04.11.1969
Efri deild: 10. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1101 í B-deild Alþingistíðinda. (1423)
48. mál, eftirlit með skipum
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég verð að byrja með því að biðja hv. þdm. afsökunar á röddinni og vona, að þeir virði mér það til vorkunnar, þótt ég reyni að koma þessu frv. til n., þar sem langt er síðan því var útbýtt.
Samhliða þessu frv. til l. um eftirlit með skipum er lagt fram hér frv. til l. um Siglingamálastofnun ríkisins, sem er heildarlög um stofnun þá, sem mun sjá um framkvæmd laga um eftirlit með skipum.
Það er fyrir nokkru orðin brýn nauðsyn að endurskoða þessi lög og reglugerðir, sem settar hafa verið samkv. þeim. Þróun þessara mála hefur verið ör bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Hugmyndin var, þegar frv. til l. um Siglingamálastofnun ríkisins sem heildarlög, var lagt fyrir Alþ. á 88. löggjafarþingi, að þá þegar yrði unnið að undirbúningi sérlaga fyrir hvert af hinum nauðsynlegustu verkefnum stofnunarinnar: eftirliti með skipum, skipaskráningu og skipamælingu, en í heildarlögunum getið þeirra annarra verkefna, sem ekki þurfti nánari sérlög um. Frv. um Siglingamálastofnun ríkisins var vísað til ríkisstj. til frekari athugunar, svo sem fram mun koma við umr. um það mál. Samhliða eru svo lögð fyrir Alþ. það, er nú situr, þessi frv., er áður var getið.
Endurskoðun laga um eftirlit með skipum hefur að beiðni samgmrn. annazt Þórður Eyjólfsson dr. juris, fyrrv. hæstaréttardómari, í samráði við skipaskoðunarstjóra. Þá fylgir grg. með frv., en þar er gerð ljós grein fyrir þróun þessara mála í alþjóðlegri og íslenzkri löggjöf.
Síðan þessi lög voru sett, hafa komið fram nýjar reglur um öryggi mannslífa á hafinu með samþykkt á þingi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, sem undirrituð var í London 17. júní 1960, almennt kölluð alþjóðasiglingareglur.
Hér skulu ekki gerðar frekari aths. við einstakar gr. þessa frv. til l. um eftirlit með skipum. Breyt. þær, sem frv. felur í sér, koma nokkuð til móts við till. sjóslysanefndar varðandi rannsókn á sjóslysum. Leitað var álits formanns siglingadóms um þessi atriði, og tjáði hann sig vera frv. fylgjandi. Þessara atriða og fleiri varðandi siglingadóm, sjódóm og rannsókn sjóslysa er getið nánar í grg. með frv.
Ég tel ekki, herra forseti, ástæðu til að fara frekari orðum um þetta frv., nema tilefni gefist til, en legg til, að því verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.