23.10.1969
Neðri deild: 5. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (1455)
13. mál, hægri handar umferð
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Frv. þetta til l. um breyt. á l. um hægri umferð hefur tvöfaldan tilgang, þ. e. að lengja nokkuð og breyta ákvæðunum um skatt þann, sem lagður var á bifreiðar til að standa straum af kostnaði við hægri umferð, og taka inn í þá skattheimtu eða gera ráð fyrir, að sú skattheimta standi einnig undir kostnaði af rekstri umferðarmálaráðs fyrst í stað eða til ársins 1972, eins og hér er um að ræða, og er það aðallega rökstutt með því í aths., að í raun og veru taki umferðarmálaráð við veigamiklum þáttum hægri umferðarinnar. En telji menn, að annar háttur væri síðar eðlilegri á greiðslu kostnaðar við umferðarmálaráðið eða starfsemi þess, þá var það skoðun rn., að það ynnist þá tími til að undirbúa slíka fjáröflun, ef það yrði skoðun manna á þessu tímabili.
Í stórum dráttum er það um þetta frv. að segja, að skatturinn, sem var lagður á bílana til þess að standa straum af umferðarbreytingunni, átti að greiðast á árunum 1967–1970. Nú er lagt til, og breytingin í því fólgin, að hann framlengist um tvö ár, árið 1971 og 1972, og sé þá hærri en þá var ráðgert, en sé hinn sami og var á s. l. ári. 360 kr. var hann á fólksbifreiðum, 1–8 farþega, 1968 og yrði þá samkv. ákvæðum þessa frv. hinn sami næstu ár, 1970, 1971, 1972, og 660 kr. var hann á öðrum bifreiðum árið 1968, og gert ráð fyrir því einnig á sama hátt samkv. þessu frv., að hann verði áfram 660 kr., eins og hann er nú í ár, og 1970, 1971 og 1972.
Nú er eðlilegt, að þm. spyrji, hvaða þörf sé á að auka þennan skatt, því að gert var ráð fyrir því á sínum tíma, að hann mundi standa undir öllum kostnaði af hægri umferðar breytingunni. En það liggur nú fyrir, að hún hefur farið nokkuð fram úr áætlun, og þetta frv. er flutt til þess að greiða umframkostnaðinn auk viðbótarkostnaðar, sem leiðir, eins og ég sagði áðan, af umferðarmálaráðinu, ef það yrði lögfest.
Um það var mikill ágreiningur á sínum tíma, sem ég skal ekki rifja upp, að kostnaðurinn væri allt of lágt áætlaður, og var m. a. af þeim sökum flutt á sínum tíma, eins og menn rekur minni til, brtt. um það að fresta framkvæmdinni um eitt ár, að lög um hægri umferð gengju í gildi. Það náði ekki samþykki þingsins, en þá var, eins og kemur fram í grg. þess frv., gert ráð fyrir því, að skatturinn mundi nema um 50 millj. kr., en hins vegar héldu þá þeir þm., sem að sjálfsögðu í góðri trú fluttu þetta frv., að breytingin mundi verða margfalt dýrari, og það voru aðilar í landinu eins og Félag ísl. verkfræðinga, sem mjög höfðu haldið því á lofti og talið sig byggja það á athugun, sem þeir hefðu framkvæmt, að kostnaðurinn mundi skipta hundruðum millj. kr.
Heildarkostnaðurinn til þessa af hægri umferðinni er 70 millj. 559 þús. kr., en það eru vissir liðir, sem skýra þessa hækkun alveg sérstaklega. Fyrst og fremst var það fræðsluliðurinn, sem hafði láðst að gera ráð fyrir, og ríkisstj. var sammála um það á sínum tíma að heimila framkvæmdanefnd hægri aksturs að verja allt að 10 millj. til fræðslustarfsemi, sem kom þá inn í þetta, og varð þetta þá um 60 millj. kr. Einnig urðu verðlagsbreytingar vegna áhrifa gengisbreytingar, og skal ég ekki verulega fara út í það, en þó er nokkuð fróðlegt að gera sér grein fyrir, í hverju þessi breyting er fólgin.
Þá er það í fyrsta lagi vega- og gatnakerfið. Ekki var gert ráð fyrir því, að það yrði verulegur kostnaður við breytingu þess. En áætlunin gerði ráð fyrir þessum lið, 5.1 millj. kr., en hann reyndist 12 millj. 352 þús. kr. Áætlunin gerði fyrst og fremst ráð fyrir flutningi umferðarmerkja og breytingum á umferðarljósum, en þörf á breytingum á gatnakerfinu sjálfu var hins vegar í grg. talin hverfandi lítil. Var þetta byggt á upplýsingum vegamálastjóra, borgarverkfræðings og bæjarstjóra utan Reykjavíkur um, hverjar breytingar þyrfti að gera á vegakerfinu. En reyndin varð þó sú, að kostnaður við umferðarmerkin varð 4 millj. 262 þús., en annar kostnaður rúmar 8 millj. Heildarkostnaðurinn skiptist þannig: Í Reykjavík 6 millj. 186 þús., aðrir kaupstaðir og kauptún 1 millj. 649 þús. og Vegagerð ríkisins 4 millj. 517 þús. Það var náttúrlega mjög mikil áherzla lögð á það að laga vissa hluti, blindhæðir og annað slíkt, eftir því sem föng stæðu til, enda farið þarna verulega fram úr áætlun.
