28.04.1970
Neðri deild: 88. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1049)

174. mál, lax- og silungsveiði

Ágúst Þorvaldsson:

Herra forseti. Það er ástæðulaust að lengja þessar umr., en það er í raun og veru hæstv. landbrh., sem heldur þeim uppi. Það var nú í eina tíð, að við töluðum hér svolítið saman, en hún er af sú tíð. Við erum hættir því á seinni árum.

En ég verð að segja það, að ég get ekki búizt við góðu af honum í sambandi við skipun form. n., því að mér heyrist hann vera algjörlega á móti bændum í þessu máli, þannig að ég verð að láta það í ljós, að ég get ekki búizt við góðu af honum í þessu. Ég vildi mega heyra það af hálfu ráðh., áður en ég greiði atkv. með eða móti frv., hvað hann hefur í huga að þessu leyti, þó að hann nefni ekkert nafn.