10.03.1970
Efri deild: 53. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)

78. mál, skipan opinberra framkvæmda

Jón Þorsteinsson:

Herra forseti. Þetta er í rauninni stórt mál, sem hér er á ferðinni, sem hefur hlotið mjög mikinn og vandaðan undirbúning. Engu að síður eru það örfá atriði í þessu frv., sem ég vildi leyfa mér að gera aths. við og flytja brtt. í sambandi við þau.

Hv. formaður fjhn., sem hafði þetta mál til athugunar, hefur hér gert grein fyrir þeim tveim brtt., sem n. flytur, og er ég þeim báðum sammála. Önnur brtt. er á þá lund, að það falli niður úr 23. gr. orðin „undir stjórn sérstaks forstjóra.“ En í 22. gr. frv. eru settar reglur um svonefnda samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir, og þar er sagt, að einn af þeim, sem á að sitja í þeirri n., sé forstjóri framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins. Ég leyfi mér að benda hér á þetta, ekki fyrir það, að ég ætli að flytja neina brtt. um þetta atriði, en þetta mun vera athugunarleysi hjá n. að hafa ekki fellt niður forstjóratitilinn þarna í 22. gr. einnig. Mér virðist þó vera samræmi í því.

En ég flyt hér aðeins tvær brtt. við þetta frv., og er nú ekki hægt að kalla þær stórvægilegar. Það er því miður ekki búið að útbýta þeim. Ég afhenti þær ekki fyrr en núna um hádegið, en ég skal gera hv. þd. grein fyrir þessum till.

Af því að ég var nú farinn að tala svolítið um 22. gr., þá er rétt að ég víki fyrst að brtt., sem ég flyt við hana. En þar segir um þessa samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir, í 2. mgr. 22. gr., að hún hafi það hlutverk að leiða saman sjónarmið eignaraðila opinberrar framkvæmdar á undirbúningsstigi og rannsaka frumatriði úr áætlunargerð, sem er undanfari verklegrar framkvæmdar. Ég tel, að þetta sé ekki alveg fullnægjandi. Brtt. mín er á þá lund, að í staðinn fyrir „undirbúningsstigi“ komi: undirbúnings- og framkvæmdastigi, vegna þess að iðulega geta risið einhverjar greinar með eignaraðilum opinberrar framkvæmdar, meðan hún er á framkvæmdastiginu. Maður tekur t. d. það, ef gera þarf breytingar á verkinu, taka þyrfti ákvörðun, hvort ætti að skipta verksamningi og sitthvað fleira, þannig að ég tel rétt, að þessi n. leiði saman sjónarmið aðilanna frá því, að undirbúningur hefst, og þangað til framkvæmd lýkur. En hlutverk hennar falli ekki niður, þegar undirbúningsstiginu er lokið. Þarna held ég, að geti verið mjög æskilegt að hafa aðila, sem sameinar sjónarmið eignaraðila, sem í mörgum tilfellum geta verið margir eða a. m. k. tveir eða fleiri.

Hin brtt. er við 17. gr. frv., sem fjallar aðallega um ráðningu umsjónarmanna eða eftirlitsmanna með verklegum framkvæmdum. Í þessu frv. segir, ég held á tveimur stöðum, bæði í 21. gr. og líka í 23. gr., að framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins fari með yfirstjórn verklegrar framkvæmdar. Og samkv. frv. á þessi yfirstjórn með verklegri framkvæmd að hefjast, þegar verk er boðið út. Til þess að hafa þessa yfirstjórn á hendi þá annast framkvæmdadeildin undirbúning að verksamningsgerð, og hún sér um það, að samningar séu gerðir við verktaka, þó að eignaraðilarnir að sjálfsögðu undirriti þá samninga. Síðan fylgir hún verkinu eftir eða sér um, að það sé framkvæmt af þeim, sem hafa gerzt verktakar eða tekið að sér verkefni eða selja þangað efni og annað slíkt, og síðan hlýtur hún að sjá um úttektina. Einnig sér Innkaupastofnunin um allt reikningshald og greiðslur vegna verksins, á meðan það er á framkvæmdastigi. Einn af þeim þáttum, sem ég tel, að sé nauðsynlegt, að sé á hendi framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins, til þess að hún bókstaflega geti farið með yfirstjórn verklegra framkvæmda, er það, að hún stjórni eftirliti með verkinu og eftirlitsmennirnir, sem eiga að fylgja verkinu eftir og sjá um, að verksamningar séu efndir og réttilega framkvæmdir, verða að vera starfsmenn framkvæmdadeildarinnar og undir hennar húsbóndavaldi og hlíta hennar fyrirmælum. En þannig er þessu ekki varið samkv. ákvæðum 17. gr. frv. En í þessari 17. gr. segir, eins og hún er núna, að við hvert verk skuli eignaraðili eða eignaraðilar sameiginlega tilnefna sérfróðan umsjónarmann með framkvæmd verksins samkv. 16. gr. Framkvæmdadeildin skal samþykkja umsjónarmanninn. Hann skal hafa fullt umboð til að koma fram fyrir hönd eignaraðila gagnvart verktaka og öðrum um allt, er varðar framkvæmd verksins. Svo kemur enn fremur, að frávik frá áætlun og verksamningi og verklýsingu gerðum samkv. henni má eigi gera, þótt nauðsynleg séu, nema með samþykki umsjónarmanns. Síðan er talað um sérstakt erindisbréf um valdsvið umsjónarmanns og störf og að umsjónarmaður skuli gefa skýrslur um verk samkv. ákvæðum í erindisbréfi sínu og fyrirmælum framkvæmdadeildar.

