16.04.1970
Neðri deild: 76. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)

220. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Þegar ég gerði grein fyrir frv. um breyt. á l. um tekju- og eignarskatt hér fyrir nokkrum dögum í hv. d., þá skýrði ég frá því, að enda þótt gera mætti ráð fyrir að d. teldi sér ekki fært að afgreiða málið á svo naumum tíma, þannig að það gæti orðið að l. á þessu þingi, þá væri visst atriði, sem nauðsynlegt væri að lögfesta, og það frv., sem hér liggur fyrir, felur í sér þetta ákvæði.

Það fjallar einfaldlega um það, að sérstakar aukafyrningar skuli veittar á yfirstandandi skattaári, 20%, eða það skuli vera hækkanir á fyrningum fasteigna um 20% og 40% af fyrningum lausafjár. Þetta er gert með hliðsjón af því, sem ég gat um þá og nánar er vikið að í grg. þessa frv., að verðbreytingar urðu að sjálfsögðu verulegar í sambandi við gengisbreytinguna seint á árinu 1968. Ástæðan til þess, að hér er gerður munur á lausafé og fasteignum, stafar að sjálfsögðu af því, að gengisbreytingin hefur að fullu verkað á verðgildi innfluttra véla, en hins vegar ekki nema að hluta til á verðgildi húseigna, þar sem verulegur hluti af kostnaði þeirra er innlendur kostnaður, og þess vegna eru hér notaðar prósenturnar 20 og 40.

Ég vildi mjög óska þess, að hv. þdm. sæju sér fært að afgreiða þetta mál með þeim hraða, að það gæti orðið lögfest, áður en þingi lýkur nú um næstu mánaðamót væntanlega, og af þeirri ástæðu takmörkuðu menn, svo sem framast má verða, að gera brtt. við skattalögin í sambandi við þetta mál. Hér liggja fyrir ýmsar till. í frv.-formi, sem ég vék að í framsöguræðu minni um skattalagafrv., og ég þykist vita, að menn hafi áhuga á að koma þeim áleiðis, en ég tel ekki mögulegt að lögfesta frekari breyt. á skattal. að sinni en hér er gert ráð fyrir.

Hins vegar tók ég það fram varðandi ýmsar þær brtt., sem liggja fyrir hinu háa Alþ. nú, að þær væru þess eðlis, að ástæða væri til þess að athuga þær margar hverjar með mjög jákvæðu viðhorfi, en eðlilegast væri við meðferð þeirra mála, að þeim yrði almennt vísað til ríkisstj. með hliðsjón af því, að framhaldsathugun á skattal. fer fram í sumar. Þær yrðu þá teknar aftur til meðferðar í haust, og fengju þær ekki þá viðunandi meðferð að dómi hv. flm., þá væri það einfaldur hlutur að taka það mál upp aftur, þegar skattalagafrv. kemur að nýju fyrir Alþ. í haust, vegna þess að allar slíkar breytingar eftir þetta, sem varða skattgreiðslur einstaklinga t.d., geta ekki komið til framkvæmda varðandi skattlagningu í ár, nema því aðeins að það valdi stórfelldri seinkun á allri álagningu skatta.

Þetta mál er hins vegar, eins og ég gat um, allt annars eðlis, vegna þess að skattálagning á fyrirtæki fer fram síðar, og hér er um mjög einfalda breytingu að ræða, sem ekki á að þurfa að seinka neitt framkvæmd skattálagningarinnar.

Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að fara að ræða þetta mál nánar. Það var rætt, þegar frv., sem ég gat um, var hér til umr. um daginn. Ég legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.