21.04.1970
Efri deild: 75. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)

203. mál, tryggingadeild útflutningslána við Ríkisábyrgðasjóð

Sveinn Guðmundsson:

Herra forseti. Frv. til l. um tryggingardeild útflutningslána við ríkisábyrgðasjóð, 203. mál Ed., sem raunverulega er fylgifrv. útflutningslánasjóðsfrv., er hér til 3. umr. Hv. frsm. fjhn., 7. þm. Reykv., boðaði brtt. frá n. við þessa umr., og það kom einnig fram, þegar ég ræddi um útflutningslánasjóðinn áðan. Till. þessari hefur verið útbýtt á þskj. 616, og er þar lagt til, að aftan við 2. gr. frv. komi ný málsgr., svo hljóðandi: „Þegar sérstaklega stendur á, er tryggingardeild einnig heimilt að tryggja samkeppnislán til innlendra aðila, er kaupa vélar og tæki, sem framleidd eru innanlands.“ Fjhn. varð sammála um, að slíkra breytinga væri þörf við 2. gr., en eins og frv. er, þá hefur tryggingardeild ekki heimild til að tryggja kröfur íslenzkra framleiðenda til innlendra aðila. Með þessari brtt. skapast hins vegar sami réttur, þótt kaupandi sé innlendur. Gott dæmi um, hversu þetta ákvæði er nauðsynlegt, er t.d. álbræðslan í Straumsvík. Innlendir aðilar misstu af mikilli vinnu við uppbyggingu hennar, vegna þess að þeim var ekki búinn sami möguleiki í íslenzku lánakerfi og útlendum verktökum, er buðu meiri lánamöguleika. Þetta hefur hugsanlega einnig haft neikvæð áhrif varðandi smíði tækja hérlendis fyrir kísilgúrverksmiðjuna, og án efa getur þetta haft jákvæð áhrif á næstunni vegna fyrirhugaðrar stækkunar áburðarverksmiðjunnar og ekki síður stækkunar álbræðslunnar. Það má því ekki seinna vera, að slíkur möguleiki skapist íslenzkum iðnaði einmitt nú, þegar EFTA-aðild er á byrjunarstigi og íslenzkum iðnaði er lífsnauðsyn að nota sér öll tækifæri, sem gefast, ekki aðeins til að standa í stað, heldur einnig til skjótari framþróunar.

Ég vænti þess, að hv. alþm. sjái, hversu mikilsvert er, að þessi brtt. verði samþ. Einnig vænti ég, að framkvæmd laganna verði með þeim hætti, að þetta ákvæði komi að fullu gagni, þegar á framkvæmdastig kemur.