30.04.1970
Efri deild: 87. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (1154)

220. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft það frv., sem hér liggur fyrir, til athugunar, og eins og nál. þau, sem útbýtt hefur verið, bera með sér, hefur n. ekki náð samstöðu um frv., þannig að við fimm nm., sem að nál. á þskj. 780 stöndum, leggjum til, að það verði samþ. Einn skrifar þó undir það með fyrirvara, en tveir hv. nm. leggja til, að því verði vísað til ríkisstj.

Einn liður í ráðstöfunum til þess að bæta samkeppnisaðstöðu íslenzkra fyrirtækja vegna EFTA-aðildar er endurskoðun skattalöggjafarinnar, þannig að hlutur þeirra í því efni verði ekki verri en þeirra fyrirtækja, sem við þau keppa, bæði hér innanlands og á útflutningsmörkuðum EFTA-landanna. Þeirri athugun er, eins og upplýst hefur verið og hv. dm. mun kunnugt, ekki lokið, og að því leyti, sem árangur þeirrar athugunar hefur verið lagður fyrir hv. Alþ. í frv.-formi nú, þá verður ekki unnt að afgreiða þau, eins og þegar hefur verið upplýst, nema það frv., sem hér liggur fyrir og geymir í þeirri mynd, sem það nú er, aðeins ákvæðið um skattvísitölu, sem ekki er þó gert ráð fyrir, að komi sérstaklega til framkvæmda fyrr en á næsta skattaári, og um frádrátt vegna fyrningar. En það er æskilegt, og raunar nauðsynlegt, að það verði afgreitt, ef á efni þess er að öðru leyti fallizt, vegna þess að gert er ráð fyrir, að það komi til framkvæmda við skattaálagningu þessa árs.

Þó að ekki hefði til EFTA-aðildar komið, væri, eins og raunar kemur fram í grg. fyrir þessu frv., full ástæða til þess að endurskoða þær fyrningarreglur, sem nú eru í gildi, vegna gengisbreytingarinnar. Þar sem meginregla skattal. er, eins og kunnugt er, sú, að afskriftir miðast við kostnaðar- og innkaupsverð vöru, þá gefur það augaleið, að vegna þess að mest af þeim framleiðslutækjum, sem hér eru í notkun, eru keypt fyrir gengislækkun, þá hlýtur fyrning, sem miðast við kaupverð viðkomandi tækja, að vera ófullnægjandi, því að tilgangurinn með því að leyfa fyrningar sem kostnað fyrirtækja, sem enginn ber á móti, að sé réttmætt og nauðsynlegt, er sá, að gera fyrirtækjunum kleift að safna á þann hátt í sjóði, sem nægi til endurkaupa á þessum tækjum. En það gefur augaleið, að ef tækin hækka mjög verulega í verði, eins og orðið hefur vegna gengisbreytingarinnar, þá nær það ekki hinum tilætlaða tilgangi fyrningarinnar, að afskriftirnar séu miðaðar við innkaupsverð. Á þessari grundvallarreglu verður þó ekki gerð breyting með frv. því, sem fyrir liggur, þó að samþ. yrði, en hins vegar er þar beitt heimild til þess að bæta þeim prósentum, sem í frv. greinir, við þær afskriftir, sem heimilaðar eru nú.

Nú er ekki unnt að gera sér grein fyrir því, hvaða áhrif samþykkt þessa frv. um nokkra aukningu á fyrningum, mundi hafa. Ég spurðist einmitt fyrir um það hjá ríkisskattstjóra í morgun, hvort þess væri nokkur leið, og svarið við því, sem raunar kom mér ekki á óvart, var það, að slíkt yrði ekki gert nema að undangenginni athugun, sem hlyti að taka töluverðan tíma. En hvað sem því líður, þá held ég, að sú skoðun, sem kemur fram í áliti hv. minni hl., að þetta geti haft veruleg áhrif fyrir útsvars- og tekjuskattsálagninguna, sé óraunsæ m.a. með tilliti til þess, að þar sem fyrningin, eins og hún er nú, miðast við miklu lægra verð en gangverð er nú, þá getur ekki verulega um þetta munað. Telja verður öldungis ólíklegt, að þær fjárhæðir, sem hér um ræðir, geti verið svo háar, að það geti nokkur áhrif haft á skattlagninguna í heild. Eins og kunnugt er, var árið 1969 ekki neitt veltiár fyrir atvinnuvegi landsins, þó að það hafi kannske verið eitthvað betra en kreppuárið 1968, þannig að mér þykir með miklum ólíkindum, það er að vísu á þessu stigi málsins ekki hægt að fá úr því skorið með tölum, eins og ég sagði, — að hér geti verið um teljandi fjárhæðir að ræða, sem geti nokkru verulegu munað fyrir hið opinbera, en hins vegar getur það þó munað nokkru fyrir þau fyrirtæki, sem hér eiga hlut að máli.

