24.03.1970
Neðri deild: 66. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)

168. mál, Stofnlánaadeild landbúnaðarins

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Þess hefur verið óskað, að þessu frv. verði vísað til hv. landbn. þessarar hv. d., og er því ekki ástæða til þess, að nm. þeirrar n. hefji hér um það langar umr. við þessa umr. En ég vil þó, vegna þeirra ræðna, sem hér hafa verið fluttar af hv. 5. þm. Norðurl. e. og hv. 5. þm. Austf., taka það fram, sem þessum þingmönnum mun vera kunnugt, að lög um Stofnlánadeild landbúnaðarins o. fl. eru nú í endurskoðun, og þar sem í þessu frv. er einungis um að ræða heimild til handa ríkisstj. til að lækka á tveimur árum ákveðna liði til framkvæmda á vegum þeirra laga, þá er sjálfsagt að taka það hér fram, að fjárþörf einstakra framkvæmdaþátta á vegum Landnáms ríkisins kemur vitaskuld til umr. og athugunar við þá endurskoðun, sem þar fer fram. Hv. 5. þm. Austf. minntist á ný svið á vegum Landnáms ríkisins, og það er vitaskuld rétt, að það koma mörg ný svið til greina á vegum Landnámsins, sem þurfa athugunar við, en þau nýju svið koma vissulega mjög til athugunar við þá endurskoðun, sem nú stendur yfir á lögunum. Að þessari endurskoðun lokinni er þess að vænta, að fram verði bornar ákveðnar till. um fjárþörf einstakra þátta til að sinna þeim verksviðum.

Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að hafa fleiri orð um þetta. Ég vildi aðeins láta það koma fram, sem a. m. k. öðrum þessum hv. ræðumanni, ætti að vera fullkunnugt, þar sem hann er í n., sem starfar að endurskoðun þessara laga, að sú endurskoðun stendur yfir, og væntanlega verður henni lokið svo fljótt að unnt reynist að leggja fram frv. til l. um breyt. á þessum l. á næsta Alþingi.