09.04.1970
Neðri deild: 70. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1134 í B-deild Alþingistíðinda. (1507)
198. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Utanrrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Húsnæðismál hafa jafnan verið og eru enn nokkuð erfitt vandamál. Því veldur, að framkvæmdirnar eru fjárfrekar og að þeir, sem oft á tíðum hafa mesta þörf fyrir húsnæði, hafa ekki bolmagn til að standa í framkvæmdum, vantar fjárhagslegan grundvöll og lán er oft á tíðum erfitt að fá og þau eru dýr. Hið opinbera verður þá oft að hlaupa undir bagga og greiða fyrir þeim, sem á aðstoð þurfa að halda. Þetta hefur verið gert að verulegu leyti á undanförnum árum. Hin elzta viðleitni í þá átt eru lög um verkamannabústaði, sem nú eru orðin rúmlega 40 ára, og síðar hafa verið gerðar ýmsar ráðstafanir til þess að koma á móti þessum þörfum. Þar er stærsta fyrirtækið hið almenna veðlánakerfi, sem hefur nú starfað í tæp 20 ár. Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar er svo síðasta átakið, sem í þessu hefur verið gert, sem var gert að verulegu leyti fyrir frumkvæði verkalýðssamtakanna, þegar kjarasamningar voru gerðir fyrir nokkrum árum. En öll þessi þrjú fyrirtæki, þessi þrenns konar starfsemi, sem hefur verið höfð uppi, verkamannabústaðirnir, hið almenna veðlánakerfi og framkvæmdaáætlunin, hafa verið að meira eða minna leyti í fjárhagslegu svelti. Þau hefur skort lánsfé, og framkvæmdirnar hafa verið dreifðar á marga aðila.
Um það leyti sem Alþ. tók sér frí frá störfum í febrúarmánuði vegna Norðurlandaráðsfundarins, þá skipaði ég n. til að taka þessi mál til athugunar, og var fyrir n. lagt, að hún skilaði áliti eftir u. þ. b. einn mánuð. Í n. voru skipaðir ráðuneytisstjórinn í félmrn., Hjálmar Vilhjálmsson, Jón Þorsteinsson alþm. og Þorvaldur Garðar Kristjánsson framkvæmdastjóri. Þessi n. vann mjög vel og dyggilega að þessu og skilaði áliti í byrjun s. l. mánaðar eða fyrri hluta s. l. mánaðar, og hefur málið síðan verið til athugunar hjá ríkisstj. Þeim var uppálagt þessum nm., eins og ég sagði, að skila áliti sínu mjög fljótlega, að gera till. um, hvernig fá mætti aukið fé og gera till. um einfaldara kerfi en nú er, þannig að þessum lánastofnunum yrði að einhverju eða verulegu leyti steypt saman, svo að framkvæmdin yrði einfaldari.
Þetta frv., sem n. samdi, liggur nú hér fyrir. Í upphafi grg., á bls. 10 og 11, er gert ráð fyrir því, hverjar séu helztu efnisbreytingar frá núgildandi löggjöf í þessu frv., og ég held, að það sé rétt, að ég leyfi mér að hafa þær yfir, því með því er frv. eiginlega að verulegu leyti skýrt.
Fyrsta breytingin er sú, að stjórn Byggingarsjóðs verkamanna er falin húsnæðismálastjórn, og húsnæðismálastjórn annast því úthlutun lána, bæði fyrir Byggingarsjóð ríkisins og fyrir Byggingarsjóð verkamanna. Fjáröflun til Byggingarsjóðs ríkisins verði aukin með tvennum hætti. Í fyrsta lagi verða lífeyrissjóðir og eftirlaunasjóðir skyldir að kaupa íbúðarlánabréf fyrir fjórðung ráðstöfunarfjár síns, enda verði lánveitingar úr Byggingarsjóði ríkisins til sjóðsfélaga ekki skertar, svo sem nú hefur verið gert. Í öðru lagi verður framlag ríkisins aukið og það hækkað úr 40 millj. kr. árlega, eins og nú hefur verið, í 75 millj.