Rétt er í því sambandi að upplýsa það, að ríkisskattstjóri eða skrifstofa hans gaf þær upplýsingar, að þessi hækkun fyrninganna mundi hvorki hafa áhrif á aðstöðugjald né iðnlánasjóðsgjald. Hvað því fyrra viðvíkur, þar sem aðstöðugjaldið er miðað við kostnað fyrirtækjanna; en fyrningarnar eru viðurkenndar sem kostnaðarliður, þá kann þetta e.t.v. að koma einkennilega fyrir sjónir, en þannig er litið á, að hér sé aðeins um að ræða tekjufrádrátt, sem miðaður sé við fyrningu, ekki eiginlega hækkun á tilkostnaði. Þessi er túlkun ríkisskattstjóra í þessu efni, þannig að aðstöðugjöld mundu ekki koma til að hækka, þó að þetta yrði samþykkt. Það er rétt, að þetta sé upplýst, þannig að ég held, að því þurfi undir öllum kringumstæðum ekki að gera skóna, að samþykkt þessa frv. skapi hættu á því, að skattahækkun verði hjá almenningi.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta frv. Það er einfalt í sniðum. Ég get þó ekki stillt mig um að bæta því við, að launþegarnir og þeir, sem hjá fyrirtækjunum starfa, geta ekki, þó að þeir líti aðeins á málin út frá eiginhagsmunasjónarmiði, látið sér í léttu rúmi liggja, að fyrirtækjunum sé gert kleift að laga sig að breyttum aðstæðum.

Ég vil leyfa mér í þessu sambandi að vitna í ummæli, sem ég heyrði í gær danskan sérfræðing í milliríkjaverzlun, sem hér er staddur og flutti fyrirlestur einmitt um vandamál aðildarríkja EFTA fyrir nemendur í viðskiptafræðum, viðhafa, en hann benti varðandi vandamál okkar Íslendinga á tvö atriði, sem of lítill gaumur hefur verið gefinn að mínu áliti. Í fyrsta lagi undirstrikaði hann nauðsyn þess fyrir íslenzka atvinnuvegi að nota sér sem bezt það millibilsástand, sem nú er, þegar fyrirtækin, jafnframt því að hafa þegar öðlazt aðgang að tollfrjálsum markaði í EFTA-löndunum, hafa enn að bakhjarli tollverndaðan heimamarkað. Hann taldi, að einmitt þetta millibilsástand væri sérstaklega nauðsynlegt að nota til þess að komast yfir byrjunarerfiðleika þeirra atvinnugreina, sem í framtíðinni verða að leggja ríkari áherzlu á útflutning en áður hefur verið. Í öðru lagi benti hann á þá miklu áherzlu, sem nú er á það lögð að auka fiskveiðar í þróunarlöndunum. Við höfum fengið af þessu nokkurn smjörþef, þar sem er hin stóraukna framleiðsla Perúmanna. En þetta getur leitt til þess í framtíðinni, að vegna hins lága kaupgjalds í þróunarlöndunum verði mjög erfitt fyrir þau lönd, sem hafa miklu betri lífskjör og þar af leiðandi miklu hærra kaupgjald, þegar frá líður, að keppa við þróunarlöndin, því að flestir munu vera sammála um það, að erfitt mundi að sætta verkalýðinn hér á landi við það að þurfa að þrýsta laununum niður á það stig, sem er í þróunarlöndunum. Nú er það vissulega svo, að samþykkt þessa frv. getur ekki haft úrslitaáhrif í þessu sambandi, en svo langt, sem það nær, er það þó spor í áttina til að auðvelda aðlögun að þeim breyttu viðhorfum, sem nú liggja fyrir.

Herra forseti. Meiri hl. fjhn. mælir með því, að frv. verði samþ.