30.04.1970
Neðri deild: 94. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1134 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)

12. mál, umferðarlög

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þær breyt., sem orðið hafa á frv. í Ed., eru ekki efnismiklar. Þær eru í samræmi við breyt., sem orðið hafa á félagsskipun mála. Í stað Vörubílstjórafélagsins Þróttar kemur Landssamband vörubifreiðastjóra, og einnig kemur þarna Bandalag ísl. leigubifreiðastjóra í staðinn fyrir Bifreiðastjórafélagið Hreyfil.

Að öðru leyti er svo brtt. nr. 2, að óheimilt sé endurskoðendum, sem hafa með höndum þau störf, sem ákveðin eru samkv. 77. gr., að hafa með höndum starf, sem að mati dómsmrh. er ósamrýmanlegt endurskoðunarstarfi þeirra í þeirri veru. Það hafa stundum orðið dálitlar umr. um þetta atriði, og því þótti rétt, að þetta atriði kæmi inn í lögin.