27.04.1970
Neðri deild: 85. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1027 í B-deild Alþingistíðinda. (1230)

7. mál, sameining sveitarfélaga

Frsm. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Heilbr.-og félmn. hefur fjallað um þetta frv. og rætt það á nokkrum fundum. Frv. hefur verið rætt allítarlega, en að því athuguðu hafa allir nm. orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. með þeim brtt., sem eru á þskj. 698.

Eins og menn muna og fram kom hér við 1. umr. málsins í hv. d., eru skoðanir manna nokkuð skiptar í þessu máli. Niðurstaða n. er því, eins og að líkum lætur, þannig, að hún ber keim málamiðlunar. Eigi að síður eru þó flestir á einu máli um það, að rétt sé að huga að þessum málum framvegis á líkan hátt og gert hefur verið hingað til, þ. e. a. s. að félmrn. hafi það á sinni könnu í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga.

Ég get farið fljótt yfir sögu, að því er lýtur að þessum brtt., sem n. gerir á frv., eins og það kom frá hv. Ed. Þær eru í stuttu máli, að öll ákvæði í frv., sem lúta að sérstökum erindreka, er hafi þessi mál með höndum og annist og ýti á framkvæmd þeirra, eru numin brott, en þess í stað ætlazt til þess, að félmrn. hafi þau með höndum, hér eftir sem hingað til, eins og kemur skýrt fram í 1. gr.

Ég ætla ekki að lesa þessar brtt. allar upp. Það er þarflaust, en aðeins geta þess, að þær till., sem horfa til breyt. á 3.–7. gr., eru allar þess efnis, að ákvæði um sérstakan erindreka eru numin á brott. Auk þess eru gerðar örfáar lagfæringar á orðalagi, en efnisbreytingar eru held ég ekki neinar gerðar á þessum gr. Að því er varðar 8.–12. gr., eru þær óbreyttar, eins og Ed. samþykkti þær, en síðan kemur breyt. á 13. gr. frv. Um hana voru skoðanir nokkuð skiptar, en samkomulag náðist um að orða hana á þá leið, sem gert er á þskj. 698, en í stað hins upphaflega orðalags hljóðar gr. svo, þ. e. a. s. 1. mgr. gr. hljóðar þá þannig nú:

„Ráðherra er heimilt að sameina hrepp nágrannasveitarfélagi að fenginni jákvæðri umsögn viðkomandi sýslunefndar og/eða bæjarstjórnar, ef íbúatala hreppsins er lægri en 30.“

Ég skýri þetta ekki nánar, en að sjálfsögðu er þetta málamiðlun frá því, sem upphaflega var orðað. 14. gr. breytist svo aðeins að því leyti, að erindrekinn og ákvæðin, sem um hann fjalla, eru numin brott.

Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta frv., en að þessu athuguðu leggur n. til, að það verði samþ.