Ég tel það eðlilegt, þegar þessi framkvæmdadeild er komin á stofn og farin að sjá um framkvæmd margra verka fyrir ríki og sveitarfélög sameiginlega, að hún hafi auðvitað á sínum vegum nokkurn hóp byggingaeftirlitsmanna, sem sjá um eftirlitið, og það er reyndar gert ráð fyrir því hér í þessu frv., beinlínis tekið fram í 23. gr., að framkvæmdadeildin eigi að taka við starfsemi byggingadeildar menntmrn. og byggingaeftirlitsins við embætti húsameistara, þannig að þeir byggingaeftirlitsmenn, sem hafa starfað við þessi embætti, fara væntanlega yfir til framkvæmdadeildarinnar og verða byggingaeftirlitsmenn á hennar vegum. Og það er, þegar ein slík deild, eins og framkvæmdadeild Innkaupastofnunar kemur til með að verða, hefur umsjón með mörgum verkum samtímis, þá er auðvitað hægt að nýta mjög vel starfskrafta þessara manna, þannig að það geta auðvitað við sömu framkvæmdirnar verið 2–3 eftirlitsmenn, eða eftirlitsmaður með trésmíði eða uppsteypu, annar eftirlitsmaður með raflögn o. s. frv., o. s. frv., og það er hægt að skipuleggja og hafa þetta á haganlegan hátt. En ég tel, að þessir eftirlitsmenn eigi tvímælalaust að vera starfsmenn framkvæmdadeildarinnar og vinna á hennar ábyrgð, enda eðlilegt, þegar sama stofnunin hefur reyndar reikningshald og greiðslur með höndum, að þetta sé allt á sama stað.

Hitt er annað mál, að framkvæmdadeildin getur auðvitað, meðan á verki stendur, þurft að hafa samband við eignaraðilann. Það getur verið viðkomandi rn., ef þetta er ríkið, sem er eignaraðili, og það geta verið sveitarfélag, bæjarstjóri eða eitthvað slíkt, en að ætla eftirlitsmönnunum að vera sérstakir fulltrúar eignaraðilanna, það held ég að sé kerfi, sem varla muni ganga. Þetta mundi ekki kosta aukið mannahald, þó að þessu yrði breytt, eins og ég legg nú til, því að vitanlega þurfa þetta ekki alltaf að vera fastir eftirlitsmenn, þó að þeir séu ráðnir hjá framkvæmdadeildinni og starfi þar. Það geta auðvitað verið lausráðnir menn, sem aðeins starfa þar, meðan eitt verk er framkvæmt, og hætta svo, þó að sennilega verði almennast, að það verði þessir föstu eftirlitsmenn.

Till. mín um 17. gr. er á þessa leið, ég ætla að leyfa mér að lesa hana. Ég legg til, að gr. hljóði svo:

„Við hvert verk skal framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins ráða einn eða fleiri sérfróða eftirlitsmenn eftir þörfum, er hafi eftirlit með framkvæmd verksamnings. Eftirlitsmenn skulu samþykktir af eignaraðila eða eignaraðilum sameiginlega, ef um fleiri er að ræða. Í sérstöku erindisbréfi skal kveða á um störf og valdsvið eftirlitsmanna. Skýrslur eftirlitsmanna ber að senda öllum aðilum að framkvæmdum og ríkisendurskoðun. Framkvæmdadeildin ber ábyrgð á störfum eftirlitsmanna gagnvart eignaraðilum.

Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins er heimilt upp á sitt eindæmi að gera minni háttar frávik frá áætlun samkv. 9. gr. og verklýsingum og verksamningum gerðum samkv. henni, en meiri háttar frávik, þótt nauðsynleg séu, má eigi gera nema með samþykki eignaraðila.“

Ég lít svo á, að þegar framkvæmdadeildin tekur að sér yfirstjórn einhverra tiltekinna, verklegra framkvæmda samkv. þessu frv., ef það verður að lögum, þá eigi framkvæmdadeildin vissulega að bera ábyrgð á þeirri þjónustu eða því verkefni, sem hún þar með tekur að sér. Til þess að hún geti gert það og eigi að gera það, verður hún auðvitað að ráða þá starfsmenn og hafa húsbóndavald yfir þeim mönnum, sem eiga að taka þátt í þessu verki, og með þessu á réttur eignaraðilanna ekkert að vera skertur að minni hyggju.

Ég vil þá, þar sem þessum brtt. hefur ekki verið útbýtt, afhenda hæstv. forseta þær með tilmælum um að leita afbrigða.