04.11.1969
Efri deild: 10. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1078 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)

50. mál, Siglingamálastofnun ríkisins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Af vanmætti vildi ég reyna að svara hv. 3. þm. Reykn., en meginatriðið í hans athugasemdum var það, að hér væri verið að stofna allfjölmenna stofnun og að því er virtist að óþörfu. Ég undirstrika þá tilvitnun, sem hann vitnaði til í aths. með frv., að það væri skilyrði af hálfu ríkisstj., að hér væri ekki um starfsmannafjölgun að ræða og alger forsenda þess, að frv. væri flutt af ríkisstj. Um eftirlitsmenn og sérstaka trúnaðarmenn úti á landi, þá er heimild í núverandi lögum um það efni fyrir skipaskoðunarstjóra, eins og hann heitir nú, til að velja slíka menn alveg án nokkurs samráðs við rn., þannig að þessi heimild er þegar til í lögum. Um eftirlitsmenn er einnig heimild í núgildandi lögum.

Ég veit, að stundum hefur til þess verið gripið, þegar kærur hafa borizt um slæman frágang á skipum í einstökum verstöðvum, að senda þangað sérstaka umferðareftirlitsmenn. Ég hygg því, að það sé nokkuð orðum aukið, að hér sé verið að fjölga starfsfólki. Fyrir liggja yfirlýsingar þeirra aðila, sem að þessu frv. standa, að ekki eigi að vera um neina starfsmannafjölgun að ræða. Auk þess vil ég vitna til grg. þeirrar, sem síðast er prentuð í frv. og er frá forustumönnum þriggja stærstu samtaka, sem hér eiga hlut að máli, en þeir segja sjálfir í sínum niðurstöðum:

„Niðurstaða okkar er sú, að frv. um Siglingamálastofnun ríkisins sé nú svo úr garði gert, að eðlilegt sé, að það nái fram að ganga. Við erum og þeirrar skoðunar, að mjög sé aðkallandi að ljúka afgreiðslu þessa máls sem allra fyrst, þar sem á því veltur ýmisleg önnur nauðsynleg lagasetning og lausn á aðkallandi verkefnum þessarar stofnunar.

Loks teljum við, að með frv., ef að lögum verður, sé skipan þeirra mála, sem það fjallar um, gerð gleggri og einfaldari, og ætti það m. a. að eyða margvíslegri tortryggni, sem virðist hafa legið í loftinu um störf þessarar stofnunar.“

Ég tel, að eftir ítarlega og jafn langvinna athugun og hér er um að ræða, þriggja ára aðdraganda, þá geti menn alls ekki skorazt undan því að taka afstöðu til málsins, og ég vona, að hún verði jákvæð.