28.04.1970
Neðri deild: 88. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)
7. mál, sameining sveitarfélaga
Frsm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Eins og ég lýsti hér við 2. umr. málsins, náðist um það víðtækt samkomulag eða allsherjarsamkomulag í n., sem um það fjallaði, byggt á allvíðtækri málamiðlun. Eins og frv. er nú úr garði gert, miðar það að því að vinna áfram að athugun þessara mála á svipaðan hátt og gert hefur verið, en þó er það algerlega undir vilja sveitarfélaganna sjálfra komið, hver framvinda málsins verður, og forráðamanna þeirra.
Ég tel því, að þessar brtt., sem hv. 1. þm. Norðurl. e. lýsti nú, séu frv. til óþurftar. Ég held, að þær séu algerlega óþarfar. Þegar gengið er svo langt t. d. að geta ekki einu sinni fellt sig við fyrirsögn frv., finnst mér það lýsa nokkuð mikilli þröngsýni í slíku máli, sem allir viðurkenna þó, að verður að sinna nú á tímum. Þess vegna vil ég leggja eindregið til, að þessar till. verði felldar.