19.12.1969
Efri deild: 30. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (146)

136. mál, verðlagsmál

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Efni þessa frv. er mjög einfalt. Í því felst það eitt, að umboð verðlagsnefndar, sem skipuð er samkv. gildandi l. um verðlag, verði framlengt frá 1. janúar n.k. til ársloka 1970. Á síðasta þingi var með shlj. atkv. gerð sú breyting á skipun verðlagsnefndar, að hún skyldi skipuð fulltrúum neytenda annars vegar og framleiðenda og seljenda hins vegar með viðskrh. í viðskrn. sem oddamann. Það var ákveðið þá, að þessi skipan skyldi tímabundin og renna út við þau áramót, sem nú eru í vændum. Mér þykir mjög miður, að þetta frv. skuli koma jafn seint fyrir og það kemur og biðst afsökunar á því. Í þeim efnum er við enga að sakast nema okkur í viðskrn., sem veittum því ekki athygli fyrr en í fyrradag, að lögin hefðu verið tímasett á síðasta þingi.

Með hliðsjón af, að sú skipan, er tekin var upp í fyrra á verðlagsnefnd, var ágreiningslaus í hinu háa Alþ., leyfi ég mér að gera mér von um, að þm. fallist á, að þetta frv. hefði greiðan gang í gegnum Alþ. á síðustu dögum þess.

Hv. Nd. varð við ósk minni um þetta efni og samþykkti frv. við þrjár umr. á þrem fundum, sem haldnir voru hver á eftir öðrum síðdegis í gær og féllst á, að málinu yrði ekki vísað til n. í hv. Nd. Ég vil leyfa mér að mælast til við hv. Ed., að hún fallist á sams konar málsmeðferð, þ.e.a.s. að málinu verði ekki vísað til n., heldur afgreitt héðan í dag í trausti þess, að hér sé ekki að neinu leyti um ágreiningsmál að ræða. Ef hv. þd. óskar eftir því, að málinu verði vísað til n., hef ég að sjálfsögðu ekkert á móti því og það yrði þá um allshn. að ræða.