03.03.1970
Neðri deild: 54. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)
7. mál, sameining sveitarfélaga
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Mér finnst þetta frv. að mörgu leyti mjög sérstætt, og ég man ekki eftir neinu frv. í svipinn af þessari gerð, síðan ég kom á þing.
Mér sýnist eitt aðalatriðið í þessu frv. vera það að stofna embætti til þess að líta eftir lögum um embættið. Þetta frv., sem heitir að vísu um sameiningu sveitarfélaga, en ætti að heita um áróður fyrir sameiningu sveitarfélaga, snýst fyrst og fremst um svokallaðan erindreka, störf hans, verkefni hans á einn eða annan hátt. Samkvæmt 2. gr. segir: „Félmrn. felur sérstökum erindreka að annast framkvæmd laga þessara“ o. s. frv. Já, hvað mætti stofna mörg embætti í landinu, ef það ætti að fara að stofna sérstakt embætti til að líta eftir hverjum einustu lögum sem sett væru? Þeir eru orðnir fámennir í félmrn., ef þeir geta ekki sjálfir litið eftir sveitarstjórnarlögum eða lögum um sameiningu sveitarfélaga rétt eins og öðrum lögum. Nei, nú á að stofna sérstakt embætti. Að vísu hefur hv. Ed. eitthvað hikað við þetta, því að hún bætir inn í 2. gr., „Félmn. felur sérstökum erindreka“ — „fyrst um sinn“.
Það, sem hlýtur að vekja athygli manns, þegar litið er yfir þetta frv., er það, hvaðan það er komið. Hvar er upphaf þessa frv. í raun og veru? Er það hjá fólkinu í sveitarfélögunum, sem þjáist af því, hvað sveitarfélögin eru lítil? Hefur stjórnarvöldunum borizt einhver beiðni eða kvartanir um það úr byggðarlögunum, að það sé eiginlega ekki hægt að halda uppi sveitarfélagi vegna þess, hvað þau eru orðin fámenn? Nei, það er nú öðru nær. Það er ekki komið þaðan, þetta fyrirtæki eða þetta frv. Eftir því sem ég bezt fæ séð af þeim skýrslum, sem komið hafa fram frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, sem gefnar eru út, virðist ekki hafa komið nokkurs staðar fram á landinu ósk um löggjöf um sameiningu sveitarfélaga, mér vitanlega, hvergi nokkurs staðar.
Nú hefur verið, eins og hér hefur verið réttilega bent á, löggjöf um sameiningu sveitarfélaga, og slík sameining getur farið fram og hefur ekkert verið því til fyrirstöðu að undanförnu, hvað löggjafarhliðina snertir, en í skýrslu sveitarstjórnasambandsins er sagt frá þeim skilyrðum, sem þurfi til þess samkv. núgildandi lögum að sameina sveitarfélög, og segir svo, að að þessum skilyrðum fullnægðum skuli félmrn. framkvæma sameininguna. Raunar var þessi heimild í eldri sveitarstjórnarlögum. Þessi heimild hefur víst aldrei verið notuð. Áhuginn eða óskirnar eru ekki meiri en þetta utan af landinu um sameininguna. Málið er komið frá stjórnarvöldunum sjálfum, og það er reynt að knýja fram þessa sameiningu með sérstökum embættismanni, sem á að hafa alveg óvenjulegu hlutverki að gegna að mínum dómi samkvæmt þessu frv.
Í þessu frv. er sagt m. a., að hlutverk erindrekans skuli vera að eiga frumkvæði að því, að athuguð verði skilyrði fyrir sameiningu einstakra sveitarfélaga. Af hverju þarf erindreki að eiga frumkvæðið að því? Mundu ekki sveitarstjórnarmenn heima fyrir eiga slíkt frumkvæði, ef þeir sæju nokkra þörf á sameiningu, ef þeir kærðu sig bókstaflega um hana? Þarf einhvern erindreka sunnan úr Reykjavík til þess að hafa frumkvæði að því, að sveitarfélög séu sameinuð?
