29.04.1970
Neðri deild: 89. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1093 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)

50. mál, Siglingamálastofnun ríkisins

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef nú hlýtt með athygli á mál hv. frsm. sjútvn. og annars hv. þm., sem ég ætla að einnig sitji í sjútvn., um þetta mál og þessar brtt., sem hér liggja fyrir. Eftir að hafa hlýtt á þetta sýnist mér, að hér sé um vissan ágreining að ræða og að vel megi vera, að sjútvn. þessarar d. hafi að einhverju leyti réttara fyrir sér, og ég get samþ. sumt af því, sem hún leggur til. En mér sýnist hér eftir lýsingu þessara tveggja hv. sjútvn.-manna vera um minni háttar ágreining að ræða, þótt vel megi vera, að málstaður þeirra sé, þegar þetta er allt tekið saman, ekki síðri en n. í Ed. En mér sýnist vera um minni háttar ágreining að ræða miðað við önnur atriði, sem í frv. felast, sem okkur var tjáð hér fyrr á þingi, að þyrftu endilega fram að ganga. Þess vegna sýnist mér það nálgast ofurkapp, sem fram kom hjá öðrum sjútvn.-manninum, þegar hann sagði, að hann vildi heldur láta frv. falla en láta af þessu stríði við sjútvn. Ed. Mér fannst nú á þessum umr. eins og í þessu kynni að vera eitthvað persónulegt í sambandi við skipaskoðunina. Það læt ég mig engu varða og kæri mig ekki um að taka neina afstöðu til manna, sem í þessari stofnun starfa, á neinn hátt, en eftir að ég hef hlustað á þessar ræður, þá sýnast mér ekki, eins og á stendur, meginástæður til þeirra breyt., sem n. leggur til, sem ég játa þó að sumar eru til bóta. En sumar eru lítilvægar, eins og t. d. heitið á stofnuninni. Það skiptir ekki máli, hvort það er Siglingamálastofnun eða Skipamálastofnun.

Það verður því niðurstaðan hjá mér, að ég vil heldur greiða atkv. gegn þessum till. n. núna við þessa einu umr. en eiga það á hættu, að frv. fari í Sþ. og gangi ekki fram á þinginu nú á allra síðustu stundu. Með þessu er ég ekki út af fyrir sig að taka afstöðu til þeirra atriða, sem hér kann að vera deilt um, heldur öllu fremur annarra atriða, sem í frv. eru, sem mér finnst nauðsynlegt að gangi fram.

Á 90. og 91. fundi í Nd., s. d., var frv. tekið til frh. einnar umr.

Forseti tók málið af dagskrá.