Breytingar á reglum um lán úr Byggingarsjóði ríkisins eru þessar helztar. Hámark láns verði hækkað upp í 600 þús. kr. Ætlazt er til, að farið verði í hámark lána vegna bygginga, sem hafnar eru eftir 1. jan. 1971. Heimild til breytingar lánsfjárhæðar verði á tveggja ára fresti í samræmi við breytingu á byggingarkostnaðarvísitölu. Þá er líka gert ráð fyrir, að lán megi veita til byggingar leiguíbúða til allra, sem fullnægja skilyrðum reglugerðar um leiguíbúðir, sem verður væntanlega samin fljótlega eftir að þetta frv. verður samþykkt, ef það nær fram að ganga. Þetta er líka nýmæli. Heimilt verði að veita lán til kaupa á eldri íbúðum fyrir allt að 25 millj. á ári. Þetta er líka nýmæli. Heimild til viðbótarlána til efnalítilla manna innan verkalýðsfélaga falli niður. Og heimild ríkisins til íbúðabygginga, sem nú er í gangi með framkvæmdaáætlun byggingaáætlana verði haldið áfram, á meðan þess verður óskað, en heimild sett inn í lögin til að breyta þessari framkvæmd þannig, að byggingaáætluninni geti í framtíðinni, ef samkomulag verður um það á milli þeirra aðila, sem að byggingaáætluninni standa, verið breytt í verkamannabústaði, þannig að hún komi undir verkamannabústaði. Þetta eru aðalbreytingarnar á lánveitingunum úr hinum almenna sjóði.
Þá er brtt. um framkvæmd á byggingum verkamannabústaða þannig, að það er nú eftir frv. á valdi sveitarfélags, hvort það lætur byggja verkamannabústaði eða ekki. Tekjuöflun til Byggingarsjóðs verkamannabústaða er breytt þannig, að hvert sveitarfélag ákveði til 4 ára í senn framlag sveitarsjóðs, sem miða skal við íbúatölu á þéttbýlissvæðunum og ekki vera lægra en 200 kr. á íbúa og ekki hærra en 400 kr. á íbúa á hverju ári. Þetta er allmikil breyting frá því, sem nú er, því að framlag sveitarfélaga og ríkis hefur að undanförnu verið frá 40 kr. til 60 kr. á íbúa, eftir því sem sveitarfélagið hefur ákveðið hverju sinni. Það er gert ráð fyrir því, að jöfnunarsjóður inni þessar greiðslur sveitarfélaganna af hendi og ríkissjóður greiði, sem fyrr segir, jafnt á móti. Hver sveitarsjóður, sem hyggst byggja verkamannabústaði, lætur gera áætlun um slíkar byggingar á næstu fjórum árum, og skal miða ákvörðun framlagsins til Byggingarsjóðs verkamanna við þá áætlun. Það má segja, að þegar búið er að rannsaka þörfina fyrir byggingar í hverju sveitarfélagi, þá gerir sveitarstjórnin áætlun um framkvæmdir og miðar framlag sitt til Byggingarsjóðs verkamanna við það, að það framlag að viðbættu framlagi ríkissjóðs nægi til þess að greiða umframlánin til verkamannabústaðanna.
Ráðh. skipar fimm manna stjórn verkamannabústaða í hverju því sveitarfélagi, sem hyggst byggja verkamannabústaði, eftir tilnefningu sveitarstjórnarinnar og eftir tilnefningu húsnæðismálastjórnarinnar, tvo frá hvorum, og eftir tilnefningu verkalýðsfélaga á staðnum einn, þannig að þessi stjórn er skipuð samtals fimm mönnum, en þessi stjórn annast um áætlunargerð og byggingarframkvæmdir á þeim verkamannabústöðum, sem í því sveitarfélagi er stofnað til.
Lánveitingar til byggingarfélaga verkamanna falla að mestu leyti niður, en lánin skulu veitt sveitarfélögum, sem verða yfirfærð á íbúðareigendur við afhendingu bústaða fullgerðra. Lánin skulu vera tvö. Í fyrsta lagi lán úr Byggingarsjóði ríkisins með venjulegum kjörum, þ. e. a. s. 600 þús. kr. á ári, og með þeim kjörum, sem húsnæðismálastjórn hefur á sínum venjulegu og almennu lánum. En að öðru leyti koma lán úr Byggingarsjóði verkamanna, sem eru lánuð til 42 ára með 2% vöxtum, annuitetslán, tryggt með 2. veðrétti í íbúðinni. Samanlögð fjárhæð lánanna skal vera 4/5 hlutar eða 80% af raunverulegum byggingarkostnaði. Íbúðareigandinn skal leggja fram 20%, sem á vantar. Íbúðareigandanum, eða þeim, sem er að eignast íbúðina, ber að standa skil á helmingnum af framlagi sínu, þegar hann fær úthlutun, og hinum helmingnum skal hann standa skil á, þegar hann fær afsal. Verði svo vanskil af hans hálfu, þá er gert ráð fyrir, að hann geti misst íbúðina, en hann kann að fá endurgreitt það, sem hann kann að hafa greitt upp í kostnaðinn.
