18.12.1969
Neðri deild: 29. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

104. mál, Norðurlandasamningur um alþjóðleg einkamálaréttarákvæði

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Frv. þetta er um heimild fyrir ríkisstj. til þess að láta öðlast gildi samkomulag milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um breytingu á Norðurlandasamningnum frá 6. febrúar 1931, um alþjóðleg einkamálaréttarákvæði um hjúskap, ættleiðingu og lögráð. En það samkomulag, sem tekizt hefur um breytingar á þessum samningi, er um endurskoðun hjúskaparlöggjafarinnar, einkum í sambandi við lýsingu og reglur við stofnun hjúskapar. Enn fremur hafa verið samræmd ákvæði um slit hjúskapar. Ýtarleg grein er gerð fyrir nánara efni þessa samkomulags í aths. við frv., sem ég sé ekki ástæðu til þess að rekja frekar.

N. hefur haft frv. til athugunar og er sammála um að leggja til, að það verði samþykkt.