En þá eru það almenningsbifreiðarnar. Áætlað var, að kostnaður vegna almenningsbifreiða yrði 36.3 millj. kr. en hann reyndist minni, aðeins 34 millj. 92 þús. Í áætluninni var gert ráð fyrir því, að kostnaður vegna strætisvagna yrði 29.9 millj., en hann reyndist einnig töluvert miklu minni eða 25 millj. 780 þús. kr. Hérna voru tveir liðir, sem lækkuðu verulega. Kostnaður vegna annarra almenningsbifreiða var áætlaður 6.4 millj., en hefur numið 8.3 millj. og þess vegna hækkað verulega. Þar af eru 7 millj. 170 þús. kr. vegna breytinga á sérleyfisbifreiðum og 1 millj. 142 þús. kr. vegna breytinga á starfsmannabifreiðum.
Gert hafði verið ráð fyrir því, að komast mætti hjá því að breyta hópferðabifreiðum, og sérleyfisbifreiðum á leiðum, þar sem ekki er mikil umferð og langt er milli viðkomustaða. Að athuguðu máli og að undangengnum dómi dómnefndarinnar, sem ákvæði voru um í lögum um hægri umferð, vegna einnar sérleyfisbifreiðar var síðar samþykkt að greiða bætur vegna allra sérleyfisbifreiða, og varð kostnaðaraukinn vegna þessa talinn rúmlega 5 millj. kr. Ég ber ábyrgð á þeirri ákvörðun, að greiddur var þarna kostnaður við breytingar á öllum bifreiðunum, eftir að þessi eini dómur hafði fallið. Það var kannske nokkurt álitamál, og það var að vísu ekki hægt að fullreyna það nema með málaferlum áfram bifreið eftir bifreið, a. m. k. bifreið í hverjum landshluta, hvort átti að spara fáar millj., sem það hefði orðið, og eiga kannske á hættu, að teflt væri í of mikla tvísýnu með því að láta þessar bifreiðar, sem, ef þeim hefði ekki verið breytt, stöðvast utan vegarbrúnar hægra megin og láta farþegana fara vinstra megin út úr bifreiðinni og e. t. v. inn á vegarbrún eða utan hægri vegarbrúnar, og þetta gat auðvitað alltaf orkað tvímælis, hversu vel þetta mundi lánast. Um þetta skal ég ekki hafa fleiri orð. Þetta varð niðurstaðan.
Kostnaður vegna staðgönguvagna, eins og kallað var, varð 1 millj. 519 þús. kr., en það eru gamlir strætisvagnar, sem keyptir voru til landsins í stað strætisvagna, sem verið var að breyta, og á móti þessum lið kemur 1 millj. kr., sem var í áætluninni, þ. e. kostnaður vegna skiptibifreiða, eins og það var orðað, þ. e. nýrra bifreiða með dyrabúnað á báðum hliðum, sem ætlað var, að keyptir yrðu fyrir umferðarbreytinguna. Þetta var um almenningsbifreiðarnar.
Þá er rétt að geta þess, um skrifstofukostnað, fræðslustarfsemi og starfsmannahald, að kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir undirbúningskostnaði 3 millj. kr. og ófyrirséð var áætlað 4 millj. kr. Heildarkostnaður vegna þessa hefur orðið til þessa, þegar hægri nefndin gerði upp, 22 millj. 596 þús. kr. Í þessum lið er innifalinn kostnaður vegna umferðarfræðslu, sem ég minntist á áðan, en sérstök heimild af hálfu ríkisstj. var veitt til fræðslu- og upplýsingastarfsemi á vegum framkvæmdanefndar hægri umferðar, allt að 10 millj. kr., og var hún fullnotuð. Þetta var sem sagt upphaflega áætlað 7 millj. og síðan bætt við heimild upp á 10 millj., þ. e. samtals 17 millj. kr., en þessi liður reyndist í heild 22 millj. 596 þús. kr. Heildarkostnaður til þessa hefur samkv. framansögðu orðið 70 millj. 559 þús. kr., en endanlegt uppgjör liggur þó ekki enn fyrir og endurskoðun ekki lokið. Vitað er um nokkra ógreidda kostnaðarliði, bætur vegna nokkurra bifreiða o. fl. en ekki er ástæða til að áætla þann kostnað alls meira en 800 þús. kr. til 1 millj. kr.
