30.04.1970
Efri deild: 87. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (1157)

220. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég skal nú ekki hefja hér almennar umr. um skattamál. Til þess vinnst enginn tími, þó að vissulega væri fróðlegt að ræða þau.

Ég vil aðeins segja það út af því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði um einingu í Nd. um afstöðu til þessa máls, að þetta mál hefur ekki verið skoðað sem neitt flokksmál. Því hefur verið lýst yfir af öllum flokkum og meira að segja deilt á ríkisstj. fyrir það að hafa ekki nú þegar gert ráðstafanir um skattalagabreytingar til þess að jafna aðstöðu íslenzkra fyrirtækja miðað við fyrirtæki í öðrum EFTA-löndum. Og það voru ein af þeim rökum, sem færð voru fram af ýmsum stjórnarandstæðingum einmitt sérstaklega gegn EFTA-aðild, að það lægi ekki fyrir, hvernig ætti að hlúa að atvinnurekstrinum hér til þess að hann gæti staðið sig í samkeppninni. Og ég hygg, að þetta sé meginskýringin á því, að í hv. Nd. skiptust menn alls ekki eftir flokkum í afstöðu til þessa máls, sem er að sjálfsögðu mjög einfalt og langt frá því að vera það stórmál, sem hv. talsmenn minni hl. n. hér vilja halda fram miðað við skattamál fyrirtækja yfirleitt, sem er miklu umfangsmeira mál.

Þetta atriði er eingöngu tekið út úr því frv., sem liggur nú fyrir hv. Nd., vegna þess að þetta er eina atriðið, sem á að koma til framkvæmda við skattaálagningu í ár, en um fyrningar að öðru leyti hefur engin deila orðið, enda talið, að þær væru eitt af grundvallaratriðum, sem við þyrftum að koma á, þ.e. að fyrnt væri sem næst endurkaupsvirði, og meira að segja liggur í hv. Nd. frammi frv. um það frá hv. stjórnarandstæðingum, ég held hv. framsóknarmönnum eða einhverjum þeirra, að það skuli fyrna af endurkaupsverði, þannig að þetta frv. nær ekki einu sinni svo langt, og því er ekkert að undra, þó að ekki hafi orðið um þetta deila í Nd.

Ástæðan til þess, að þessar umr. fara fram hér í þessari hv. d., er vafalaust sú, sem skiljanlegt er, að fyrir skattamálunum í heild og hinu stærra frv., sem liggur fyrir í Nd., hefur ekki verið gerð grein í þessari hv. d. Ég gerði mjög ítarlega grein fyrir meginbreytingunum, sem í því frv. felast, og þeim meginviðfangsefnum, sem væri við að fást í skattamálum fyrirtækja, þegar 1. umr. var um það frv. Ég heyri það, að ýmislegt af því, sem hefur verið vikið að hér af hv. talsmönnum minni hl. fjhn., stafar beinlínis af því, að þeir hafa af eðlilegum ástæðum ekki heyrt þær skýringar, sem fram komu frá mér í sambandi við framsögu fyrir því máli.

Ég skal ekki eyða löngum tíma í að ræða þetta. Ég vil aðeins taka það fram út af því, sem hv. 4. þm: Norðurl. e. sagði, að engin athugun hefði farið fram á skattamálum á Norðurlöndum. Það er alls ekki rétt. Það hefur farið fram mjög ítarleg athugun á skattamálum fyrirtækja á Norðurlöndum. Hitt er annað mál, að niðurstaðan hefur orðið sú, að það sé mjög erfitt að gera nákvæman samanburð, og það byggist á því, að það eru ýmsar aðrar aðstæður þar, sem þarf að taka til greina. Skattaálagningu er hagað þar með allt öðrum hætti. T.d. er einn skattur hér á Íslandi, sem þekkist ekki í þessum löndum, og það er svokallað aðstöðugjald, sem er mjög þungbær skattur, og í rauninni er efnislega fráleit skattlagning á fyrirtækjum að taka ekki tillit til efnahags þeirra. En það hefur vissulega verið gerð mikil athugun á skattamálum bæði á Norðurlöndum og í Bretlandi, og þær till., sem n. var falið að gera, sem nú liggja fyrir hv. Nd., eru árangurinn af þeim samanburði.

