29.04.1970
Neðri deild: 91. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (1571)

168. mál, Stofnlánaadeild landbúnaðarins

Frsm. meiri hl. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Meiri hl. landbn. mælir með þessu frv. En ég tel mig verða að fara fáeinum orðum um það málefni, sem þetta frv. er angi af. N. leggur einnig til, að við frv. verði gerð breyting, sem er að sjá á þskj. 760.

Þegar fjárl. voru undirbúin og afgr. fyrir árið 1968, var horfið að því ráði að lækka verulega framlag til Landnáms ríkisins í sparnaðarskyni. Þá stóð þannig á fyrir Landnáminu, að þetta virtist gerlegt, en hins vegar voru nokkrir örðugleikar á að koma fjárl. saman án halla. Fjvn. og Alþ. féllust á þetta, en setja varð þó að sjálfsögðu sérstök lög til að þessi ákvörðun hefði lagagildi, þar sem lög um Stofnlánadeild og Landnám ákveða tiltekna upphæð til Landnámsins, samkvæmt 27. og 48. gr. Sú staðfesting fékkst frá Alþ. og þar að auki að sama sparnað mætti viðhafa næsta ár, þ. e. 1969. Við afgreiðslu fjárl. fyrir árið 1970 í desember var enn sama upphæð felld niður með samþykki fjvn. og Alþ. Og með þessu frv., sem hér er til umr., er farið fram á, að fullnaðarstaðfesting á því fáist, og að auki, að sama megi gera 1971.

Ég tel, að Alþ. geti ekki neitað því nú, sem það samþ. fyrir 4 eða 5 mánuðum, þar sem þegar er búið að ráðstafa þessum peningum Landnámsins til annarra hluta með afgreiðslu fjárl. Hins vegar tel ég fráleitt að taka enn þessa sömu upphæð af þessari stofnun 1971, eins og frv. gerir ráð fyrir, og flytjum við því brtt. um að taka það út úr frv., sem ég vona að verði samþ. Nóg er samt að gert, þar sem Alþ. er búið að vega þarna í sama knérunn þrisvar sinnum í röð.

Annars vil ég við þetta tækifæri fara örfáum orðum um hlutverk Landnámsins og nýbýlastjórnar. Segja má, að það sé einkanlega tvíþætt: Að stuðla að því, að byggð þéttist í sveitum landsins með stofnun nýbýla og byggðahverfa, og hins vegar að sporna við því, að byggilegar bújarðir fari í eyði. Pálmi Einarsson landnámsstjóri gegndi því embætti frá því að stofnunin reis á legg, þar til hann lét af störfum rétt nýlega fyrir aldurs sakir. Hann var frábær starfsmaður og þekkti hvern byggðan blett á landinu og vissi um hag og kringumstæður hvers einasta bónda, að því er ég hygg. Honum tókst að hafa mikil áhrif í þá átt, að byggðin héldi velli víðast hvar og þéttist sums staðar. Stefna sú, sem fylgt hefur verið síðasta áratug í landbúnaðarmálum, mjög fyrir forgöngu landbrh. og með mikilli aðstoð Pálma Einarssonar, hefur stutt mjög að því að efla sveitabyggðina með aukinni ræktun, stærri býlum og aukinni túnrækt. Að þessu hefur öll ríkisstj. staðið og hennar stuðningslið, þó hjáróma raddir hafi að vísu heyrzt við og við úr ýmsum áttum.

Lög um Stofnlánadeild landbúnaðarins og Landnámið eru nú í endurskoðun. Það er vel, því ýmis ákvæði þeirra þurfa endurskoðunar við. Og ég ber gott traust til þeirrar endurskoðunarnefndar, sem fer með það mál. En af því að svo virðist sem skilningur þjóðarinnar á gildi landbúnaðar og sveitalífs fari nú hraðminnkandi, er nauðsynlegt, að þessi nefnd hafi skilning á þessu fyrir alla þjóðina, að ógleymdri okkar ágætu Efnahagsstofnun, sem nú virðist helzt ætla að ráða stefnu í mjög mörgum málum, jafnvel meira en sjálft Alþingi. T. d. er hugmynd þessarar virðulegu stofnunar að sjá í „veðurspá“ hennar um búsetu fólks á Íslandi næsta áratuginn, sem er að finna í þskj. einu, er liggur hér á borðum okkar þm. Skjalið fjallar annars um olíuhreinsunarstöð. Þar segir, að árið 1980 muni Íslendingar orðnir 250 þús. og þar af 3 700 bændur, eða alls í sveitum 20 þús. manns í stað 30 þús. nú, m. ö. o., að fólkinu fækki þar um þriðjung á næstu 10 árum og sveitabýlum um 1500–1600 á tímabilinu. Með sama áframhaldi mundi sveitabyggðin rýrna um fullan helming frá því sem nú er næstu 15 árin. Ég veit ekki, hvort okkar ágæta stofnun, sem gefur þannig skýrslur, hefur hugsað sér, að þetta verði stefnan. Ég býst nú síður við því. Og ekki hefur hún heldur samið áætlun í þessa átt, svo ég viti. Ekki vil ég heldur ætla henni, að þessi spá, eins og hún kallar það, sé af sama toga spunnin og illspáin, sem Stephan G. talar um: „Falin er í illspá hverri / ósk um hrakför sýnu verri.“

Sé þetta svona, þó ekki væri nema brot af þessu, stöndum við nú, sem búa viljum úti á landsbyggðinni, frammi fyrir meira vandamáli en nokkru öðru á þessari öld, og ekki aðeins við, heldur öll okkar þjóð. Helmings mannfækkun í sveitum þessa lands og þó minna væri á 15 árum þýðir ekki grisjun í öllum landshlutum, sem margir tala um að sé góð og nauðsynleg, svo bújörðin nái að stækka. Nei, ónei, hún mundi í reynd þýða afnám flestra sveitabyggða á Íslandi, nema um Borgarfjörð, Suðurlandsundirlendið og ofurlitlar pönnukökur kringum Akureyri, Húsavík, Sauðárkrók og máske Blönduós. Og hvað skyldi svo verða um sjávarþorpin fyrir austan, vestan og norðan, sem styðjast öðrum þræði við sveitirnar, sem næstar þeim eru? Svari því hver fyrir sig.

Ég hefði gjarna viljað tala miklu meira um þetta mál, en ég vil ekki eyða dýrmætum tíma okkar hér í það, en benda aðeins þeirri n., sem hefur landbúnaðarmálin, þ. e. a. s. Stofnlánadeildina og Landnám ríkisins, til endurskoðunar, að taka vel eftir því, sem kemur fram í þessari skýrslu Efnahagsstofnunarinnar og spánni, sem hún talar um.