04.05.1970
Efri deild: 91. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)

198. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég skal vera afar stuttorður, þar sem d. er nú í tímaþröng og aðrir hv. ræðumenn hafa stytt mjög mál sitt hér.

Hv. síðasti ræðumaður, 4. þm. Norðurl. e., minntist á það, að í þessu frv. kæmi ekkert fram, sem stuðlaði að því, að húsnæðiskostnaður í landinu yrði lækkaður. Ég tel þetta nú ekki alls kostar rétt, því að í 23. gr. frv. segir svo, með leyfi forseta:

„Leitazt skal við, að íbúðirnar verði svo ódýrar í byggingu sem frekast er kostur. Í því skyni skulu byggingaframkvæmdir faldar viðurkenndum byggingaverktökum á samkeppnisgrundvelli og með sem víðtækustum útboðum. Reynt verði að koma við sem mestri hagkvæmni við byggingaframkvæmdir, og leggja ber áherzlu á fjöldaframleiðsluaðferðir, þar sem um stóra byggingaráfanga er að ræða.“

Um íbúðabyggingarkostnað má auðvitað segja æðimargt, en ég vildi aðeins bæta því við, hvað sem mönnum sýnist um þetta ákvæði úr verkamannabústaðakaflanum, sem ég vitnaði hér til, þá held ég, að það strandi í þeim efnum ekki á lagaákvæðum. Ef mönnum þykir á skorta, að unnið sé nægilega dyggilega að því að lækka byggingarkostnað, þá held ég, að það séu ekki lagaákvæði, sem sérstaklega vantar í því skyni.

Þá ætla ég að víkja örfáum orðum að brtt. á þskj. 844. Ég ætla að byrja á síðustu brtt. Þar er lagt til, að framkvæmdanefnd byggingaráætlunar endurgreiði Byggingarsjóði ríkisins fé, sem n. hefur fengið umfram, að mér skilst, venjuleg húsnæðismálalán, sem ættu að veitast út á þær íbúðir. Ég tel þessa till. á misskilningi byggða, vegna þess að lánin út á Breiðholtsíbúðirnar, þessi 80%, sem þar eru veitt að forminu til úr Byggingarsjóði ríkisins, eru veitt samkv. skýrri og ótvíræðri lagaheimild, og framkvæmdanefndin hefur því fengið það fé úr byggingarsjóði lögum samkv. eins og aðrir, sem fengið hafa þar lánað fé. Þetta ákvæði var sett inn í lög um Húsnæðismálastofnun ríkisins í desembermánuði 1965. Einfaldara er að biðja ríkisstj. að útvega meira fé til Byggingarsjóðs ríkisins frekar en að segja, að framkvæmdanefndin eigi að skila byggingarsjóði peningunum, svo á ríkisstj. aftur að skila framkvæmdanefndinni. Þetta er nú orðið dálítið snúið. En ég vildi leiðrétta þetta, að þetta er fullkomlega samkv. lögum, að þessi 80% hafa verið veitt, svo að ég tel það ekki koma til greina, að það verði farið að skila því, sem búið er að byggja fyrir.

Um 7. og 8. brtt. vil ég aðeins segja það, að mér finnst, að með þeim sé verkamannabústaðakerfið gert of flókið.

En þá ætla ég að lokum að ræða örlítið um 4. brtt., sem er við 8. gr. eða eitt atriði úr henni, sem er reyndar veigamesta till. á þessu þskj. að mínum dómi. Það er á þá lund, að húsnæðismálalánin skuli vera vísitölulaus. Það eru að vísu hækkaðir vextir úr 4% í 6%, en vísitöluákvæðin eru felld burt. Það er alveg rétt, sem hv. frsm. till. sagði, að það kann að vera óeðlilegt að hafa vísitöluákvæði á þessum lánum, þegar önnur sambærileg lán í landinu eru ekki með vísitöluákvæði. En það, sem ég tel vera undirstöðuna undir það, að hægt sé að afnema vísitöluákvæðin, er, að þá verður að mínu viti að stórauka eigin tekjur Byggingarsjóðs ríkisins, því að ef hann hættir að lána með vísitölukjörum, verður hann að éta út sitt eigið fé, sem er nú orðið allmikið að vöxtum, sem er náttúrlega samansafn af launaskatti og framlög ríkisins í mörg ár. Þess vegna tel ég, — hvað sem menn segja um það almennt að hafa vísitöluákvæði á þessum lánum, um það má segja ærið margt, bæði með og móti, — að til þess að svo yrði gert á húsnæðismálalánum, yrði að auka mjög verulega tekjur byggingarsjóðs með hækkun launaskattsins eða einhverjum sambærilegum hætti.