Hv. þm. vék einnig að því, að það ætti að taka til greina, að launakostnaður væri hærri þar en hér. Ég veit nú satt að segja ekki, hvort rétt sé að gera það vegna þess, að mér skilst nú, að stefnan hljóti að vera sú hjá launasamtökunum, að það verði einmitt stefna þeirra, að launagreiðslur geti færzt í svipað horf eins og þar, og því væri kannske hæpið að miða þá ekki skattlagningu félaga við það, að þeim yrði a.m.k. auðveldara að standa undir slíkum launagreiðslum, ef til kæmi. (BJ: Hliðsjón af hvoru tveggja.) Ég veit ekki, hvort á að slá því föstu og hvort hv. þm. telur það æskilegt, að þau séu skattlögð á þann hátt, að það sé ljóst, að það sé ekki hægt að fá þau til þess að greiða þau laun. Ég held, að það sé ákaflega hæpin stefna.

Varðandi það, sem báðir hv. þm. töluðu um, að væri einkennilegt, að við vissum ekki um upphæðir í þessu sambandi, þá veit ég, að þeir eru nú báðir svo glöggir menn, að þeir gera sér fulla grein fyrir því, að það er gersamlega ómögulegt að vita um þessar upphæðir, vegna þess að það veltur allt á því, hver hafi verið afkoma fyrirtækjanna á árinu 1969, að hve miklu leyti þau geta notað fyrningarreglurnar. Það verður ekki hægt að sjá, fyrr en búið verður að fara í gegnum framtöl fyrirtækjanna núna fyrir yfirstandandi ár. Þá auðvitað liggur það fyrir. Fyrr verða það algerar getgátur. Vonandi hefur afkoma fyrirtækjanna verið svo góð, að þetta geti komið þeim til góða, og hafi þau skilað svo miklum hagnaði, sem ég líka vona, að sé rétt, þá ætti þetta ekki að vera stór hætta fyrir ríkissjóð, því að þá ættu fyrirtækin að borga hærri tekjuskatta en gert hefur verið ráð fyrir í áætlun fjárl.

Varðandi það atriði, sem eru einu rökin fyrir því að vísa þessu frv. til ríkisstj. aftur, að óljóst sé með öllu, að hve miklu leyti sé hér átt við íbúðarhúsnæði, þá byggist sú kenning á töluvert veigamiklum misskilningi að því leyti, að ekki er ætlunin að raska í neinu þeim reglum, sem gilda nú um þau atriði, hvernig litið er á íbúðarhúsnæði og annað húsnæði, þannig að það er fyrnt með mismunandi hætti nú, og af því leiðir, að það verður ekkert vandamál. Það verður fylgt nákvæmlega sömu reglum um viðhorf í þeim efnum og gert hefur verið til þessa, þannig að sé það óljóst í þessu frv., þá hefur það einnig verið óljóst í þeim reglum, sem fylgt hefur verið undanfarin ár, en þeim reglum er ekki ætlunin að breyta.

Að þetta mál út af fyrir sig hafi einhver áhrif á launastéttirnar, get ég nú ekki með nokkru móti séð, né að það geti haft áhrif á kröfur þeirra. Ég held, að það sé mjög ljós skilningur á því, að nauðsynlegt sé að búa sem bezt í haginn fyrir atvinnureksturinn og ekki sízt með hliðsjón af aðild fyrirtækjanna að EFTA, eins og komið hefur fram frá öllum aðilum og ég gat um í upphafi máls míns. Vitanlega er góð afkoma fyrirtækjanna grundvöllur þess, að þau geti staðið undir þeim launakröfum, sem til þeirra eru gerðar, án þess að þurfa að tefla afkomu sinni í hættu, þannig að þegar upp er staðið, hvort sem er hlynnt að fyrirtækjum eða ekki, þá efast ég um, að það sé hægt að telja það til nokkurra árása á almenning, því að slíkt getur þá auðveldað fyrirtækjunum að starfa með þeim hætti, að þau geti tekið á sig meiri kvaðir.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að orðlengja frekar um þetta mál. Þetta er einfalt í sniðum í sjálfu sér, en ég tel það mikilvægt, eins og hv. Nd. féllst á nær einróma, eins og hér var upplýst, að þetta einstaka atriði úr skattalagafrv. verði lögfest. Ég gerði mér aldrei von um það, að skattalagafrv. í heild, eins og það liggur nú fyrir hv. Nd., mundi verða afgreitt, enda er þar um mikinn bálk að ræða, sem er eðlilegt, að menn skoði til haustsins, en það mun þá verða lagt fyrir þingið á ný.