að vera hinn vísi maður í eitt skipti fyrir öll, og ekki ætla ég mér þá dul né ætla ég öðrum þá hæfileika að geta sagt nákvæmlega til, hvað er hið rétta og ranga í þessu efni. Hins vegar sýnir það sig óumdeilanlega, að laxveiði hér á landi hefur hnignað og hún hafizt síðar en verið hefur, sérstaklega varðandi stangaveiðifisk. Og það er vegna þessa, að við viljum margir leggja til, að friðunartími á vorin verði lengdur og það sé gert með lagaákvæði, en ekki lagt á herðar þeim mönnum, sem bera ábyrgð á framkvæmd í., því að um það gætu orðið nokkuð harðar deilur. Þetta vildi ég, að kæmi hér fram. Ég veit ekki, hvort hv. landbn. hefur virt okkur þrjá flm. þess að fjalla nokkuð um frv. okkar. Hún kannske gerir þá núna einhvern samanburð, þegar hún fjallar um þetta, og væri það æskilegt, en það mun þá koma í Ijós síðar meir, og mun ég þá e.t.v. þurfa að fjalla nánar um málið.

Hæstv. landbrh. talaði um það, sem er mikilvægt og sanngjarnt atriði og samstaða varð um í endurskoðunarnefndinni, þar sem ég átti sæti, að í veiðimálanefnd, — það má deila um, hvort á að kalla það veiðimálastjórn eða veiðimálanefnd, en haldið er veiðimálanefndarnafninu, sem virðist þó fara í taugar margra manna nú, sbr. þetta svokallaða nefndafargan, séu fimm menn. Ég er samþykkur þessu sjónarmiði, sem fram kom í frv., að hún sé skipuð fimm mönnum, enda í samræmi við það, sem ég hef haldið hér fram fyrr, og það er ánægjulegt að heyra ákveðinn stuðning í því efni.

Um fiskræktarsjóðinn gegnir hins vegar öðru máli. Ég álit, að hann nái mjög skammt eða allt of skammt miðað við það gagn, sem ég tel, að hann geti gert fyrir íslenzkan landbúnað og íslenzkt atvinnulíf. Það er ekki ný hugmynd, að nauðsyn sé að koma á fiskræktarsjóði. Hún er gömul, og ég man eftir því, að í grg. veiðimálastjóra, Þórs Guðjónssonar, held ég frá 1960 eða 1961, þá leggur hann mjög mikla áherzlu á það, að stofnað sé til fiskræktarsjóðs, en 10 ár eru liðin, án þess að þessi sjóður hafi séð dagsins ljós, og mér finnst fæðing hans hér í frv. ekki slík, að hann verði þess megnugur að veita það gagn í fiskeldi, sem ég gjarnan vildi.

Auðvitað má deila um það, hversu mikið fjármagn við eigum að láta af hendi árlega til þessarar starfsemi, en fram hjá því verður ekki gengið, að þessi starfsemi sem önnur, ef hún á að vera til einhvers, verður að fá nægilegt fjármagn. En það hefur ekki verið undanfarin ár, þó að ég vilji þakka hæstv. landbrh. fyrir það, að fjárveitingin hefur aukizt verulega. En hér þarf verulegt fjármagn að koma til, því að það er mín trú, að mikil auðlegð búi í ánum og ekki síður vötnunum, og til þess þarf stórátak að gera veiðivötnin vel veiðihæf, því að menn munu sækja út í náttúruna og una vel við sinn hag, sé fiskivon í vötnunum. En til þess þarf að efla alla slíka starfsemi, þannig að klak- og eldisstöðvar geti lagt þessu máli virkilega lið. En það er staðreynd, að fjármagnsskortur hefur hamlað þessari starfsemi verulega undanfarin ár þrátt fyrir stóraukið fjármagn. Og við viljum einmitt leggja áherzlu á, að Alþ. viðurkenni þessa búgrein ekkert síður en aðrar búgreinar og láti ríflegt fjármagn í hana. Hjá Dönum er þetta stórmál, og þeir hafa hundruð millj. kr. í hreinar útflutningstekjur af fiskeldi. Það er undarlegt hér á Íslandi, að ekki skuli miða neitt áfram í þessu efni. Það er vegna þess fyrst og fremst, að áhugamenn um allt land hafa átt við mjög mikla erfiðleika að etja varðandi fjármagnsútvegun, og það má ekki lengur við svo búið una.

Hér í frv. eru taldir upp tekjumöguleikar fiskræktarsjóðs, og það er gott út af fyrir sig. En ég sé nú ekki tilganginn í því, enda tók hæstv. ráðh. það skýrt fram, að langt yrði að bíða eftir tekjuafgangi frá fiskeldisstöðvum ríkisins. Þetta er alveg óraunhæft. Stöðin í Kollafirði á að verða rannsóknarstöð og miðla þekkingu og reynslu, en það á ekki að ætlast til þess, að hún sé rekin þannig, að hún skili arði. Það finnst mér ósanngjarnt. Ég held, að það sé óeðlilegt að ætla, að tilraunastöð geti skilað arði, því að þá er ekki unnið þannig að tilraunum sem nauðsynlegt er. Hún á að miðla þekkingu og fræðandi efni út um allt land og vera mönnum til hjálpar að koma á fót fiskeldi og fiskrækt og geta selt seiði víða um landið og haft af því auðvitað tekjur. En það getur ekki verið meginsjónarmið. Það er alveg útilokað.