Verkamannabústaðirnir skulu vera 2–4 herbergi auk eldhúss og vera í fjölbýlishúsi. Heimilt er að byggja þá í sambyggðum raðhúsum eða jafnvel í einbýlishúsum, ef um litla byggingaráfanga er að ræða, eða skipulag á staðnum krefst slíkra frávika, en aðalreglan á að vera, að það sé byggt í sambyggingum, sem gert er ráð fyrir að geti orðið ódýrari en þegar byggt er í smærri stíl. Hámarksstærð hverrar íbúðar á verkamannabústöðunum skal ekki vera yfir 100 fermetra.
Í þessu sambandi er gert ráð fyrir, að efnahagsviðmiðun kaupenda þessara íbúða verði rýmkuð nokkuð, þannig að tekjumark íbúðareigenda verði hækkað í 200 þús. kr. á ári og 20 þús. kr. fyrir hvert barn á framfæri innan 16 ára aldurs, og eignarmarkið er hækkað í 400 þús. kr. Þessi mörk breytast líka til samræmis við byggingarkostnaðarvísitölu.
Takmarkanir á ráðstöfunarrétti þessara íbúða eru þær sömu og verið hafa á verkamannabústöðunum. Noti sveitarstjórnin forkaupsrétt sinn, skal húsinu ráðstafað á ný með sama hætti og um væri að ræða nýjan bústað, og lánveitingar úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna verði að sama marki, eins og þegar um nýjan bústað er að ræða.
Kerfi það um aðstoð við láglaunafólk, sem frv. gerir ráð fyrir, er, að því er þeir telja, sem frv. sömdu, öllu hagstæðara en lánin eru í framkvæmdaáætlun byggingarframkvæmdanna, sem þegar er í gangi hér inni í Breiðholti við Reykjavík.
Út af þessu sérstaklega vildi ég segja það, að það er ekki hugsað að halda þessari framkvæmdaáætlun gangandi úti á landsbyggðinni, heldur komi þar verkamannabústaðirnir í staðinn. Framkvæmdaáætlunin, sem nú er í gangi, er við það miðuð fyrst og fremst, að það sé byggt í mjög stórum stíl, þ. e. a. s. íbúðir, sem skipta hundruðum, í einu, þannig að ætla má, að með því fáist ódýrari framkvæmd en þegar byggt er eitt og eitt hús. Um þessar byggingar er það að öðru leyti að segja, að ef þær væru hugsaðar framkvæmdar úti á landsbyggðinni, þá er engin von til þess, að hægt sé að byggja í svo stórum stíl sem hér hefur verið gert í Reykjavík og þar af leiðandi ekki á jafnhagstæðan hátt og væntanlega hefur fengizt hér eða á a. m. k. að geta fengizt hér, þannig að verkamannabústaðirnir úti á landsbyggðinni eiga að koma þar í staðinn, og þeir eiga að geta orðið, eins og ég sagði hér rétt áðan, enn hagstæðari en þessar Breiðholtsíbúðir.
Fjáröflun til þessara bygginga, bæði til almenna veðlánakerfisins og til Byggingarsjóðs verkamanna, er gert ráð fyrir að verði þannig: Árið 1970 er gert ráð fyrir, að ráðstöfunarféð geti orðið 794 millj. Þar af fara til framkvæmdanefndar byggingaráætlunar 116.5 millj. Áætlað lán á íbúð á þessu ári er 540 þús. kr., en þetta hækkar á næsta ári þegar upp í 600 þús. og verður það framvegis. Þetta svarar til þess, að fjöldi fullunninna íbúða og fullra lána til þeirra geti á árinu orðið 1255 íbúðir. Árið 1971 er svo gert ráð fyrir, að ráðstöfunarféð verði hækkað upp í 847 millj. þar af komi í hlut framkvæmdaáætlunarinnar 50 millj., og áætlað lán á íbúð verður 600 þús., eins og ég gat um áðan, og íbúða- að ráðstöfunarféð verði komið upp í 955 millj. Til byggingaráætlunarinnar fer ekki neitt á því ári, en áætlað lán á íbúð verður 600 þús. og fjöldi íbúða getur þá orðið 1590. Svo heldur þetta áfram 1973 og 1974. 1974 er gert ráð fyrir því, að ráðstöfunarféð verði komið upp í 1216 millj. Áætlað lán á íbúð er enn 660 þús. og fjöldi fullsmíðaðra íbúða er þá gert ráð fyrir að verði 1850.
