30.04.1970
Neðri deild: 93. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)

168. mál, Stofnlánaadeild landbúnaðarins

Frsm. minni hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Eins og ég gat um við 2. umr. þessa máls, þá munum við hv. 5. þm. Austf. koma fram með brtt. við þessa 3. umr., úr því að svo fór, að till. okkar um að fella þetta frv. náði ekki fram að ganga. Ég vil þá byrja á því að lýsa þessum tillögum:

Í fyrsta lagi, á undan 1. gr. komi ný grein, svo hljóðandi: „Síðari málsl. 10. gr.l. orðist svo: Vextir af lánum til byggingar íbúðarhúsa skulu þó vera 2%.“

Í öðru lagi, við 1. gr. (verður 2. gr.). a) Í stað orðanna „og til íbúðarhúsa á nýbýlum samkv. 48. gr. l. nr. 75/1962 úr 2.4 millj. kr. í 0.9 millj. kr.“ komi: enda verði jafnhá fjárhæð greidd til veðdeildar Búnaðarbankans sem sérstakt framlag ríkissjóðs. b) Við gr. bætist ný málsgr., svo hljóðandi: Í stað „60 þús. kr.“ í 48. gr. l., sbr. 5. gr.l. nr. 31 frá 1964, komi: 120 þús. kr.

Þetta þarf ekki mikilla skýringa við. Ég ræddi það allnáið við 1. umr. þessa máls, hvernig ástatt væri um veðdeildina, hún hefði aðeins 6.6 millj. kr. til ráðstöfunar á þessu ári og skuldaði 15 millj. kr. í Búnaðarbankanum, en eins og hv. þm. vita er mikil þörf á að greiða fyrir því, að eignaskipti geti farið fram á jörðum nú ekki síður en áður. En í sambandi við hina liðina vil ég minna á það, sem ég sagði um það mál, að styrkir til íbúðarhúsabygginga væru nú 60 þús. kr. og hefðu verið óbreyttir síðan 1964. Ég vil í örfáum orðum rifja það upp, hvernig þessi þróun hefur verið. 1957, þegar byggingavísitalan var 117 stig og talið að kostaði að byggja hvern rúmmetra í íbúðarhúsi 1085 kr., þá var þessi styrkur 25 þús. kr. Árið 1960 var þessu svo aftur breytt, en þá var byggingavísitalan orðin 150 stig og það kostaði 1396 kr. að byggja hvern rúmmetra. Þá var þessi styrkur hækkaður í 40 þús. kr. 1962, þegar byggingavísitalan var 180 stig og kostnaður við að byggja hvern rúmmetra var 1674 kr., þá var þessi byggingastyrkur hækkaður upp í 50 þús. kr. 1964, þegar byggingavísitalan var 220 stig og það kostaði 2044 kr. að byggja hvern rúmmetra í íbúðarhúsnæði, þá var þessi styrkur hækkaður í 60 þús. kr. Síðan 1964 hefur þessi styrkur staðið óbreyttur, en nú er byggingavísitalan orðin 439 stig og það kostar 4080 kr. að byggja hvern teningsmetra íbúðarhúsnæðis.

Við sjáum því á þessu, að framkvæmdamáttur styrksins hefur á þessum árum minnkað um helming. Þau rök, sem hv. 11. landsk. þm., frsm. meiri hl. landbn., hafði fyrir sinni afstöðu hér í gær, voru þau, að þetta hefði verið ákveðið svo á fjárlögum og þess vegna yrði að samþ. þetta að þessu sinni. Það var þetta, sem kom fram í hans ræðu. En ég vil minna á það, að þetta eru ekki miklir fjármunir, sem þarna er um að tefla, miðað við heildarfjárhæð fjárlaga, og þegar hæstv. ríkisstj. hefur vilja til, þá hefur hún getað ráðstafað öðrum eins greiðslum og 7.5 millj. kr. En það hefði verið gott, ef hæstv. ríkisstj. og sérstaklega hæstv. landbrh. hefði verið viðstaddur, þegar hv. 11. landsk. þm. flutti mál sitt hér í gær. Hann bar að vísu lof á landbrh., en það mátti segja, að í því lofi væru broddar, a. m. k. ef hv. þm. hefur í raun og veru athugað, hvað hann var að segja. En það gladdi mig samt sem áður að heyra það, að hv. þm. gerði sér grein fyrir þróuninni í þessum málum og varð til þess að spyrna þar við fótum og breyta þessu frv., þannig að þessi greiðsla yrði ekki ákveðin í tvö ár, eins og frv. bar með sér, heldur aðeins bundin við yfirstandandi ár.

Ég vil aðeins minnast á það, sem hv. 11. landsk. þm. benti á í sinni ræðu, að það var lagt fram hér á þingi fyrir skömmu frv. til l. um olíuhreinsunarstöð á Íslandi. Hann las upp eða vitnaði í fskj., sem eru með þessu frv.