Við lögðum til nokkur fleiri atriði. M.a. vil ég minna á, að samþ. var á búnaðarþingi 1969, að tekjur skyldu verða af sölu veiðimiða og ráðh. skyldi setja nánari reglur um innheimtu þess gjalds og allt fyrirkomulag. Þetta er sama kerfi og víða viðgengst erlendis, og ég sé ekkert því til fyrirstöðu, að bæði Íslendingar og útlendingar borgi nokkra þóknun fyrir að fá að veiða hér á landi til fiskræktarmála og í fiskræktarsjóð. Ég býst við því, að það þurfi að hugleiða nokkuð vel fyrirkomulagið, en þó held ég, að stangaveiðifélög um land allt og ferðaskrifstofur og fleiri aðilar gætu haft þessi kort. Þó að veiðiréttareigendum finnist að sumu leyti, að það sé skertur þeirra réttur, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að ráðh. geti útvegað þeim tvö eða þrjú kort, þannig að þeir gætu boðið bæði sjálfum sér og kunningjum sínum til veiði á sínu ákveðna svæði. En ég sé enga ástæðu til þess, þó að þarna sé viss annmarki á, að hafna þeim tekjumöguleika, sem sala þessara korta býður, því að hún er stór liður í tekjuöflun fiskræktarmálanna í Noregi og Svíþjóð og Bandaríkjunum og víðar. Þess vegna sé ég ekki ástæðu til þess að hafna þessum möguleika, þó að það séu viss sárindi hjá sumum veiðiréttareigendum að fá eins konar ávísun á veiði í sinni eigin á eða sínu eigin vatni. Hann yrði auðvitað frjáls fyrir þá, en innan vissra takmarka þó, eða viss regla mundi gilda um slík veiðikort, þannig að ég vil hvetja hv. landbn. til að taka undir það, sem kom fram í endurskoðunarnefndinni. Við vorum inni á þessu, þó að vissir annmarkar væru á framkvæmd, og einnig hv. búnaðarþing á s.l. ári, og ég held, að það sé of mikil þröngsýni að kasta þessum möguleika frá sér fyrir sjóðinn.

Um aðrar tekjur verður auðvitað að fara eftir getu ríkissjóðs, — ég skal taka undir það, — hverju sinni. En ég sé ekki, að þessi sjóður mætti ekki fá sinn skerf eins og aðrir sjóðir, og það er kannske erfitt að ákveða það fast í eitt skipti fyrir öll, en ég veit það, að hæstv. landbrh. mun leggja þessu máli lið. Hann hefur lýst því margsinnis nú á yfirstandandi þingi, að hann mun beita sér fyrir auknum tekjumöguleika úr ríkissjóði. Vatnsaflsstöðvar landsins hafa nú fengið möguleika á því að greiða í sjóðinn, og það er gott út af fyrir sig. Ekki eru þó allir ánægðir með það, og einhverjir munu gagnrýna slíka ráðstöfun. En þó er það gert víða annars staðar og hefur þótt eðlilegt, þar sem vel geti komið til greina, að vatnsaflsstöð trufli fiskgengd í viðkomandi á.

Frv. gengur út á m.a., sem hæstv. ráðh. drap á, möguleika á aukinni heimild til friðunar, frá 84 tímum upp í 108 tíma. Hér er vandamál á ferðinni. Ég tel, að það sé, eins og ég sagði áður, útilokað annað en að auka þessa friðunarheimild beint í lögum til öryggis eða setja ákveðið í lög, að skylda sé að friða vissan tíma í júní og seinast í maí. Þetta má auðvitað ákveða til skamms tíma til reynslu, en það eru margir uggandi um það, að nútímatækni og girnisnetin séu svo fiskin, að gengið verði um of á stofninn. Enda kemur það fram í frv., að það er heimild, og er það ánægjulegt út af fyrir sig, til þess að hamla á móti notkun slíkra tækja.

Frv. er mjög í þá átt, sem við, kannske þessir fullbjartsýnu menn, höfum viljað, og það er rétt, sem hæstv. ráðh. drap á, að við munum auðvitað seint saddir verða á þeim óskum, sem við viljum setja fram. En reynslan mun skera úr um það, hvað er rétt og hvað er rangt í því efni að óska eftir auknu fjármagni til þessarar starfsemi. Á hitt vil ég minna, að það er búið að standa í lögum frá 1937 eða 1932, held ég, lögum, sem eru í gildi í dag, að rannsaka hefur átt ár og vötn og kortleggja. En ég tók eftir því, að það var aðeins í fyrra, sem slíkt var gert, a.m.k. að einhverju ráði. Hæstv. ráðh. drap á það, en þetta sýnir, hversu vissir þættir þessara mála hafa verið vanræktir vegna fjármagnsskorts. En það er vissulega nauðsynlegt, ef fiskeldi á að verða verulegt hér í landinu, að við höfum rannsakað ár og vötn rækilega og komizt að niðurstöðu um það, hvar séu beztu skilyrðin og hvar beri að leggja áherzlu á aukna starfsemi í þessu efni. Undir það vil ég taka mjög rækilega, þar sem við eigum nú unga og duglega menn í námi fyrir þessa starfsgrein, að þeim verði sköpuð góð starfsskilyrði hér heima. Til þess þarf auðvitað nokkurt fjármagn. Þess vegna finnst mér, að við ættum að efla meir tekjumöguleika fiskræktarsjóðs en gert er í frv. Þó að það sé auðvitað mögulegt í fjárl. hverju sinni að veita honum ríflegar tekjur, þá er það nú gott, að hann hafi nokkuð fastan stofn til að byggja á, ég held, að það sé bráðnauðsynlegt.

Að öðru leyti vil ég ekki tefja tíma hv. d. meira en þetta í dag, en ég vildi beina því til hv. landbn., að hún bæri saman frv. og sæi, hvað hefði nálgazt frá því, að við lögðum fram frv. okkar, en frv. gengur nú mun lengra, og er það ánægjulegt, en hið fyrra.