24.04.1970
Neðri deild: 81. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)
203. mál, tryggingadeild útflutningslána við Ríkisábyrgðasjóð
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um tryggingardeild útflutningslána við ríkisábyrgðasjóð, er nánast fylgifrv. með frv. um útflutningslánasjóð, eða e.t.v. réttara sagt, þá er þessi löggjöf um stofnun þessarar deildar forsenda þess, að útflutningslánasjóður geti starfað með eðlilegum hætti og auðið verði að tryggja fjármagn til útflutningslána á þann veg, að líklegt sé, að bankakerfið telji sig vera sæmilega tryggt með þær lánveitingar.
Ég sé hvorki ástæðu til þess að rekja málið ítarlega né gera grein fyrir ástæðum þess, að þessi nauðsyn er fyrir hendi. Slík ábyrgðakerfi eru til með einhverjum hætti í öllum nálægum löndum, og yfirleitt er það á vegum ríkisins sjálfs eða þá ríkisstofnana, sem settar eru á laggirnar til að annast þessar ábyrgðaveitingar. Það var gerð í grg. frv. nánari skilagrein, ef svo má segja, fyrir hlutverki útflutningsábyrgðanna, og með frv. um útflutningslánasjóð eru birtar í fylgiskjali sérstakar upplýsingar um, hvernig útflutningstryggingum er hagað í hinum ýmsu löndum og gegn hvaða áhættu er sérstaklega tryggt. Sé ég því ekki ástæðu til þess að rekja þá sögu hér, en vísa aðeins til þessara fskj.
Ég vil taka það fram, að í Ed. var gerð smávægileg breyt. á frv., sem útvíkkar nokkuð svið trygginganna, en þar var heimilað, ef alveg sérstaklega stæði á, að ábyrgjast einnig samkeppnislán innanlands. Hér er um algera undantekningu að ræða, sem ekki þekkist í öðrum löndum og verður að sjálfsögðu að nota með mikilli varfærni, vegna þess að annars er hætt við því, að það skapi fordæmi um, að það verði farið að ætlast til þess, að ríkisábyrgðir verði veittar fyrir almennum viðskiptalánum innanlands, sem að sjálfsögðu er á engan hátt ætlunin, heldur ef alveg sérstaklega stendur á. Má segja, að það eigi fyrst og fremst við framleiðslu véla og stórvirkra tækja, sem kynni undir vissum kringumstæðum að vera þörf á að fjármagna, þótt það væri selt innanlands, þar sem það væri í alvarlegri samkeppni við innflutt tæki af sömu tegund, sem veitt væru lengri tíma lán til kaupa á.
Það er gert ráð fyrir því, að sérstök takmörk séu sett á upphæð þeirra ábyrgða, sem samtals er heimilt að veita, og er lagt til í þessu frv. nú, að hún nemi 250 millj. kr. Þá er gert ráð fyrir því að sjálfsögðu, að tiltekin iðgjöld séu tekin af þessum tryggingum og þá miðað við þá mismunandi áhættu, sem tryggingarsjóðurinn tekur hverju sinni, og reyndin mun yfirleitt vera sú í þeim löndum, sem við þekkjum þetta kerfi frá, að það hefur ekki orðið halli á þessari tryggingastarfsemi. Þótt einstaka áföll hafi orðið, þá hafa þau ekki orðið svo mikil, að það hafi ekki jafnazt upp með töku ábyrgðaiðgjaldanna.
Það er eðli málsins samkvæmt gert ráð fyrir því, að hér komi fjmrn. og ríkisábyrgðasjóður fyrst og fremst til sögu ásamt viðskrn. og iðnrn., sem sameiginlega tilnefni n. til þess að ákveða um það, hvort veittar skuli ríkisábyrgðir í sambandi við þau lán, sem útflutningslánasjóður telur að öðru leyti, að gæti komið til mála að veita, og verður að sjálfsögðu að vera náin samvinna milli útflutningslánasjóðsins og tryggingardeildar ríkisábyrgðasjóðs, eða þessara n., í sambandi við veitingu þessara ábyrgða.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að orðlengja frekar um þetta frv., nema tilefni gefist til, þar sem það skýrir sig að öðru leyti, að ég hygg, sjálft með grg. sinni, og legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.