Þetta eru m. a. ástæður þess, að óskað er hér eftir viðbótarfjáröflun, en það var nú ekki aðeins, að lítillega fór þarna fram úr áætlun, en þó allt öðruvísi en menn óttuðust, og er ekkert sérstakt, að menn óttist, að hlutir fari fram úr áætlun, þegar um fjárhagsáætlanir er að ræða. En það hafa ekki heldur reynzt eins miklar tekjur af umferðarbreytingargjaldinu og ætlað var, og það er vegna þess, að bifreiðum hefur ekki fjölgað eins og áætlunin gerði ráð fyrir. Þetta þekkja menn núna síðustu árin, og eins hafa bifreiðar verið teknar meira úr umferð og menn sparað sér þannig gjöld lengri tíma en áður. Við getum séð þetta á áætlunum um innheimtu umferðarbreytingargjaldsins 1962–1972. Ef við tökum árið 1967, þá voru tekjur alls áætlaðar 11 millj. 303 þús., en rauntekjur urðu 9 millj. 994 þús. Árið 1968 voru tekjur alls áætlaðar 17 millj. 680 þús., en rauntekjur urðu 15 millj. 262 þús. Árið 1969 voru þær áætlaðar 17 millj. 804 þús., en gert er ráð fyrir nú og eiginlega vitað, — það er komið svo langt fram á árið, — að þær muni tæplega verða meira en rúmar 14 millj. kr. Rauntekjurnar árið 1967 reyndust þannig 11.6% lægri vegna bifreiða, sem ekki voru í notkun allt árið, og 1968 um 13.4% lægri af sömu ástæðu. En endurgreiðslur það ár voru einnig vegna innilegu 1967, en þá var gjaldið lægra en 1968. Miðað er við, að rauntekjur verði 20% lægri næstu ár, en áætlað hafði verið eftir 1967 og 1968. Fjárlagafrv. fyrir 1970 gerir ráð fyrir 15 millj. 200 þús. kr. tekjum. Fjárl. 1968 gera ráð fyrir 16 millj. 160 þús. kr. tekjum, og fjárl. 1969 gera ráð fyrir 17 millj. tekjum, en eins og ég las áðan, þá þykir nú mega ætla, að það verði varla meira en rúmar 14 millj. kr. Þetta kom einnig til truflunar áætluninni.
Að öðru leyti tel ég, að áætlunin hafi mjög vel staðizt og verið gerð ítarleg grein fyrir því, eins og fram kemur í grg., og reyndar hafði komið áður fram frá hægri umferðarnefndinni, og ég skal ekki rekja það nánar, glögg grg. fyrir þessum mismun, þ. e. frá tæpum 50 millj. kr. og upp í 70 millj. kr.
Ég vil nú nota þetta tækifæri í lok máls míns til þess að þakka öllum þeim, sem lögðu hönd á plóginn við framkvæmd umferðarlagabreytingarinnar hér á landi, fyrst og fremst framkvæmdanefnd hægri umferðar og starfsliði hennar, svo og lögreglunni og löggæzluliði um allt land. Ég sagði fyrst og fremst, en það er kannske engu síður ástæða til þess að þakka öllum almenningi, hversu vel hann brást við þessari breytingu og lagði sig allan fram um það, að hún mætti sem bezt og áfallaminnst fram fara. Ég vil einnig nota tækifærið til þess að láta í ljós þakkir til frændþjóðar vorrar, Svía, sem veitti okkur mjög þýðingarmiklar, hagkvæmar og gagnlegar leiðbeiningar og aðstoð. Við höfðum aðstöðu til þess að fylgjast með breytingu þeirra, en þeir menn, sem báru ábyrgð á breytingunni þar, sýndu okkur mikla vináttu og veittu okkur mjög veigamikla aðstoð með því að senda hingað menn til ráðuneytis, og jafnframt lögðu þeir okkur til ýmis gögn, eins og merkispjöld og annað slíkt, við litlu verði og aðrar upplýsingar, þannig að það er að mínu viti ástæða til þess, að hér komi fram þakkir í þeirra garð.
Ég get ekki búizt við því, að þetta frv. frekar en önnur, þar sem skattar eru á lagðir, mæti neinni hrifningu. En ég vil þó segja það, að það eru ekki svo fáir, sem í mín eyru hafa sagt: „Ja, ég veit eiginlega ekkert, hvort ég er búinn að borga þetta gjald eða ekki, ég hef ekki tekið eftir því.“ Þetta er ekki svo tilfinnanlegt, kannske ein fylling á bíl af benzíni. En innheimtan hefur farið fram með öðrum gjöldum á bifreiðunum. Þó að það sé sundurliðað þar, hafa menn ekki tekið eftir því það sem af er. Ég vil vona, að menn geti fallizt á, að það sé ekki óeðlilegt að ljúka öllum kostnaðinum af hægri umferðinni með framhaldi þessarar skattheimtu, og ég vil einnig mega vænta þess, að því verði tekið liðlega af hv. þm., að fyrstu árin, sem umferðarráðið starfar sem beinn arftaki framkvæmdanefndar hægri umferðar, verði greiddur kostnaður af starfsemi þess. Ég hef nú kostnaðaráætlun um starfsemi umferðarmálaráðsins, eins og það áætlar starfsemi sína og sundurliðar, en ég held, að það verði of þreytandi, að ég fari að lesa það upp hér, en að sjálfsögðu mundi n. fá það til athugunar, þegar hún vinnur að skoðun málsins.
Ég vil svo ljúka máli mínu með því að leggja til við hæstv. forseta, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.