15.12.1969
Neðri deild: 25. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (1659)
124. mál, sala Krossalands í Bæjarhreppi, Austur-Skaftafellssýslu
Flm. (Jónas Pétursson):
Herra forseti. Þetta mál fjallar um það, að Alþ. heimili að selja eyðijörð í Bæjarhreppi í A.-Skaftafellssýslu, sem heitir Krossaland. Það hefur verið leitað eftir samþykki eða umsögn hreppsnefndar þessa sveitarfélags, og eins og frv. ber með sér, þá er umsögn hennar prentuð með í grg., og hreppsnefndin mælir með þessari ráðstöfun á jörðinni, en hún er sú að selja Benedikt Egilssyni bónda í Volaseli í Lóni þá eyðijörð.
Jörðin Krossaland liggur á flatlendinu meðfram Lóninu og er vötnum girt. Hún hefur verið í eyði síðan 1947 og m. a. vegna ágangs vatna hefur gildi hennar rýrnað. Hins vegar er hún nokkurs virði sem beitiland, og þar sem hún liggur að landi jarðarinnar Volasels, þá eru það hagkvæmustu notin af þessu landi, sem hér er bent á, og þau eru að selja hana eiganda Volasels.
Þetta er ósköp einfalt og ljóst mál. Það er að vísu stundum haft í flimtingum, að Alþ. sé að fást við svona lítilfjörlega hluti, en þetta er nú einu sinni sá háttur, sem þarf að hafa á, og þess vegna varð það að ráði að bera þetta frv. hér fram. Ég vil vænta þess, að Alþ, geti fallizt á það, og óska eftir, að því verði vísað til 2. umr. að þessari lokinni og til hv. landbn.