Í 3. gr. segir, að stofna skuli sameiningarnefndir, sem rannsaki möguleika á sameiningu sveitarfélaga. Slík n., sem kosin er, kýs sér formann úr sínum hópi, en heimilt er að fela erindreka formennsku n. Þarna er hreinlega gefið í skyn, að þeir séu ekki færir um það heima fyrir að láta n. starfa á félagslegan hátt og það þurfi erindreka frá ríkisstj. til þess að hún vinni eins og vera ber. Þetta er nú eitt sýnishornið af virðingunni, sem borin er fyrir forustumönnum sveitarfélaganna í þessu frv.
Enn fremur segir í 3. gr.: „Samstarfsnefndir skulu haga störfum sínum í samráði við erindreka.“ Þær verða að gera svo vel að bera undir hann, hvernig þær eigi að haga sér við að rannsaka, hvort vilji er til heima fyrir um sameiningu. Það þarf að bera það undir hann. Þeir eru ekki færir um það, forustumenn sveitarfélaga, að kanna hjá sínu fólki, hvort það vill sameiningu. Þetta er annað sýnishorn úr þessu frv.
Í 4. gr. segir:
„Erindreki getur af sjálfsdáðum gert till. um sameiningu tilgreindra sveitarfélaga, og er þá sveitarstjórnum þeim, sem hlut eiga að máli, skylt að kjósa samstarfsnefnd.“
Ef þeir hafa ekki haft frumkvæðið sjálfir, ef þeir óska ekkert eftir því eða kæra sig ekki um neina sameiningu, getur bara erindrekinn komið og sagt þeim: „Gerið þið svo vel og kjósið þessa n., og látið hana starfa eftir mínum fyrirmælum.“
Einna mest að mínum dómi er áberandi í 5. gr. það virðingarleysi, sem borið er fyrir forustumönnum sveitarfélaga í þessu frv. Þar er fyrst talað um, að sveitarstjórnirnar eigi að ákveða, hvort sameining eigi að fara fram. Þetta er að vísu ekki í ósamræmi við gildandi lög, en ákaflega finnst mér það nú hæpið og eiginlega alveg óviðunandi, eins og hv. síðasti ræðumaður benti réttilega á, að sveitarstjórnirnar einar eigi að taka ákvörðun um sameiningu. Nú eru það sums staðar ekki nema þrír menn og víðast kannske annaðhvort þrír eða fimm menn, og meiri hl. á að taka þessa ákvörðun. Tveir menn í sveitarfélagi geta tekið ákvörðun um að leggja hreppinn niður og sameina hann öðrum hreppi, þó að mikill meiri hluti íbúa sveitarfélagsins sé algerlega á móti því. En þetta er ágalli líka í núgildandi lögum, það skal ég taka fram, og það þarf að lagfæra. En svo segir hér í þessari 5. gr.:
„Nú verður ágreiningur innan sveitarstjórnar um afgreiðslu málsins, og er þá sveitarstjórn heimilt að láta fara fram atkvgr. innan sveitarfélagsins um sameininguna.“
Það er heimilt, en ekki skylt, en ég álít hins vegar, að ætti að vera tvímælalaus skylda í hverju einasta sveitarfélagi að bera það undir almennan kjósendafund í hreppnum, hvort sameining eigi að fara fram. Og svo kemur þessi merkilega setning:
„Erindreka er og heimilt að ákveða, að fram skuli fara atkvgr. um sameiningu í sveitarfélagi, ef sveitarstjórn þess hefur fellt ályktun um sameiningu.“
Hafi sveitarstjórnin fellt slíka ákvörðun, getur erindrekinn komið og sagt: „Gerið svo vel og látið fara fram almenna atkvgr. um þetta.“ En hafi sveitarstjórn samþ. það, þarf ekkert að spyrja fólkið að þessu. Maður sér svo sem svipinn á þessu.
