23.10.1969
Neðri deild: 5. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)
13. mál, hægri handar umferð
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Ég var nú satt að segja ekkert undrandi, þegar þetta frv. kom hér fram. Ég var í hópi þeirra manna á sínum tíma, sem reiknuðu með því, að þær áætlanir, sem voru gerðar um kostnað við hægri umferð, mundu ekki standast, og það hefur líka komið á daginn. Þó skal ég fúslega játa það, að mér virðist, að að ýmsu leyti hafi þó betur til tekizt í þeim efnum en maður hafði ástæðu til að óttast, og þess vegna hygg ég, að það sé rétt, sem hv. ráðh. sagði, að hvaða álit sem menn kynnu að hafa haft á breytingunni, hafi framkvæmdin farið mjög sæmilega fram.
Annars ætlaði ég ekki að ræða hægri umferðina hér sérstaklega eða þann kostnað, sem hefur orðið í sambandi við hana, eða rifja upp þær deilur, sem um það mál urðu á sínum tíma, hvort hennar væri nauðsyn eða ekki. En mér finnst rétt í sambandi við þetta frv. að vekja athygli á þeirri staðreynd, að nú á seinustu mánuðum hafa umferðarslys farið mjög í vöxt. Þau verða áberandi fleiri en í fyrra, og þau eru líka að verða meiri og fleiri heldur en á árinu þar á undan. Þetta sannar ótvírætt, að það þarf að hefja nýja sókn og nýja baráttu í þessum efnum fyrir því að bæta umferðarmenninguna og jafnframt að setja strangari reglur, sem tryggja bætta umferð frá því, sem nú er. Þess vegna finnst mér ástæða til þess að fagna því frv., sem hæstv. dómsmrh. mælti fyrir á undan þessu, vegna þess að þar er stefnt í þá átt að reyna að bæta umferðarmenninguna. En mér finnst, að það hljóti að koma til athugunar í þessu sambandi, hvort ekki þurfi að gera enn þá meira, og ég held, að þær reglur, sem við höfum varðandi ölvun við akstur, séu ófullkomnar, þó að þeim hafi að vísu verið breytt nokkuð í rétta átt á seinasta þingi. Ég held, að við verðum að fylgja fordæmi annarra þjóða og herða viðurlög í þeim efnum. Þess vegna vil ég beina þeirri áskorun til þeirrar n., — sennilega verður það sama n., sem fær þessi mál til meðferðar, — að hún taki það til athugunar, hvort heldur sem er í sambandi við þetta mál eða það mál, sem rætt var hér á undan, hvort ekki sé nauðsynlegt að gera víðtækari breytingar til þess að auka aðhald í umferðinni og bæta umferðarmenninguna meir en stefnt er að með þeim breyt. á umferðarlögum, sem ræddar voru hér áðan.