21.10.1969
Efri deild: 4. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)
7. mál, sameining sveitarfélaga
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Hæstv. félmrh. hefur gert grein fyrir frv. um sameiningu sveitarfélaga. Í sambandi við þetta frv. hljóta margar spurningar frá sveitarfélögunum að koma fram, þegar þessi mál eru rædd. Hæstv. ráðh. kom inn á nokkur þeirra, en þó engan veginn þannig, að þar kæmu öll aðalatriði fram. Í mörgum tilfellum, hygg ég, að umtalið um sameiningu sveitarfélaga sé fremur sprottið af fjárhagsgetu sveitarfélaganna, hvernig aðstaða þeirra er og hvernig íbúatalan er og fjárhagurinn til félagslegra framkvæmda, heldur en hitt, að það sé nauðsyn af einhverjum öðrum ástæðum, þótt ég viðurkenni, að það er nauðsynlegt fyrir sveitarfélögin að vera vel á verði og vera öflug, ekki sízt gagnvart ríkisvaldinu.
Á síðasta Alþ. var útbýtt skýrslu, sem er samin af þeirri n., sem hæstv. ráðh. gat um, og í þeirri skýrslu eru ákaflega margar upplýsingar um, hvernig ástandið er hjá sveitarfélögum, bæði hvað snertir framkvæmdir og getu þeirra til fjáröflunar. Ég segi ekki, að það sé algild regla, en það er ákaflega víða í þessari skýrslu, að það kemur fram, að fámennustu sveitarfélögin veita mestan afslátt frá gildandi útsvarsstiga. Það er algengt, að þessi fámennu sveitarfélög hafi tiltölulega lægstu útsvörin. Að sameina sveitarfélög eftir fjárhagslegum ástæðum er erfitt, því að ég held, að í þessu sambandi, þegar um sameiningu er að ræða, þá verði það svo til eingöngu þau landfræðilegu viðhorf, sem ráði meiru og miklu meiru en sameining með batnandi fjárhag fyrir augum.
Ég tel t.d., að þótt Skógarstrandarhreppur á Snæfellsnesi sé illa stæður og þurfi að nota alla tekjumöguleika til sveitarinnar til hins ýtrasta og bæta 20% ofan á tekjuútsvarsstigann, þá sé útilokað að sameina þann hrepp þeim hrepp á landinu, sem veitir mestan afslátt frá útsvörum, eða um 70%, af landfræðilegum ástæðum, og þannig er þetta víða.
Þess vegna þarf, um leið og þessi málefni eru athuguð, fyrst og fremst að gera sér grein fyrir fjáröflun sveitarfélaga, tekjumöguleikum þeirra í framtíðinni. Það voru einmitt þau mál, sem ég vildi lítils háttar koma inn á, því að ég veit, að það verður mikið um þau spurt, þegar farið verður að ræða þessi mál heima í hreppunum. Þeim hefur farið fjölgandi hin síðari ár þeim sveitarfélögum, sem eru mjög illa sett til að afla fjár til lögbundinna útgjalda, hvað þá að maður geti rætt um miklar framkvæmdir á þeirra vegum. Því er það höfuðatriði þessa máls, að fyrir liggi, um leið og þau eru rædd, einhverjir nýir tekjumöguleikar fyrir sveitarfélögin eða þá hitt, að sveitafélögin geti losnað við einhver af þeim útgjöldum, sem þau eru skyldug til að inna af hendi nú. Það er þetta tvennt, sem þarf að liggja fyrir og ræðast samhliða því, sem verið er að ræða um sameiningu sveitarfélaga og ríkisvaldið.
Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að sveitarfélögin þurfa að vera svo öflug, að þau hafi eitthvað að segja gagnvart ríkisvaldinu, því að þróunin hefur verið sú, ekki hvað sízt hin síðari ár, að ríkisvaldið hefur komið verkefnum frá sér yfir á sveitarfélögin, og er skemmst að minnast þess, að á s.l. vori voru teknir 430 km, sem voru í þjóðvegatölu, og settir yfir á sýslufélögin og þar með sveitarfélögin. Það var ekki heldur látið þar við sitja, heldur voru vegir heim að öllum skólum, félagsheimilum og kirkjum líka settir yfir á sýslu- og sveitarfélögin, án þess þó að tekjuaðstaða sveitarfélaganna væri að nokkrum hlut bætt í leiðinni. Þá vil ég líka minna á það, að mikið af þeim framkvæmdum, sem hafa verið gerðar í sveitum landsins á undanförnum árum, hafa komizt á einmitt fyrir það, að sýslu- og sveitarfélögin hafa útvegað lán og tekið á sig vaxtabyrðarnar til þess að fá framkvæmdirnar, vegna þess að ríkið hefur ekki getað staðið við sitt, og á það bæði við í vegagerð, rafveitum, skólabyggingum og hafnarbyggingum, og margt fleira mætti þar nefna. Þetta hefur allt orðið til að íþyngja sveitarfélögunum umfram það, sem annars hefði þurft, ef ríkisvaldið hefði staðið við sitt. Þess vegna er það alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að sveitarfélögin þurfa að vera svo öflug, að þau geti staðið sig gagnvart ríkisvaldinu. Þau þurfa líka að vera svo fjárhagslega sterk, að þau geti innt af hendi þau framkvæmdamál, sem tilheyra þeim, og borið uppi lögboðin gjöld, sem á þau eru lögð.
Ég vil taka það fram, að ég er ekki mótfallinn því, að sveitarfélög séu sameinuð, en þar þarf margs að gæta, því að yfirleitt eru þetta mjög viðkvæm mál heima fyrir. Þá á ekki heldur að láta í það skína, að fjáröflunarmöguleikum sveitarfélaga sé borgið með sameiningunni einni saman að óbreyttum lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Í flestum tilfellum þurfa sveitarfélögin meira fjármagn eftir sameiningu en áður, því að þá hverfur þegnskylduvinnan heima í hreppunum, og í staðinn koma sveitarstjórar og skrifstofur, sem þurfa miklu meiri fjárráð en þau laun, sem oddvitar hafa nú. Það er því undirstöðuatriði varðandi sameiningu sveitarfélaga, hvernig þeim verður séð fyrir auknum tekjum, og það bið ég hæstv. félmrh. að upplýsa nú, á hvern hátt rn. hans hefur hugsað sér að mæta þeim auknu þörfum, sem sýnilegt er, að sveitarfélögin þurfa á að halda, sum nú þegar, og miklu fleiri, eftir að sameining hefur átt sér stað.
Hæstv. ráðh. minntist á það, að í till. n. kæmi það fram, að 227 sveitarfélögum yrði breytt í 66 sveitarfélög. Það má vel vera, að þetta verði til bóta, ég skal engu um það spá. En ég minnist þess í þessu sambandi, að það var mikið veður út af því gert fyrir nokkrum árum, þegar 227 skattanefndir voru lagðar niður, eða eitthvað ámóta, og það átti að spara mikla fjármuni með því að hafa skattstofurnar 8. Ég held ég þurfi nú ekki að lýsa sparnaðinum á því sviði fyrir hv. þm., vegna þess að hann er augljós. Það varð ekki um neinn sparnað að ræða, heldur stórkostleg útgjöld fyrir ríkið. Og ég er hræddur um, að þótt 227 sveitarfélög verði lögð niður og þau sameinuð í færri og stærri sveitarfélög, fari það á sama veg og að við þurfum miklu meira fjármagn en við höfum nú fyrir þessi 227, og það liggur ekki sízt í því að stjórna þessum stóru sveitarfélögum, vegna þess að þar tekur hver fyrir sitt. Þar koma stórar skrifstofur, og þetta hleður utan á sig, og því er það enn þá brýnna en annars að ræða í leiðinni fjáröflunarmöguleika sveitarfélaganna, einmitt eftir að sameining á sér stað, og ég held, að það komist aldrei neinn áleiðis í þessum sameiningarmálum sveitarfélaganna, nema því aðeins að það liggi ljóslega fyrir, að tekjumöguleikar þeirra og fjárráð verði betri eftir þá sameiningu en áður.