27.04.1970
Efri deild: 80. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)

174. mál, lax- og silungsveiði

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Það er misskilningur hjá hv. síðasta ræðumanni, að landbn. sem slík beri fram nokkra brtt. við það frv., sem hér er til umr. Það eru þrír nm., sem flytja þessa brtt. og ég vil lýsa yfir því, að ég er andvígur þeirri brtt., sem hér liggur fyrir, því að ég tel það langheppilegasta skipan á þessum málum, að stjórn veiðimálanna verði hin sama og skipuð sömu aðilum og verið hefur til þessa.

Ég hygg, að það muni vera einróma álit allra þeirra, sem hafa látið til sín heyra um þessi mál, að svo verði. Og ég vil benda á það, að ef það eru einhverjir hér í hv. þd., sem vilja, að þetta mál fari í gegnum hv. Alþ. nú, þá væri langeðlilegast og réttast að fella þessa brtt., því að ég hygg, að framgangur málsins verði ekki að þessu sinni á hv. Alþ., ef þessi brtt., sem er á þskj. 689, um breytta skipan á veiðimálum nær fram að ganga. Ég vil taka það fram, að ég er ekki sérstaklega hrifinn af þessu frv., en ég tel þó eftir atvikum, að það sé rétt að samþykkja þær breyt. á veiðimálalöggjöfinni, sem nú liggja fyrir, en í frv. er ég andvígur málinu, ef brtt. á þskj. 689 nær fram að ganga, þá er ég á móti málinu. En ég mun fylgja því óbreyttu, eins og það kom frá Nd.