Það vekur líka athygli mína, hvernig frv. er kynnt, eða réttara sagt, hvernig leitað er eftir skoðunum manna víðs vegar um landið um sameiningarmálin í heild. Frá þessu er rækilega skýrt í Sveitarstjórnartíðindunum, sem menn hafa sjálfsagt lesið. Þar er lögð spurning fyrir alla sýslumennina í landinu. Og aðalspurningin er þessi: „Álítið þið rétt að sameina sveitarfélög?“ Sýslumennirnir eru spurðir, sveitarstjórnir eru hvergi spurðar, sýslunefndir eru ekki spurðar, bara sýslumennirnir. Og það liggur fyrir opinberlega álit allra 16 sýslumannanna í landinu í Sveitarstjórnartíðindum. Og svörin hjá sýslumönnunum eru langsamlega flest á þá leið, að þeir eru stuðningsmenn þess, að sveitarfélög verði sameinuð. Af þeirri skýrslu um þetta, sem fram kemur í Sveitarstjórnartíðindum, sýnist mér, að undirtektir sýslumanna hafi verið á þessa leið: Einn sýslumaður segir ekkert um sitt persónulega álit á því. Tveir eru andvígir sameiningu sveitarfélaga. Einn er jákvæður, ef fullnægt er ákveðnum skilyrðum, þ. á m., að sveitarfélögin samþykki sjálf sameininguna, en 12 af 16 eru skilyrðislaust fylgjandi sameiningu. Þetta er út af fyrir sig ekkert undarlegt, því að sýslumönnum er það áreiðanlega ákaflega mikið hagræði að fækka sveitarfélögum, og ég býst við, að félmrn. sé það líka mikið hagræði.
En hvernig er álit forustumanna sveitarfélaganna, sjálfra, hreppsnefndarmanna og sýslunefndarmanna? Hvað segja þeir um þetta frv., sem svona rækilega var lagt fyrir alla sýslumenn? Í þeirri skýrslu úr Sveitarstjórnartíðindum, sem ég hér nefndi, kemur það fram, að í þessum 16 sýslufélögum eru sýslunefndarmenn og sveitarstjórnarmenn, sem sýslumenn hafa rætt málin við og kynnt sér skoðanir þeirra, þessarar skoðunar: Í einu sýslufélagi eru menn hvort tveggja jákvæðir og neikvæðir. Þeir voru það sitt á hvað, sem spurðir voru þar. Í öðru sýslufélagi voru menn óákveðnir, og var ekki hægt að ráða af svörum þeirra, eftir því sem þarna er skýrt frá, hvort þeir aðhylltust heldur sameiningu eða ekki. Í þremur sýslufélögum eru forustumenn, sem spurðir voru af viðkomandi sýslumanni, andvígir sameiningu. Og í 11 sýslufélögum er ekki einn einasti maður um þetta spurður, að því er séð verður í Sveitarstjórnartíðindum. Þeir eru ekkert um það spurðir. En í engu sýslufélagi kemur það fram, að sýslunefndarmenn eða sveitarstjórnarmenn séu jákvæðir, að undanteknu þessu eina, þar sem hvort tveggja kom fram, andstaða og samþykki við sameiningu. Þannig er þá álitið á þessari sameiningu úti um landið, eftir því sem bezt verður séð af Sveitarstjórnartíðindunum, eins og komið var, þegar þau voru gefin út s. l. sumar. Nú kann að vera, að þetta hafi verið eitthvað betur kannað síðan.
Samkvæmt ákvæðum 13. gr. frv. á ríkisstj. eða ráðh. að vera heimilt að sameina hrepp nágrannasveitarfélagi samkv. till. erindreka, án þess að fyrir liggi samþykki hlutaðeigandi sveitarstjórna og sýslunefndar, ef íbúatala hreppsins hefur í þrjú ár verið lægri en 50.
