29.04.1970
Sameinað þing: 49. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1075 í B-deild Alþingistíðinda. (1312)

227. mál, fjáraukalög 1968

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur yfirfarið frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1968 á þskj. 613. Hefur n. ekki fundið neitt athugavert við frv. og leggur til, að það verði samþ., eins og það liggur fyrir. Ég vil geta þess, eins og fram kemur reyndar í aths. við frv., að þær umframgreiðslur, sem heimilaðar eru samkv. þessu frv. til fjáraukalaga, hafa ekki allar verið inntar af hendi áður í heimildarleysi, eins og ég hygg, að hæstv. fjmrh. hafi bent á í framsögu sinni við 1. umr. málsins. Þeim er hins vegar haldið til haga í þessu frv. til fjáraukalaga til þess að auðvelda mönnum samanburð og athuganir á fjárl. síðar meir. En á bls. 152–157 í ríkisreikningnum er gerð grein fyrir m. a. þessum umframgreiðslum og enn fremur gerð grein fyrir því, hver áhrif lög nr. 5 um ráðstafanir vegna lækkunar ríkisútgjalda frá 1968 hafa haft á ríkisreikninginn. En þau lög önnur, sem hafa þarna áhrif á, eru lög nr. 12 frá 18. febr. 1968. Það eru lög um viðauka við lög nr. 4 frá 31. marz 1967, um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, og enn fremur er þarna um að ræða lög nr. 13 frá 18. marz 1968, um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins.

Ég hygg, að það sé ekki þörf á að skýra þetta mál frekar, en leyfi mér að leggja til fyrir hönd fjvn., að frv. verði samþ. óbreytt.