30.04.1970
Neðri deild: 94. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)

198. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég flyt hér á þskj. 815 brtt. við það frv., sem hér liggur fyrir, og eru meðflutningsmenn að till. þeir hv. þm., Matthías Bjarnason og Unnar Stefánsson. Brtt. er við 15. gr. frv., en þar segir, að stjórn verkamannabústaða skuli skipuð fimm mönnum og að tveir skuli skipaðir í stjórn eftir tilnefningu sveitarstjórnar. Við teljum, að það sé eðlilegt með tilliti til þess, að nú er lögð sú kvöð á sveitarstjórnir, að þær útvegi fé að helmingi, sem með þarf í byggingu þeirra íbúða, sem byggðar verða eftir kaflanum um Byggingarsjóð verkamanna og verkamannabústaði, að sveitarstjórnir fái nokkru meiri ítök í stjórn verkamannabústaða í hinum ýmsu sveitarfélögum en frv. gerir ráð fyrir. Till. okkar er um það, að í stað fimm manna stjórnar verkamannabústaða í sveitarfélögum verði skipaðir sex menn, og þar af verði þrír eftir tilnefningu sveitarstjórnar.

Ég lét þess getið, þegar málið var til umr. í heilbr.- og félmn. nú í morgun, að ég teldi eðlilegt, að sveitarstjórnir fengju þarna meiri rétt en frv. gerir ráð fyrir og taldi eðli málsins samkv. sanngjarnt, að sveitarstjórnir hefðu hreinan meiri hluta í stjórn verkamannabústaða. En þetta mætti nokkurri andstöðu einstakra nm., og tókum við því það ráð, sem að till. þessari stöndum, að fara þarna nokkurn milliveg, þannig að fjölgað yrði í stjórnunum um einn mann, úr fimm upp í sex, og að þar af skipuðu sveitarstjórnirnar þrjá menn. Það má segja, að þetta er í samræmi við framlag sveitarstjórna til þessa sérstaka málaflokks, húsnæðismálanna, þó að við teldum, að hitt væri æskilegra, að áhrif sveitarstjórnanna væru meiri.

Það væri vissulega ástæða til að ræða frv. í heild og efni þess allverulega, því að hér er um stórt og viðamikið mál að ræða, en það hefur nú hlotið þá meðferð hjá heilbr.- og félmn., að því hefur verið breytt allverulega, og ég tel þær breyt. allar mjög til hins betra og ætla því ekki að fara út í að tefja tímann með ræðu um málið frekar.

Það er þó eitt atriði, sem kom fram hjá hv. félmrh., er hann lagði frv. hér fyrir þessa hv. deild og fylgdi því úr hlaði, en það var sá kafli ræðu hans, sem fjallaði um það, hvort tiltækilegt væri að afnema vísitölubindinguna á lánum húsnæðismála eða ekki. Ég vil mjög taka undir það, að það væri mjög æskilegt, að inn á þá braut væri farið að afnema vísitölubindingu á lánum húsnæðismálastjórnar, þó að það kostaði einhverja vaxtahækkun. Hins vegar liggur það alveg ljóst fyrir, að þar er um nokkra grundvallarbreytingu að ræða í sambandi við lánakerfi Húsnæðismálastofnunar ríkisins, og ég tel, að það mál þurfi meiri og betri athugunar við en mögulegt var að koma við á þeim tíma, sem heilbr.- og félmn. hafði málið til athugunar, og á þeim tíma, sem nú er eftir hér hjá þessari hv. deild, til þess að fjalla um málið og afgreiða það hér. Þess vegna töldum við ekki fært að flytja till. um þessa breytingu af þeim ástæðum, að það væri svo stór og viðamikill hluti í lánakerfinu, að það yrði að skoðast betur, en ég vænti þess, að síðar meir verði þetta atriði tekið til sérstakrar athugunar og þá stigið það skref, sem hæstv. félmrh. ræddi nokkuð, að afnema vísitölubindinguna.

Ég skal svo, herra forseti, ekki tefja framgang málsins með lengri umr. um þetta, en vænti þess, að sú till., sem við höfum hér lagt fram á þskj. 815, nái samþykki þessarar hv. deildar.