Það hefur verið gerð skrá yfir þessar lánveitingar frá 1956 og til þessa dags, og ég held, að það sé fróðlegt fyrir hv. alþm., að ég lesi þessa skrá upp. Það er útlán á verðlagi hvers árs. Árið 1956 voru þetta 68 millj., 1957 50 millj., 1958 52 millj., 1959 37 millj., 1960 55.9 millj., 1961 78 millj., 1962 97 millj., 1963 102 millj., 1964 179 millj., 1965 294 millj., 1966 377 millj., 1967 510 millj., 1968 522 millj. og 1969 408.9 millj. Árið 1970 er gert ráð fyrir að þessi lán verði komin upp í, eins og ég sagði áðan, 794 millj., vaxandi í 1216 millj. 1974.
Nýir tekjustofnar, sem hér er gert ráð fyrir, að verði teknir til ráðstöfunar, eru tvenns konar: Fyrst hækkun á framlagi ríkisins úr 40 millj. upp í 75 millj. Þá er gert ráð fyrir, að komið verði á almennri kaupskyldu lífeyrissjóða og eftirlaunasjóða, sem nemi 1/4 af ráðstöfunarfé þeirra.
Árið 1968 nam ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna samkv. þeirri skilgreiningu að vera innborguð iðgjöld, mínus kostnaður við rekstur og greiðslur tjóna eða bóta, 532 millj., en það er síðasta árið, sem ábyggilegar tölur eru fyrir hendi um.
Samkv. upplýsingum þeirra, sem athugað hafa þetta nákvæmlega, bæði í félmrn. og Seðlabanka, þá er gert ráð fyrir, að þetta ráðstöfunarfé lífeyrissjóða og eftirlaunasjóða fari hækkandi frá 1968 og til ársins 1973 um 150–200%, þannig að það má gera ráð fyrir, að 1973 verði þetta ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna komið upp í 1400–1500 millj. á ári.
Ég hef heyrt um það rætt, að það væri nokkuð hart aðgöngu að binda þetta ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna að þessum 1/4 hluta við lán til húsnæðismálastjórnar. En ég vil um það aðeins segja, að ég tel, að það sé sú bezta ráðstöfun, sem eftirlaunasjóðirnir geti gert á sínu fé, að styrkja byggingarstarfsemina í landinu á þennan hátt, sem hér er gert ráð fyrir. Þeir hafa líka 3/4 hluta af ráðstöfunarfé sínu eftir til ráðstöfunar. Og í þriðja lagi vildi ég segja, að það munar öllu fyrir þá, að nú fá allir lán úr veðlánakerfinu, hvort sem þeir eru meðlimir í lífeyrissjóði eða ekki, en það var nokkuð lækkað hér fyrir stuttu og hefur verið þannig, að meðlimir lífeyrissjóðanna fengu ekki fullt lán hjá húsnæðismálastjórn, en í frv. er gert ráð fyrir, að lánið verði veitt öllum jafnt, hvort sem þeir eru meðlimir í lífeyrissjóði eða ekki.
Það er í frv. gert ráð fyrir því, að fjárframlag ríkissjóðs til útrýmingar heilsuspillandi íbúða verði látið standa óbreytt, eins og það hefur verið, eða 13 millj. á ári.
Lánin til verkamannabústaðanna er gert ráð fyrir að verði um 1200 þús. kr. á íbúð, eða sem svarar um 80% af byggingarkostnaði, og það stendur í frv., að lánin skuli vera 80% af byggingarkostnaðinum.