Hann gat um, að þar kæmi fram, hvernig þróunin í landbúnaði væri, og að þar væri spá um, hvernig þetta mundi verða eftir einn áratug. En hver hefur lagt þetta frv. fram? Er það ekki hæstv. ríkisstj.? Er það ekki hæstv. landbrh., eins og aðrir ráðh., og er það ekki í raun og veru sú áætlun, sem er verið að vinna eftir með flutningi þessa frv. og margra annarra? Ef við færum að athuga fleira í þessu máli, þá kæmi í ljós, að það er í raun og veru markvisst unnið að því að svona fari. Hvernig var það, þegar vextirnir á stofnlánunum voru hækkaðir? Og þegar stofnlánagjaldið var sett, þá voru í raun og veru settir þrisvar sinnum hærri skattar á bændurna heldur en áður var, enda ber línuritið, sem fylgir þessu plaggi, því glöggt vitni, hvernig þróunin hefur verið. Það er sagt á bls. 46 í þessu frv. um olíuhreinsistöðina, að bændurnir hafi verið 6700 talsins 1954, en þeir séu nú 5000 og þeir verði árið 1980 3700. Það séu nú um 30 þús. manns í sveitunum, en verði 20 þús. eftir áratug. Ef fækkunin yrði samkvæmt þessari spá, þá er sýnilegt, að um aldamótin væri algjör óþarfi að hugsa um eða tala um dreifbýli. Annars veit ég ekki, hvers vegna þessi spá er bundin við árið 1980 fremur en eitthvað annað. E. t. v. fer það eftir aldri þeirra ráðh., sem nú ráða, og að það sé e. t. v. búizt við, að eftir þann tíma muni verða breytt um stefnu. Ég veit ekki hvað það er, sem á bak við liggur.

En það er margt annað dálítið athyglisvert í þessum skýrslum. Á bls. 21 segir, með leyfi hæstv. forseta: „Tveir helztu þættir þróunarinnar á þessu sviði eru íbúafjöldinn og jarðhitamálin. Samkvæmt spám Efnahagsstofnunarinnar mun íbúum landsins fjölga um 50 þús. á árunum 1968–1980, eða þeir munu verða um 250 þús. árið 1980.“ En svo segir á bls. 31, með leyfi forseta: „Mannfjöldaspá Efnahagsstofnunar er notuð til áætlunar íbúafjölda á hverjum tíma. Samkvæmt henni er áætlað að íbúar Íslands verði 238 752 árið 1980.“

Það er ýmislegt fleira þarna, sem ber ekki alveg saman hverju við annað. Það er eins og það hafi verið margir menn, sem skrifuðu þessi fskj., og jafnvel þó þeir vitni í sömu stofnunina, þá er niðurstaðan þessi. Þegar þeir eru að reikna út, hver neyzlan sé á mann af mjólk, þá deila þeir allri íbúatölunni í mjólkurmagnið, þó þeir segi, að það séu 30 þús. manns í dreifbýlinu, og svo er spáin miðuð við þennan útreikning. Ef ýmislegt annað í þessum fskj. er byggt á jafntraustum grunni, þá spyr ég ekki að útkomunni.

Ég ætla ekki að fara að tefja tímann með mjög löngu máli. En í sambandi við þetta vil ég minna á, að það er fleira en veðdeildin og það er fleira en Stofnlánadeildin og sú stefna, sem þar er, þ. e. að það skuli nú vera alveg sama fjármagn, sem Stofnlánadeildin fær til útlána, og árið 1968, þó byggingakostnaðurinn hafi hækkað um 36% á þessu tímabili. Til hvers leiðir þetta? Ef maður fer að athuga aðra fjárfestingarliði, þá er auðséð, að flestir hækka þeir til samræmis við verðlagið í landinu, nema þeir, sem ætlaðir eru til landbúnaðarins.

Eitt er það, sem mætti minna á í þessu sambandi. Snemma á þessu þingi flutti ég ásamt nokkrum þm. Framsfl, frv. um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, þ. e. a. s. að það haldist áfram það framlag, — yrði raunar hækkað um helming frá því sem það var, — sem ríkissjóður hefur borgað í Framleiðnisjóð landbúnaðarins, en hann var stofnaður með lögum 1966 og voru þá látnar 20 millj. kr. í sjóðinn. En þetta mál hafðist ekki fram á þessu þingi. Við verðum að athuga það, að allt þetta leiðir til þess, að þessi spá verði í raun og veru gildandi í landbúnaðinum á næstu árum.

En það má kannske segja, að það furðulegasta af þessu öllu sé það frv., sem hér er til umr. Þrátt fyrir það, að framlag til Landnámsins hafi ekki hækkað neitt síðan 1964 og það hafi þá verið 11.9 millj. kr., þá er nú lagt til að lækka þessa upphæð um 7.5 millj., þannig að hún verði þá 3 millj. eða minni en var varið til þessara hluta 1957. Menn geta svo athugað, hvernig þetta hljóðar, miðað við þær tölur, sem við fjöllum hér um frá degi til dags.

Það má þó segja, að það sé ein glæta í þessu öllu. Og það er það, að sumir hv. stjórnarsinnar, eins og t. d. hv. 11. landsk. þm., fara nauðugir hér upp í stólinn — og eru ekkert að leyna því, — til þess að mæla með þessu frv. og segja: hingað og ekki lengra.

Herra forseti. Þar sem þessi till. er of seint fram borin og skriflega flutt, þá verð ég að biðja um að leitað sé afbrigða fyrir henni.