Þetta snertir ekki sízt mitt kjördæmi, því að af þeim tíu hreppsfélögum í landinu, þar sem þessi mannfjöldi var svona lágur, eru fjögur, að því er ég ætla, á Vestfjörðum. Nú skal ég játa, að ég er ekki kunnugur skoðunum manna í þeim öllum, og kannske allt of lítið kunnugur í hinum líka, en þó vil ég geta þess, að í sumar sem leið kom ég á Bíldudal, og þá var nýafstaðinn fundur, sem þar hafði verið haldinn að tilhlutun erindrekans um sameiningarmálið, en eins og mönnum er kunnugt, þá er till. erindrekans eða sameiningarnefndar að sameina í eitt sveitarfélag Ketildalahrepp og Suðurfjarðahrepp, en Suðurfjarðahreppur er fyrst og fremst Bíldudalur. Þarna hafði verið haldinn vel sóttur fundur um þetta mál, og ég spurðist fyrir um, hvert álit manna hefði verið þar. Mér var sagt, að í stuttu máli hefði niðurstaðan orðið sú, að hreppsbúar beggja hreppanna hefðu verið hjartanlega sammála um, að það kæmi ekki til mála að sameina þá. Þetta er sameining, sem samkv. þessu frv. á að geta átt sér stað, án þess að þeir séu neitt spurðir um það. Ráðh. á að fá vald til að sameina Ketildalahrepp og Suðurfjarðahrepp. Eftir því, sem enn er vitað, eru hreppsbúar í báðum hreppunum algerlega andvígir sameiningunni. Það má því búast við, að eitt fyrsta verkið, sem þarna verður framkvæmt, verði að sameina þessa hreppa.
En nú vil ég ekki neita því, að það geti verið hagkvæmt og skynsamlegt að sameina hreppa, ef það er gert á lýðræðislegan hátt og fólkið sjálft fær að ráða því. En hvað er það, sem hefur komið fram hjá þessum fámennu hreppum, sem gerir það svo óskaplega aðkallandi, að það þurfi að setja í gang sérstaka löggjöf með sérstökum embættismanni til þess að knýja þá til þess að sameina sveitarfélögin? Er einhver stórkostleg vanræksla á ferðinni í opinberum störfum í þessum fámennu sveitarfélögum, sem um er að ræða? Er þannig ástatt um þessi tíu sveitarfélög, sem talin eru upp í frv., að þarna verði að grípa til valds og sameina með valdi e. t. v. gegn vilja hreppanna, af því að það hafi átt sér stað einhver alvarleg vanræksla í opinberum störfum oddamanna viðkomandi sveitarfélaga? Það er a. m. k. full ástæða til, að forvígismenn þessa frv. skýri frá því, ef slíkt hefur átt sér stað.
Ég skal nú ekki orðlengja þetta miklu meir, en ég vil beina þessum aths., sem ég hef hér komið með, fyrst og fremst til þeirrar n., sem fær frv. til meðferðar. Þennan embættismann, sem nú á að setja á laggirnar „fyrst um sinn“, eftir breyt. í Ed., tel ég með öllu óþarfan og nánast hreinasta hneyksli að fara að stofna embætti í þessu skyni og alger móðgun við forustumenn sveitarfélaga heima fyrir, að það þurfi að setja þeim slíkan eftirlitsmann. Þeir eru sannarlega færir um það, sveitarstjórnarmenn og sýslunefndarmenn úti um allt land, að gegna slíkum störfum sem þeim að kanna, hvort menn vilja sameina sveitarfélög eða ekki.
Í öðru lagi legg ég mikla áherzlu á það, að þar sem sameining fer fram, verði ekki sveitarstjórnunum einum veitt vald til að ákveða slíkt, heldur skuli þær láta fara fram almenna atkvgr. heima fyrir, áður en það á sér stað. Og ég sé ekki, að mikil vandkvæði séu á því meira að segja samkv. núgildandi lögum. Við sjáum sameiningarmál Ísafjarðar og Eyrarhrepps, þar sem nýafstaðin er atkvgr. um málið. Þar er lýðræðislega farið að hlutunum. En það varð að gera vegna gildandi laga. Slíkt á ekki að gera samkv. þessu frv. eða á ekki að vera nein skylda.
Ef þetta frv. nær fram að ganga í því formi, sem það er, þá held ég, að það fari að verða þörf á því að endurskoða ýmis önnur lög með tilliti til þess, hvort ekki eigi að setja sérstaka embættismenn til þess að líta eftir framkvæmd þeirra. Það er áreiðanlega ekki minni þörf á því, ef þörf er á slíku embætti sem hér er verið að bollaleggja.