Fjáröflun til þessa verkamannabústaðakerfis er ætlað að verði á þann hátt, eins og raunar hefur verið að nokkru leyti áður, að sveitarstjórnir og ríkissjóður skipti á milli sín láninu til sjóðanna, sem er umfram hið venjulega lán. Það er gert ráð fyrir, að verkamannabústaðirnir fái sams konar lán og aðrir, sem um lán sækja þar, eða 600–660 þús. kr. á ári, en til viðbótar er svo gert ráð fyrir, að þær íbúðir fái um 300–360 þús. kr. á ári, sem sé aflað með framlagi frá sveitarfélögum og ríkissjóði. Ríkissjóður og sveitarsjóðirnir eiga samkv. þessu að leggja á íbúa sveitarfélagsins 200–400 kr. á hvern íbúa, safna því í sjóð, og ríkissjóður leggur svo fram jafnt á móti. Þetta er náttúrlega nokkur upphæð, en hún hefur verið nokkuð há miðað við undanfarandi verðlag, þar sem sveitarsjóðirnir hafa þar lagt fram 60 kr. á hvern íbúa, og það er nú hækkað upp í 400–600, eftir því hvað sveitarstjórnirnar ákveða. Lánin til byggingar verkamannabústaðanna til viðbótar almennu framlagi veðlánakerfisins er gert ráð fyrir að geti orðið nægileg til byggingar á 350 verkamannabústöðum á ári, sem mundu þá kosta um 420 millj. miðað við þann kostnað, sem hér hefur verið áætlaður. Framlag kaupenda yrði 84 millj., framlag Byggingarsjóðs ríkisins 210 millj. og framlag Byggingarsjóðs verkamanna 126 millj. Þessi framlög til byggingar húsnæðis fyrir láglaunafólk eru hagstæðari, verð ég að segja, og meiri en áður hefur verið, og er þess að vænta, að þessi lán geti orðið viðráðanleg fyrir kaupendurna, en þeir þurfi ekki að hrekjast út úr íbúðum sínum, vegna þess að þeir hafi ekki efni á því að greiða vexti og afborganir af lánunum. Þetta 2% lán til 42 ára er mjög hagstætt og hagstæðara en nokkurn tíma hefur verið hér á landi, enda gert ráð fyrir, að framlag sveitarfélags og ríkis gangi til þess að leggja fram fé, sem þessum lánum svarar, því að hvergi er á frjálsum markaði hægt að fá þessi lán með þeim kjörum.
Þetta er aðalefni frv., en fleiri nýmæli eru þarna, svo sem ég minntist á í þeirri upptalningu, sem ég gat um í byrjun, yfir þau atriði, sem væri breytt frá því, sem er í núverandi lögum. Ég tel t. d., að það sé mjög þýðingarmikið atriði frá mínu sjónarmiði, að það verði tekin upp lán til byggingar leiguíbúða, hvort sem bæjarfélag eða einstaklingar taki að sér bygginguna, þá verði íbúðirnar lánshæfar, þó að um leiguíbúð sé að ræða og ekki um einkaíbúðir. Það er náttúrlega til fólk, sem á erfitt með að kosta byggingu og standa undir byggingu, eins og þær eru gerðar nú, og þess vegna er viðbúið, að það sé til fólk, sem ekki hafi nein efni á því að ráðast í húsbyggingu, þó að lán séu hagkvæm. Og þá er náttúrlega möguleiki til þess, að sveitarfélögin hlaupi í skarðið og byggi, eða einhver framtakssamur byggingarmeistari geri það, og leigi síðan út íbúðirnar á viðráðanlegu verði fyrir leigutaka, en úr húsnæðismálasjóði er hægt að fá lán til þessara íbúða, alveg eins og til þeirra íbúða, sem eru í einkaeign.
Með þessu móti ættu, þegar fram í sækir eða þegar á næsta ári, að koma í byggingarsjóðina báða samtals til útlána rúmar 200 millj. kr., sem ráðstöfunarfé byggingarsjóðanna vex þá um. Það geta sjálfsagt orðið einhverjir erfiðleikar á framkvæmdinni á þessu ári, vegna þess að ekki eru komin í framkvæmd eða verða ekki komin í framkvæmd fyrr en á miðju ári í fyrsta lagi, þessi lán úr lífeyrissjóðunum, og ríkissjóður leggur ekki fram sína fjáraukningu í þessu skyni fyrr en á næsta ári, þar sem búið er að ganga frá fjárl. þessa árs, og þetta eru nokkuð verulegar upphæðir, sem gætu numið úr ríkissjóði til hækkunar um það bil 80 millj. kr. En það hefur hins vegar verið gengið út frá því og liggur fyrir loforð um það frá bankakerfinu og Seðlabankanum, að það láni til skamms tíma út á þær tekjur, sem ekki eru komnar til greiðslu, en væntanlegar eru á næsta ári.
Ég veit ekki, hvort það er nokkur þörf á því, að ég fari að ræða þetta öllu nánar eða rekja einstakar gr. frv. Ég held, að allar þær breytingar, sem frv. gerir ráð fyrir og nokkra verulega þýðingu hafa, séu komnar fram í þessum orðum, sem ég hef nú sagt. Og ég vildi vona, að hv. dm. taki frv. vel og samþykki það út úr þessari hv. d. og Alþ. geri það að lögum þegar á þessu þingi, því að ég álít, að í þessu felist mikil bót fyrir húsbyggjendur. Það er enginn vafi á því, að það verður hægara við þessa hluti að fást, þegar og ef þessi ákvæði geta orðið að lögum.
Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.