24.04.1970
Neðri deild: 81. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)

220. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykv. vakti athygli á því, að brtt. sú, sem meiri hl. fjhn. flytur á þskj. 664, væri ekki í samræmi við ákvæði skattalaganna. Hann rakti nokkuð augljóslega, hvernig á þessu stendur, en brtt. er sjálfsagt tekin orðrétt upp eftir því frv., sem hér var flutt. Það frv. er hins vegar orðrétt tekið upp eftir skattal., sem út voru gefin 7. okt. 1965, þá skv. ákvæðum í l. nr. 70 1965, um að steypa skuli skattal. í ein ný lög og þau útgefin eftir samþykkt þeirra laga. Þetta ákvæði er tekið orðrétt upp úr þeim l., sem þá voru samþ. hér á Alþ., án þess að tilfærslu yrði breytt í þessari grein. Ég tel eðlilegast, að þessi tillaga verði tekin aftur við þessa umr. og að hún verði lagfærð til samræmis við skattal. og flutt aftur við 3. umr. Ég leyfi mér að taka till. aftur.