30.04.1970
Neðri deild: 94. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1198 í B-deild Alþingistíðinda. (1522)
198. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég ætla nú ekki að ræða þetta mikið, en ég vil bara láta það koma fram hér, að ég er alveg undrandi á vinnubrögðum í sambandi við þetta mál. Það er ekki fyrr en kemur fram í umr., sem við fáum hér till. á borðin, og svo á að keyra þetta áfram í gegnum þd., án þess að hv. þm. geti nokkuð athugað þær till., sem komu nú fram. Þetta eru svo fráleit vinnubrögð, að ég gat ekki stillt mig um annað en biðja um orðið til þess að láta þetta koma fram. Það eru ýmis atriði í þessu, sem ég hefði viljað athuga og koma með brtt. um, en þess er enginn kostur, eins og vinnubrögðin eru nú hér á hv. þingi. Það gengur svo langt, að það raunar veit enginn í þinginu, hvað er að ske. Það verður einhvern tíma áreiðanlega minnzt á þetta, en það er ekki starfsfólkinu að kenna, heldur þetta pat, sem hér er nú, að keyra allt áfram.
Ég er sérstaklega óánægður með IV. kaflann, en þær till., sem minni hl. kemur fram með, þ. e. a. s. að leggja ekki verkamannabústaðakerfið niður í þeirri mynd, sem það nú er, á smærri stöðunum, eru til bóta, og ég held, að það væri mjög skökk stefna og mjög mikil skammsýni, ef það verður ekki samþykkt. En ég vil ekki vera að eyða tíma, en ég vil láta þessa óánægju koma hér fram.