16.03.1970
Neðri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)
43. mál, Fjárfestingarfélag Íslands
Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft frv. þetta til athugunar, og eins og fram kemur á þskj. 414 og 417, hefur ekki orðið samstaða um afgreiðslu málsins. Meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ., en 2 úr hópi meiri hl., þeir hv. 6. þm. Reykv. og hv. 5. þm. Austf., leggja til að frv. verði samþ. með fyrirvara.
Meiri hl. fjhn. leggur þó til, að gerð verði á frv. breyt., og flytur því brtt. á þskj. 415. Tveir úr meiri hl. leggja til brtt. á þskj. 416, en þeir, sem leggja til, að frv. verði samþ. með fyrirvara, flytja hins vegar brtt. við frv. á þskj. 411.
Við 1. umr. þessa máls gerði 1. flm. þess mjög ýtarlega grein fyrir efni þess. Hér er um að ræða frv. um stofnun félags, sem á, eins og segir í 1. gr. frv., að efla íslenzkan atvinnurekstur og örva til þátttöku í honum með því að fjárfesta í atvinnufyrirtækjum og veita þeim fjárhagslega fyrirgreiðslu með því að beita sér fyrir nýjungum í atvinnumálum. Í 1. gr. er síðan gerð grein fyrir, hvert verði m. a. hlutverk þessa félags, og það er talið þar upp í 6 liðum.
Fyrirmynd þess félags, sem hér er gert ráð fyrir að stofnsett verði, ef frv. þetta verður að lögum, er frá nágrannalöndum okkar, en þar mun vera félagsskapur einmitt til þess að annast sömu hluti og gert er ráð fyrir, að Fjárfestingarfélagið muni gera hér hjá okkur. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því, að eins og okkar skattalögum er háttað nú í dag, þá muni ekki sá ávinningur verða af slíku félagi. Gert er ráð fyrir því, að á þessu ári verði lagt til, að gerðar verði breyt. á skattal. okkar með tilliti til inngöngu Íslands í EFTA, til þess að samræma skatta á íslenzkum atvinnuvegum við skatta á svipuðum fyrirtækjum í löndum þeim, sem eru í Fríverzlunarbandalaginu. Ég gerði einmitt ráð fyrir því, að þegar og ef þær breyt. verða samþ., mundi slíkt félag sem hér er gert ráð fyrir að stofnað verði mjög geta stuðlað að því að efla og auka íslenzkan atvinnurekstur.
Brtt. sú, sem meiri hl. n. flytur, er við 3. gr. frv., en í þeirri gr. er gert ráð fyrir, að forgöngu um stofnun félagsins hafi Verzlunarráð Íslands og Félag ísl. iðnrekenda, en í brtt. er gert ráð fyrir að bæta þar inn í verzlunarsamtökum samvinnumanna, þ. e. a. s. Sambandi ísl. samvinnufélaga. Ennfremur að í þessa grein bætist þessi setning: „Öllum skal gefinn kostur á að gerast hluthafar með almennu hlutafjárútboði.“ Hér er gert ráð fyrir félagsskap, sem ætlazt er til, að almenningur hafi aðgang að, og því þótti rétt að taka skýrt fram um það í sjálfri löggjöfinni.
Á þskj. 416 flyt ég, ásamt hv. 1. landsk. þm., brtt. um, að sú breyt. verði gerð á 4. gr. frv., þar sem talið er upp, hverjum er heimilt að kaupa eða eiga hlutabréf í félaginu að þar sem stendur „opinberum sjóðum“, þá verði þeim ekki heimilað að kaupa eða eiga hlutabréf í félaginu öðruvísi en að áskildu samþykki ríkisstj.
Hins vegar gera hv. 4. þm. Reykv. og hv. 5 þm. Austf. till. um að fella algerlega niður úr 4. gr. heimild fyrir opinbera sjóði til að eiga hlutabréf eða kaupa hlutabréf í slíku félagi. Við erum hins vegar andvígir því, teljum, að það að heimila opinberum sjóðum þátttöku geti undir vissum kringumstæðum verið mjög gagnlegt, en teljum, að slíkt verði að gerast með samþykki ríkisstj.
Með nál. meiri hl. hafa verið prentuð svör þeirra ýmsu aðila, sem mál þetta var sent til umsagnar, og eins og þar kemur fram, hafa flestir þeirra, sem leitað hefur verið svars hjá, mælt með því, að til slíks félagsskapar yrði stofnað, og þess vegna að slík löggjöf yrði sett.
Ég tel svo ekki ástæðu til, herra forseti, að fjölyrða meir um málið, en legg til, að frv. verði vísað til 3. umr. með þeim breyt., sem lagt er til af hálfu meiri hl. á þskj. 415 og af minni hálfu og 1. landsk. þm. á þskj. 416 að verði samþykktar.